Vikan


Vikan - 06.01.1972, Blaðsíða 32

Vikan - 06.01.1972, Blaðsíða 32
Hvar fæst Pira - systeœ Pira-System fer sigurför um heiminn eins og fram kemur í samtali viS uppfinningamanninn, Olle Pira, í Vikunni 29. júlí sl. Hús og skip hefur einkaumboð fyrir Pira System. Það er selt í verzluninni í Norðurveri, Hátúni 4A. Allt ann- að, sem selt er undir þessu nafni annars staðar, eru eftir- líkingar, sem ber að varast. PIRA SYSTEM — Einkaumboð á íslandi: Hús og skip, sími 21830. r •• M STJ0RNV t/.,' ISPA HRUTS- MERKIÐ 21. MARZ • 20. APRÍL Þú verður fyrir stöð- ugri áreitni sömu per- sónu og getur sjálfum þér um kennt, því þú taiar aldrei hreint út. Hætta er á misklíð á heimilinu, en þú getur afstýrt henni. Þú hagar orðum þínum óvarlega og valda þau slæmum misskilningi. NAUTS- MERKIÐ 21. APRIL 21. MAÍ Þú færð fréttir langt að sem koma of seint. Vertu ekki laus á fé, þú þarft mjög bráðlega á miklum peningum að halda. TVIBURA. MERKIÐ 22. MAI — 21. JÚNÍ Erfið mál verða mjög ofarlega á baugi og þú hefur ekki mikinn tíma til að sinna fleiru en þeim. Þú dregst aftur úr á ákveðnu sviði, en við því er ekkert að gera í bráð. Laugardag- urinn verður skemmti- legur. KRABBA- MERKIÐ 22. JUNI — 23. JÚLÍ Gefðu gaum að því sem í kringum þig er, þekk- ing og skilningur á um- hverfinu geta orðið þér mjög að iiði. Varastu ofþreytu og láttu ekki aðra sóa dýrmætum tíma þínum. Taktu þátt í skemmtunum vina. LJONS- MERKIÐ 24. JULI — 24. ÁGÚST Varastu fljótfærnislegar ákvarðanir og skyndi- legar viðhorfsbreyting- ar. Talaðu ekki meira en þú þarft. Ætlaðu þér nægan tíma til að ljúka skyldustörfum þínum. Þú færð óvæntar og góðar fréttir. MEYJAR- MERKIÐ 24. ÁGÚST - 23. SEPT. i Akveðnar persónur gera lítið úr tíma þínum. Þú verður að koma þeim í skilning um hvað í húfi er. Þú ræðst í stór- framkvæmdir eða þann- ig lítur það út frá þínu sjónarmiði. Heillalitur er blár. VOGAR- MERKIB 24. SEPT. - 23. OKT. Girtu fyrir hugsanleg óhöpp í tíma. Vertu vel útbúinn, tefldu ekki á tvær hættur. Þú verður innan um deilugjarnt fólk og unir þér ekki vel. Síðari hluti vikunn- ar verður dálítið spenn- andi. DREKA- MERKIÐ 24. OKT. - 22. NÓV. Láttu ekki ofsaleg skap- brigði hlaupa með þig í gönur. Reyndu að hafa sem mestan tíma fyrir sjálfan þig og notaðu hann vel. Einhverjar áætlanir þínar tefjast verulega. Þú ferð í ferðalag um helgina. BOGMANNS- MERKIÐ 23. NÓV. 21. DES. Þú færð vitneskju um mál sem kemur illa við þig. Gættu þess að styggja ekki þína nán- ustu með hugsunarleysi. Þú ert önnum kafinn og verkefni þín margvís- ieg, þannig að þér ieið- ist alls ekki. STEIN- GEITAR- MERKIÐ 22. DES. - 20. JAN. Farðu varlega í að bæta við þig nýjum skuldum. Þú átt í nokkrum fjár- hagsörðugleikum, en það er aðeins tíma- bundið. Þú færð mikið hrós fyrir vel unnið verk, en þú verður líka að kunna að nota þér það. VATNSBERA MERKIÐ 21. JAN. - 19. FEB. Einhver óheppni hangir yfir og ættirðu því að vera venju fremur varkár. Farðu sérstak- lega rólega í umferð- inni. Ættingi þinn verð- ur til að hneyksla þig, en þú ættir ekki að taka hart á máli hans. FISKA- MERKIÐ 20. FEB. — 20. MARZ Arásar- og deilugirni þín gætu orðið þér að fótakefli. Reyndu ekki að knýja fram uppgjör hjá einum eða neinum, finndu þér eitthvað annað til afþreyingar. Þú hefur mikla mögu- leika á laugardag. 32 VIKAN 1. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.