Vikan - 26.02.1970, Blaðsíða 28
Cara Dawn fæddist. fyrst, hún vó 1
Foreldramir áttu ekki gott með að þekkja börnin sín f sundur, þegar þau voru í þessum súr-
efniskössum.
Jocette fæddist þrem mínútum eftir Sharon, 1,04 kg.
Gary John, eini drengurinn vó aðei]
Þetta segja
fimmburaforeldrarnir
Rosemary og John Letts,
sem eignuðust
fimm lifandi börn
15. desember
síðastliðinn ....
28 VIKAN 9-tbL
Þau voru mjög ung þegar þau giftu sig.
— Að verða fimmföld móðir, og allt
í einu, það er stórkostlegt, segir Rose-
mary Letts, sem býr í Chester fyrir ut-
an London. — Við viljum eignast stóra
fjölskyldu, en að fá hana svona á einu
bretti, hafði okkur ekki dottið í hug,
segir faðirinn, John Letts, sem er verk-
fræðingur. — Fyrst þekkti ég þau ekki
i sundur, en mér finnst þau nú vera
mjög falleg. Þetta sagði hann lika, þeg-
ar hann sá þau i fyrsta sinn, nokkrum
tímum eftir fæðinguna.
— Þetta eru fimm kraftaverk, sagði
móðirin, sem er tuttugu og þriggja ára,
þegar henni var ekið í hjólastól, til að
sjá börnin sín, þar sem þau lágu í súr-
efinskössum, merkt Letts I. II. III. IV.
og V.
Það'voru bleik Jjönd á telpunum, blá
á drengnum.
Síðdegis þann 15. desember kom
John til að heimsækja konu sína til
University College Hospital, þar sem
liún lá, og beið eftir að fæða börnin,
sem henni var sagt að vrðu sjö. Meðal
annars kom hann til að velja á þau
nöfn, en það varð aldrei timi til þess,