Vikan


Vikan - 30.10.1969, Page 28

Vikan - 30.10.1969, Page 28
JOHN OG YOKO Hjónin John Lennon og Yoko Ono hafa nú látið frá sér fara nýja tveggja laga plötu, ásamt gítarleik- aranum Eric Clapton, bassaleikaran- um Klaus Voorman og trymblinum Allan White. Þessi plata kemur í kjölfar „Give Peace A Chance", og enn sem fyrr eru flytjendur nefndir Plastic Ono Band. Þessi nýja hljóm- plata virðist forvitnileg fyrir þá sök, að hér eru miklir snillingar með í spilinu, og skal þá fyrst og fremst nefndur Eric Clapton. Lagið sem upp snýr á plötunni heitir „Cold Turkey" (kaldur kalkúnn) og er eftir John Lennon. Hugmyndina að útgáfu þessarar plötu fékk John, þegar hann kom fram á rokk-hátíð í Tor- onto í Kanada fyrir skömmu. Þeir Eric, Klaus og Allan komu þar einn- ig fram og fluttu þar meðal annars lagið „Cold Turkey" ásamt Lennon og frú. Þá er innan skamms von á tveggja laga plötu þar sem Yoko Ono lætur í sér heyra. Hefur John unnið að undirbúningi fyrir þessa plötu um langt skeið og bíða menn f eftir- væntingu eftir að heyra hver út- koman verður. Að lokum er þess svo að geta, að 17. okt. kom út hæggeng hljómplata með John og Yoko. Plantan ber nafnið „Wedding Album" og þykir hin furðulegasta fyrir margar sakir. A annarri hlið plötunnar eru viðtöl sem blaðamenn áttu við hjónakorn- in, þegar þau lágu í viku í hótel- holunni í Amsterdam, en það til- tæki þeirra varð frægt um allar jarð- ir. A hinni hlið plötunnar er ástar- leikur tveggja elskenda, Johns og Yoko. Þessi plata er borin á borð fyrir kaupendur í sérstökum gjafa- kassa, en í kassanum eru auk plöt- unnar mynd í plastpoka af brúð- kaupstertu hjónanna, 12 blaðsíður af myndum sem þau hafa tekið hvort af öðru, 6 blaðsíður með teikni- myndum, sem þau hafa áritað, og 16 blaðsíðna bók með úrklippum úr dagblöðum, þar sem frá þeim er greint. White Trash. Mynd á umslagi nýju Bítlaplötunnar sýnir Bítlana á Abbey Road. Ný bítlanwnd Lengi hafa menn beðið eftir nýrri kvikmynd frá Bítlunum, og lengi hafa Bítlarnir haft áætlanir á prjón- unum um slíkt fyrirtæki. Að þvl er nýjustu fregnir herma, mun þriðja kvikmynd Bítlanna af fullri sýning- arlengd verða frumsýnd f byrjun næsta érs. Myndatöku er þegar lok- ið og er um þessar mundir verið að vinna að endanlegum frágangi. Sennilegt er talið, að myndin muni heita „Get Back", en það lag er meðal annars í myndinni, ásamt fjöl- mörgum öðrum nýjum eftir Bítlana. Munu öll þessi lög verða gefin út á hæggengri plötu um sama leyti og myndin verður frumsýnd. Þessi mynd er að því leyti frábrugðin fyrri myndum Bítlanna, „A Hard Days Night" og „Help", að í henni er ekki um söguþráð að ræða, held- ur sýnir hún Bftlana í starfi, meðal annars við plötuupptökur. Þeir hafa þó líka brugðið á leik, eins og þeirra er von og vísa, og má geta þess því til sönnunar, að f laginu „Get Back" eru þeir sýndir príla uppi á þaki stórbyggingar þeirrar, þar sem skrifstofur Apple eru til húsa. Var það tiltæki þeirra frægt að endem- um á sínum tíma og olli umferða- töfum í næsta nágrenni hússins, svo ekki sé minnst á skelfingu þeirra, sem fylgdust með. Hinni nýju stóru hljómplötu Bíti- anna „Abbey Road" hefur vegnað vel á vinsældalistanum brezka. Tvö lög af plötunni hafa verið gefin út á tveggja laga plötu í Bandaríkjun- um. Eru það lögin „Something" eft- ir George Harrison, og „Come To- gether" eftir John og Paul. Eins og vænta mátti hafa margar hljómsveitir orðið til þess að takai lög af þessari plötu og gefa út á tveggja laga plötum. Er hér einkum um að ræða hljómsveitir, sem lítt eru þekktar. Meðal þessara hljóm- sveita er „White Trash", en útgáfu þeirra af lögunum „Golden Slumb- ers" og „Carry That Weight" er spáð miklum vinsældum. Þykir hljóm- sveitin spjara sig vel, og er því spáð, að þessi plata komist ofarlega á blað á vinsældalistanum. Eins og menn kannski muna, lét hljómsveit- in Marmelade fyrst að sér kveða með lagi af síðustu hæggengu plötu Bítlanna, Obladi-Oblada. Telja spak- ir menn, að nú eigi „White Trash" velgengni vísa líkt og Marmelade á sínum tíma. ☆ ANDRES INDRIÐASON 28 VIKAN 44-tbl'

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.