Vikan - 26.02.1970, Qupperneq 9
VIKAN og KARNABÆR efna nú til fegurðarsam- :
keppni unga fólksins í fjórða sinn. Keppnin
verður með líku sniði ogfyrr, að því undanskildu,
að hér eftir verður barist fyrir sérstöku máli sem
varðar hag æskunnar hverju sinni. f ár berjumst
við gegn notkun eiturlyfja.
uncn KvnsLóÐin
Soffía Wedholm, fulltrúi unga fólksins 1968.
I næsta blaði hefst Unga kyn-
slóðin 1970, fegurðarsam-
keppni VIKUNNAR og
KARNABÆJAR. Þetta er í
fjórða skiptið sem slík keppni
er haldin en í öll hin skiptin
hefur hún þótt takast vel í
alla staði. Keppnin verður
með líku sniði og áður að
þessu sinni. VIKAN birtir
myndir af þeim sex stúlkum,
sem keppa til úrslita, tveim-
ur í senn í næstu tölublöðum.
myndir af öllum stúlkunum
sex í einu — en síðan fer
keppnin sjálf fram á skemmt-
un, sem haldin verður í byrj-
un apríl og þar verður kos-
.‘V'X' ■' inn fulltrúi ungu kynslóðar-
v"""; innar 1970. Verðlaunin eru
, eins og áður ferð til Englands
og dvöld á völdum sumar-
skþlaL. þar. — Síðast en ekki
sízt er vert að geta um þá
nýbreytni, að Unga kynslóð-
in helgar sér eitt baráttumál
hverju sinni og leggur því
lið eftir mætti á ýmsan hátt.
Að þessu sinni verður barizt
gegn útbreiðslu hinna nýju
lyfja, marijúana og hashish,
og í tilefni af því birtir VIK-
AN ítarlegt efni um eiturlyf
og skaðsemi þeirra á næstu
fjórum síðum.
Þorbjörg Magnúsdóttir, fulltrúi unga fólksins 1969.
Kristín Waage, fulltrúi unga fólksins 1967.