Vikan


Vikan - 05.08.1971, Blaðsíða 32

Vikan - 05.08.1971, Blaðsíða 32
r -\ • Til þess að hægt sé að segja, að ungt fólk hafi gengið vel frá trygg- ingum sínum, þarf það sjálft að vera líftryggt. Það er líka tiltölulega ódýrt, því að LÍFTRYGGINGAFÉLAGIÐ ANDVAKA hefur nýlega lækkað iðgjöld af „Verð- tryggðum líftryggingum", og fást nú hærri tryggingarupphæðir fyrir sama iðgjald. 25 ára gamall maður getur líftryggt sig fyrir kr. 580.000. — fyrir kr. 2.000. — á ári. Siðan hægt var að bjóða þessa tég- und trygginga, hafa æ fleiri séð sér hag og öryggi í því að vera líftryggðir. Við andlát greiðir tryggingafélagið nánustu vandamönnum tryggingar- upphæðina og g'erir þeim kleift að standa við ýmsar fjárhagslegar skuld- bindingar. Ll FSGLEÐI ÖRYGGI fylgir góðri líftryggingu Líftryggingariðgjald er frádráttarhæft á skattskýrslu, og með því móti verða skattar þeirra lægri, sem líftryggja sig, og iðgjaldið raunverulega um helmingi lægra en ið- gjaldatöflur sýna. Leitið nánari upplýsinga hjá Aðalskrifstofu eða umboðum, um þessa hagkvæmu líftryggingu.. OFTRYGGINGAFÉLAGIÐ AMM ÁRMÚLA 3 - SlMI 38500 RAFHA eldavél, gerð 2650, með föstum hellum, 30 ára reynsla. - ÓDÝRASTA RAFMAGNSELDAVÉLIN á markaðinum. - Heim- keyrsla og Rafha ábyrgð. FRÁ RAFHA VIÐ ÓÐINSTORG - SÍMI 10322 STJÖRNUSPÁ HRÚTS- MERKIÐ 21. MARZ - 20. APRÍL Það verður ýmislegt sem veldur þér erfið- leikum og töfum, fyrri hluta vikunnar. Þú átt mörg verkefni hálfgerð. Ljúktu við þau svo þau verði ekki sífellt að valda þér angri. NAUTS- MERKIÐ 21. APRIL • 21. MAÍ Sennilega verður þessi vika nokkuð erfið en það er ekkert að gera fyrir þig nema að vera bjartsýnn, og sýna jafnaðargeð. Fram- undan eru miklar breytingar á högum þínum. TVIBURA- MERKIÐ 22. MAÍ — 21. JÚNÍ Sitthvað skemmtilegt og spennandi gerist í vikunni en samt ertu ekki ánægður, eitthvað, sem þú bíður eftir, lætur á sér standa. Reyndu að fitja upp á einhverri nýjung til tiibreytingar. KRABBA- MERKIÐ 22. JÚNÍ — 23. JÚLÍ Aætlanir langt fram tímann kunna að vera ágætar, en það verður að vera vel til. þeirra vandað. Þú skalt hafa þetta hugfast, smá- atriðin geta valdið miklu. Þú kemst að góðum kjörum. LJONS- MERKIÐ 24. JÚLÍ _ 24. ÁGÚST I vikunni færðu tæki- færi til að framkvæma nokkuð, sem þú hefur lengi þráð. Þú ert fremur blankur, og þú lendir í mikilli freistingu. Fimmtudag- ur er heilladagur. MEYJAR- MERKIÐ 24.ÁGÚST — 23. SEPT. 1 Þú ættir að fylgjast betur með starfi þínu, í því hafa komið fram nýjungar, sem þú mátt ekki missa af. Þú átt góðra kosta völ, en þú gætir samt hæglega leikið af þér í fljót- færni. VOGAR- MERKIÐ 24. SEPT. - 23. OKT. Vikan verður mjög rómantisk fyrir unga fólkið. — Heimilislíf verður ánægjulegt og þú nýtur þess að vera innan um ættingja og fjölskyldu. Þú átt fremur náðuga daga og hvílir þig vel. DREKA- MERKIÐ 24. OKT. 22. NÓV Vikan verður í flesta staði mjög róleg, og þú ættir að notfæra þér rólegheitin og koma persónulegum málum f lag. Leggðu áherzlu á, að fjármál þín séu eins og þú vilt hafa þau. BOGMANNS MERKIÐ 23. NÓV. 21. DES. Það eru ýmsar blikur á lofti og ættirðu ekki að flana að neinu. Þú selur hlut sem þú átt, mjög vel. Sýndu vinum þínum og mál- efnum þeirra meiri á- huga en verið hefur. Happatala er þrír. STEIN- GEITAR- MERKIÐ 22. DES. — 20. JAN. Stofnaðu ekki til rökræðna við fólk, sérstaklega ekki við þá, sem eru þér nákomnir. Það gæti verið, að hreyft yrði við málum sem þú vildir að væru gleymd. Þú verður fyrir einhverju happi. VATNSBERA- MEltKIÐ 21. JAN. — 19. FEB. Tími þinn fer mikið í tafir, vegna þess, hve óljósar allar upplýsing- ar og leiðbeiningar eru, sem þú hefur. Þú færð kærkominn gest, sem dvelur hjá þér um nokkurn tima. Gerðu þér dagamun um helgina. FISKA- MERKIÐ 20. FEB. — 20. MARZ Þú verður að bera vitni í máli, sem þér er mjög ógeðfellt, en gerðu hreint fyrir þínum dyrum. Vikan verður að mörgu leyti hag- stæð til framkvæmda. Hafðu vitra menn í ráðum með þér. 32 VIKAN 31.TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.