Vikan - 26.02.1970, Page 20
Flestir litu á þýzka kanslarann, Otto von Bismarck,
sem snjallan stjórnmálamann,
s«m hafði sigrað í þrem styrjöldum og grundvallað stórveldi,
og flestir líta á hann sem afburðamann með snilligáfu.
En Johanna, konan hans, sá í honum aðeins ósköp
venjulegan mann, sem var fljótur til tára,
borðaði of mikið og var oft lasinn.
Það var líklega ástæðan fyrir því
að þetta hjónaband var svo hamingjusamt, öll 47 árin,
selm þau bjuggu saman . . .
Það er mjög útbreidd skoðun að
ákjósanlegustu eiginkonur fyrir
mikla athafnamenn, séu þær sem
vekja þá fyrir allar aldir og hvetja
til dáða, og fylgjast af alhug með
starfi þeirra.
Johanna von Bismarck, var fyr-
irmyndareiginkona eins hins áhrifa-
mesta manns, sem uppi var á
nítjándu öld, ríkiskanslarans Ottos
von Bismarck, fursta, sem árið 1871
sameinaði 38 smáríki og gerði þau
^ Þannig naut Bismarck lífsins bezt,
með byssu og veiðihundinn.
að einu keisaradæmi. Strax árið
1872 var hann svo uppgefinn, að
hann sagði við konu sína: „Olía
mfn er þrotin, ég get ekki meir!"
Þá sagði hún einfaldlega: „Vesa-
lings vinur minn", og lét hann í
friði, þreytti hann ekki með því að
reyna að rekja úr honum garnirn-
ar, bjó til þann mat, sem hann lang-
aði í, og var alsæl, þegar hann tók
sér frí frá stjórnmálum og hvíldi
sig á búgarði sínum. Þetta gerði
honum margfalt betra, en ef hún
hefði farið að brýna hann til dáða.
Það er sagt að afburðaeiginkon-
MINNINGAR UM EINSTAKT
HJONABAND
Börnin voru þrjú: Marie, Wilhelm og Herbert.
20 VIKAN 9-tbl-
Bismarck var hrifinn af Marie von
Blankenburg, sem gerði allt til að
kristna hann.
Jóliauna von Bismarck var svarthærð
og stóreygð.