Vikan - 29.05.1969, Síða 37
Philip Morris vekur athygli
á mest seldu
amerísku filtersigarettunni
í Evrópu.
Reynið pakka af Marlboro og þér sannreynið hvað kallað er
raunverulegur tóbakskeimur.
Keimur, réttur keimur. Fullþroskað fyrsta flokks tóbak gefur Marlboro
þennan góða keim. Er þetta ekki það sem þér leitið að i filtersigarettunni?
„FILTER“ • RÉTTUR KEIMUR • „FLIP TOP“ PAKKI.
— Þú sagðir mér um daginn, að
þessi sýning væri tiltekt — þannig,
að þú yrðir að sýna þetta til að
koma því trá þér, og geta síðan
byrjað á einhverju öðru. Nú er sýn-
ingin í sjálfu sér víðtæk, [ henni
verður ekki fundið neitt eitt tema.
Verður tema í næstu sýningu?
— Ef ég held aftur sýningu,
verður það temasýning. Ég hef þeg-
ar ákveðið tema í huga; hvort það
verður nokkurn tíma sýning eða
bara geymt ofan í skúffu, það er
annað mál.
— Er ekki merkileg reynsla, að
halda svona sýningu?
— Jú. Ég er búinn að horfa á
hana oft hef stundum komið hér
eftir að búið er að loka, tekið sjálf-
an mig ! gegn og gagnrýnt mig
eins strangt og ég hef kunnað, og
ég held, að fjórar myndir standi
eftir, sem ég er fyllilega ánægður
með. Fjórar eða fimm. Fjórar eru
sæmilegar, en 10—15 myndir vildi
ég hafa sett beint í tunnuna og
aldrei hengt upp.
— Nú heyri ég oft, þegar verið
er að tala um Ijósmyndun, að mik-
ið er lagt upp úr tækjunum. Það
er sagt um Pétur, að hann eigi
svona og svona vélar, þessar og
þessar linsur og bök, og Pál, að
hann hafi þessa og þessa aðstöðu
f myrkraherbergi, og svo framveg-
is. Að hve miklu á Ijósmyndari sína
lukku undir tækjunum?
— Mjög litlu. Það er hægt að
taka góðar myndir á skókassa. Og
Kodac Instamatic. Frægur sænskur
Ijósmyndari, heimsfrægur, hann
tekur allt á Kodac Instamatic. Og
hann gerir það í mótmælaskyni við
tæknidelluna í Svfum. Ljósmyndun
er lítið skyld tækni. Beztu Ijós-
myndarar heims hafa iðulega ver-
ið með ómerkilegri áhöld en marg-
ir amatörar og tækiasafnarar. Það
er betra að eiga ekki nema eina
eða tvær vélar, en þekkja þær út
í æsar,- að þær séu aðeins verk-
færi, en taki ekki ráðin af manni.
Flectar mvndavélar eru góðar. Það
prtj framleidd hundruð tegunda, af
35 mm mvndavélum. Þær eru all-
ar aóðar. Fara vel í hendi, hafa
n-'ðar linsur. Það er nákvæmlega
^ama hver þeirra er. Það eru 50—60
búsund mvndavélar til í landinu,
kannski taka 10 þúsund manns
l'ósmyndir að staðaldri, um 2000
taka Ijósmyndunina alvarlega, sem
tómstundaiðju, og ætli það sé ekki
svo sem 40 manns, sem hafa Ijós-
myndun að fastri atvinnu. Það leyn-
ir sér ekki, að árangurinn hjá öll-
um þessum fjölda fer enaan veg-
inn eftir tækjunum. Alls ekki.
— Nú hefur mér fundizt koma
fyrir, að þeir sem hafa gert Ijós-
mvndun að lífsstarfi sínu, séu svo
upo fullir af list, að þeir hafi ekki
geð til að gera venjulegar ólist-
rænar myndir eins og viðskiptavin-
ir þeirra vilia fá. Er þetta ekki
skortur á hæfileika til að greina á
milli starfs og tómstundaiðju?
— Þarna getur ýmislegt komið
til. Ef menn eru eitthvað hræddir
við að taka myndir eins og aðrir
gera, þeir eru tæpast miklir Ijós-
myndarar. En ef maðurinn hefur
helgað sig einhverri ákveðinni línu,
eins og til dæmis að taka allt í
formum, og reynir að vinna það
verkefni til hlítar á svipaðan hátt
og listmálari, þá er hætt við að
honum kunni að reynast erfitt að
taka venjulegar, hugmyndalausar
sölumyndir meðfram.
— Er þessi maður þá ekki á al-
gerlega rangri hillu?
— Jú. Menn eiga ekki að vinna
fyrir sér sem Ijósmyndarar ef þeir
geta ekki komið til móts við kaup-
andann.
— Nú vinnur þú vaktavinnu f
sjónvarpinu, sem þýðir að þú getur
suma daga leikið þér, þegar aðrir
eru að vinna. Og sé það rétt, að
starf við kvikmyndun skemmi ekki
fyrir Ijósmyndun sem áhugamáli,
hlýtur þetta að vera ákjósanlegt
fyrirkomulag. Er það ekki rétt?
— Jú, ég er prýðisánægður með
þetta fyrirkomulag. Ég hef skemmti-
legt starf og skemmtilegt áhuga-
mál, sem ég get leikið mér að á
milli, og það er mjög gott. Það
verður að vera leikur í þessu, því
annars fær maður magasár. ☆
Þannig yfirheyra ....
Framhald af bls. 19
við yfirliði, en þá héldu nokkrir
mér uppi meðan aðrir lömdu mig
með skammbyssuskeftum. Ég var
með tíðir og bað um að fá að ná f
verkjastillandi pillur, sem ég hafði
f handtöskunni. Þeir hristu höfuðin
brosandi, lömdu mig í kviðinn neð-
anvert og einn þeirra sagði; Þetta
ætti að fróa þér, djöfuls hóran.
Féll í yfirlið og látin
liggja fimmtán daga
Þeir ólmuðust á mér linnulaust
í fimm klukkustundir. Allan þann
tíma spurðu þeir mig einskis. Gólf-
ið var orðið blóðugt og hárlufsur
loddu við járnrúmið. Einn þeirra
tók handklæði, þurrkaði blóðið af
líkama mínum og neri því f and-
lit mér og hár. Svo komu þeir með
spegil og Karamitsos hvíslaði: Sjáðu
nú hvað þú ert falleg! Sjáðu hve
vel blóðliturinn fer við hárið! Og
þó er yfirheyrslan ekki byrjuð enn.
Síðan hentu þeir mér inn f klefa.
Ég gat ekki legið kyrr, því að blóðið
streymdi úr eyrunum og allur Ifk-
aminn var aumur. Ég man ekki hvort
ég sat eða stóð þegar mig svimaði.
Svo var ég látin liggja f fimmtán
daga. Ég veit ekki hvort ég borð-
aði nokkuð þann tfma, en ég
man að mér tókst að drekka vatn
á salerninu þegar ég fékk að fara
þangað. Einu sinni sá ég Meletis
bregða fyrir f fylgd varðmanna, en
hann þekkti mig ekki, svo bólgin
var ég og illa útlítandi.
22. tbi. VIKAN 37