Vikan


Vikan - 05.02.1970, Blaðsíða 17

Vikan - 05.02.1970, Blaðsíða 17
— Þig grunaði aldrei að ég væri alkólisti, nú var þetta ekki spurning — Vertu sæl, frú Robinson. — Seztu! — É'g er að fara. Hún stóð upp og gekk að hon- um- — Seztu, sagði hún og ýtti honum niður. — Eg er að fara frú Robinson. — Hvers vegna? — Vegna þess að mig langar til að vera einn. — Maðurinn minn kemur ekki nærri strax, sagði hún. Benjamín gretti sig framan í hana. — Hr. Robinson kemur ekki fyrr en eftir nokkra klukkutíma. Benjamín sté nokkur skref aft- ur á bak. — Guð minn góður, sagði hann. — Hvað er að? — Nei, frú Robinson, ó nei. — Hvað er að? Benjamín horfði á hana ör- lítið lengur og gekk svo út að glugganum. — Prú Robinson, sagði hann, — þú ætlaðir ekki — ég meina þú bjóst ekki.... — Hvað? — Hélztu virkilega að ég myndi gera eitthvað slikt? — Eins og hvað? — Hvað heldurðu? sagði hann. — Ja, ég veit það ekki. — Láttu ekki svona, frú Rob- inson. — Hvað gengur að þér Benja- mín? — f guðanna bænum, frú Rob- inson... Hér erum við bæði, al- ein, þú ert búin að fá mig með þér inn. Svo setur þú á plötu. og gefur mér í glas. Við erum bæði búin að drekka fyrir. Nú byrjar þú að segja mér frá einkamálum þínum og segir mér að maðurinn þinn komi ekki fyrr en eftir nokkra klukkutíma. — Hvað með það? — Frú Robinson, sagði hann og sneri sér við, — þú ert að reyna að fleka mig! Hún horfði á hann. — Er það ekki rétt? Hún settist á sófann. — Er það ekki? — Nei, eiginlega ekki, sagði hún og brosti. — ’É'g hafði ekki hugsað um þessa hlið málsins. Þessi hugmynd þín kemur mér töluvert á óvart Benjamín tók allt í einu báð- um höndum fyrir andlitið. — Frú Robinson, sagði hann, — viltu fyrirgefa mér? — Hvað? Viltu fyrirgefa mér það sem ég sagði? — Það var allt í lagi, Benja- mín. Nei. það var ekki allt í lagi. Þetta er það versta sem ég hef nokkru sinni sagt við nokk- urn! — Seztu. — Fyrirgefðu mér. Mér líkar vel við þig. É’g held alls ekki að þú sért svoleiðis. En ég er svo ruglaður... ■— Allt í lagi, sagði hún. — Kláraðu úr glasinu. Benjamín settist í stólinn og tók upp glasið. —' Frú Robinson mér líður ferlega fyrir það sem ég sagði. — Ég fyrirgef þér, sagði hún. — Geturðu það? Heldur þú að þú getir nokkurn tíma gleymt þvi sem ég sagði? — Ég er búin að gleyma því. Kláraðu úr glasinu. — Ég veit ekki hvað er að mér, sagði hann og tók nokkra gúlsopa. Hann setti glasið á gólf- ið. Benjamín kinkaði kolli. -—- Já, mjög gjarnan. —■ Hún er uppi, sagði hún og stóð upp. Benjamín gekk á eftir henni í gegnum húsið og upp stigann sem var klæddur þykku teppi. Frú Robinson gekk á undan hon- um eftir ganginum og inn í her- bergi. Hún kom við rofa, um leið flóði dauft ljós um herbergið og út á ganginn. Benjamín gekk inn á eftir henni. Myndin af Elaine hékk á ein- um veggnum og ljósið kom frá litlum lampa sem festur var of- — Benjamín’ — Já, frú Robinson. Hún ræskti sig. — Hefur þú séð mynd af Elaine? — Mynd af Elaine? — Já. Benjamín hristi höfuðið. ■—- Nei, ég hef aldrei séð mynd af henni. — Hún var tekin um jólin. Langar þig að sjá hana? an á stóran, gylltan rammann. Benjamín leit á myndina og kinkaði kolli. — Hún er ákaflega falleg stúlka. sagði hann. Frú Robinson settist á bríkina á rúminu sem var í horninu. Benjamín krosslagði hendurn- ar á brjóstinu og gekk nær myndinni til að skoða hana ná- kvæmlega. — Ég minnist þess ekki að hún hafi haft brún augu, - • sagði hann, um leið og hann gekk eitt skref eftur á bak og hallaði undir flatt. — Hún er alveg ein- staklega falleg. ■—■ Benjamín? — Já? Hún svaraði ekki og Benjamín sneri höfðinu. Hann brosti til hennar. — Komdu hérna, sagði hún hljóðlega. — Hva .. — Komdu hérna aðeins. — Þarna til þín? Hún kinkaði kolli. — Já, auðvitað, sagði Benja- mín og gekk yfir að rúminu. Frú Robinson teygði sig upp og setti aðra höndina á handlegginn á honum. Svo stóð hún hægt upp og horfði beint framan í hann. — Benjamín? sagði hún. — Já? Hún sneri sér við. — Viltu renna niður rennilásnum á kjóln- um mínum? Benjamín skellti handleggjun- um niður með síðunum og hörf- aði aftur á bak. — Ég er að hugsa um að fara í rúmið, saeði hún. — Ó, sagði Beijamín. — Jæja góða nótt. Hann gekk út að dyr- unum. — Ætlarðu ekki að renna nið- ur fyrir mig? — Ég vildi heldur komast hjá því, frú Robinson. Hún sneri sér aftur við og horfði á hann. — Heldurðu enn að ég sé að reyna að ...? — Nei, en mér finnst þetta svolítið bjánalegt. — Þú heldur enn að ég sé að reyna að fleka þig. —• Nei, alls ekki, en ég held það sé bezt að ég fari niður núna. — Benjamín, sagði hún og brosti, — þú hefur þekkt mig alla ævi. — Ég veit það, en ég ... — Láttu ekki svona, sagði hún, — ég næ þessu varla sjálf. Benjamín hikaði um stund en gekk svo að henni. Hann renndi rennilásnum niður eftir baki hennar. — Þakka þér fyrir. — Það var ekkert, sagði Benjamín. Hann gekk að dyrun- um. — Við hvað ertu svona hrædd- ur? spurði hún. — Ég er ekki hræddur, frú Robinson. — Af hverju ertu þá alltaf að reyna að hlaupast burtu? — Nú. þú ert að fara að sofa, og mér fannst óviðeigandi að ég sé hérna uppi á meðan. — Hefurðú ekki séð konu á undirkjólnum áður? sagði hún um leið og hún lét kjólinn falla niður um sig og á gólfið. — Jú, ég hef séð konu á und- irkjólnum áður, sagði Benjamín og reyndi að festa augun á mynd- inni af Elaine. — En ég ... — Þú hetdur enn að ég sé að reyna að fá þig til við mig. Framhald á bls. 48. 6. tbi. VIKAN 17

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.