Vikan - 05.02.1970, Blaðsíða 30
Óðmenn eins og þeir voru. Myndin er tekin í myndstúdíói sjónvarpsins. Frá
vinstri: Jóhann, Finnur og Ólafur.
Reynir Harðarson, hinn nýi trommuleikari Óðmanna.
BREYTINGAR
HJÁ ÓBMBNNBM
Á næstunni kemur á markað-
inn tveggja laga hljómplata með
hljómsveitinni Óðmönnum. Lög-
in á plötunni eru Spilltur heim-
ur og Komdu heim, bæði eftir
Jóhann G. Jóhannsson, bassaleik-
ara hljómsveitarinnar, og hvort
öðru betra. Þó ber Komdu heim
af; það er að segja melódían, en
texti hins lagsins er aftur á móti
betri, og ætti nafnið að vera
nægileg skýring á innihaldi hans.
Það eru S.G.-hljómplötur sem
gefa plötuna út, en Óðmenn fóru
til London í byrjun vetrar og
hljóðrituðu þar fjögur lög á tvær
litlar plötur. Seinni platan mun
koma út í marz-apríl — „allt eft-
ir því hvernig sú fyrri gengur,“
eins og Jóhann Jóhannsson sagði
okkur.
Upprunalega ætlaði Fálkinn að
gefa út tveggja laga plötu með
hljómsveitinni, og voru bæði lög-
in hljóðrituð hér heima og flutt
í sjónvarpsþætti piltanna í haust.
En þeir voru ekki ánægðir með
þá upptöku og vildu fara til
London þar sem möguleikar eru
á betri upptökutækni. Þótti for-
ráðamönnum Fálkans fyrirtækið
of dýrt og vafasamt og því varð
úr að S.G.-hljómplötur tóku yfir.
Þetta er fyrsta „blues“-platan
sem kemur á markaðinn og verð-
ur fróðlegt að fylgjast með
hvernig gengur.
Og á næstunni hyggja Óðmenn
á breytingar í hljómsveitinni. —
Ólafur Garðarsson, hinn frábæri
trommuleikari þeirra, er að
hætta og í staðinn kemur Reyn-
ir Harðarson, sá sem áður lék
með Heiðursmönnum.
„Þetta er allt gert í mesta
bróðerni," sagði Jóhann. „Óli vill
gjarnan reyna eitthvað nýtt og
það sama er að segja um okkur
Finn, svo við töldum að betri út-
koma næðist með þessu. Ég hef
mikið álit á Óla sem trommu-
leikara, en þar sem við ætlum nú
að reyna að breyta örlítið um
stíl, ef svo má orða það, þá telj-
um við að Reynir henti okkur
betur. Meiningin er nefnilega sú
að við höfum verið að gera til-
raunir með lægri músik og fínni
og þar er Reynis „deild“.
Óli fer aftur á móti í Náttúru,
og ef ég á að segja fyrir mig, þá
held ég að Óli eigi meira heima
þar, því hann er það sterkur
trommari og ég hef trú á því að
hans . beat“ falli betur inn í þá
hljómsveit.
Nú, og ef fólki ekki líkar þess-
ar breytingar sem við ætlum að
gera, eða sú músik sem við flytj-
um, þá er ekkert um annað að
gera en að hætta. — Við ætlum
ekki að fara út í það að spila
kúlutyggjómúsik."
☆
J