Vikan


Vikan - 21.09.1972, Síða 26

Vikan - 21.09.1972, Síða 26
Það var kvöldstund fyrir nokkru, að ég átti stefnumót við Svanfriði. Mótsstaður okkar var hjá bezta afmyndara bæjarins natúrligvis, þvi til stóð að af- mynda okkur Svanfriði. En svo, þegar átti að fara að taka til höndum kom i ljós, að ég var þá þegar svo afmyndaður, ’ að ógerlegt þótti að hafa mig með á mynd. Kom nú babb i bátinn, en það gleymdist fljótlega þegar farið var að kikja á Svanfriði sjálfa. Uppgötvaðist þá, að Svanfriður hafði mætt fjórskipt til leiks. Nú var úr vöndu að ráða, en lausnin fannst von bráðar I bæklingi, sem Svanfrfður var með i pússi sinu. Varð þá ljóst, að Svanfríður er samansett úr fjórum sjálfstæðum einingum, Birgir Hrafnsson gitar sem setja má saman og taka sundur að vild. Dundaði af- myndarinn nú við það fram eftir kvöldi alsæll, jafnframt þvi að festa atburðinn á filmu. Árangurinn má sjá hér á sfðunni og geta nú allir séð hvernig hin raunverulega Svanfriður litur út. Það sem hér fer á eftir, er að mestu unnið úr spjalli sem ég átti við þá Svanfriðarmenn, milli þess er við hlustuðum á hið nýtilorðna afkvæmi Svanfriðar, L.P. plötuna, „What’s Hidden There”. Þær fjórar einir jar, sem ég minntist á áður, eru þeir Birgir Hrafnsson, Gunnar Her- mannsson, Pétur Kristjánsson og Sigurður Karlsson. Allt eru þetta vel þekkt nöfn og hafa áður verið bendluð við hljómsveitir með ýmsum nöfnum. Allar eiga þessar hljómsveitir það sam- eiginlegt, að hafa aldrei gefið út L.P. plötu. Það að gefa út L.P. plötu hefur þvl legið á Svanfrlði eins og mara, siðan hún opin- beraði. Og nú loksins er Svan- friður orðin léttari. Afkvæmið var skfrt „What’s Hidden There?”, eftir einu laginu á plötunni. Alla texta hefur Róbert Árni gert, en hann nemur lög við H.í. Fyrsta iag plötunnar er „The Woman Of Our Day”, Nútimakonan, eftir Birgi. Lagið átti sér ekki langan aðdraganda, né tók langan tima að semja það. Svanfriður hafði inni um skeið i sumarbústað skammt frá bænum. Þar þurfti eins og alls staðar annars staðar að gera hreint. Birgir var hins vegar hinn mesti letingi og stalst út með gftarinn. Eftir korter kom hann inn aftur með lagið tilbúið. Svo segir i annálum. Allir hljómlistarmenn eiga sér sinn uppáhaldshljóðfæraleikara. Það er næstum óhjákvæmilegt annað en að verða fyrir áhrifum frá þeim, sé hlustað mikið á þá og þeir stúderaðir eins og sagt er. Sigurður Karlsson, trommur Birgir telur sig hafa orðið fyrir nokkrum áhrifum frá Dave Klem Klemsson, sem var i Colosseum hér áður. „The Mug”, er eftir Gunnar. Textinn er hálfgerð fantasia um lif I vatnsfletinum. í þessu lagi er notað Moog. Er Svanfriður fyrsta Islenzka hljómsveitin, sem notar Moog í flutningi sinum. Það er nokkurs konar elektróniskt borð, sem gefur frá sér mismunandi tóna, sem siðan er hægt að afbaka á alla mögulega vegu. I þetta skipti var um að ræða tiu nótna borð, svokallaðan Mini-Moog. Kaupverð eins sliks er áætlað um 120 þús. krónur. Sá, sem notaður var við plötuupptökuna, var fenginn að láni, en væntanlega mun hljómsveitin festa kaup á einum áður en langt um liður. Auk Moogs eru pianó og kassagitar aðalhljóðfæri i „The Mug”. Lagið sker sig nokkuð úr. Þegar siðustu tónar þess deyja út, gefur að heyra aumingja, sem ku hafa villzt inn i stúdióið. Minna óhljóð hans mest á Pétur næturgala, enda kom á daginn, að hann hafði sloppið úr búrinu sinu og komizt inn i upptökusalinn, þar sem hann svo varla mátti mæla af hrifningu. Atvik, sem kemur öllum til að brosa, að minnsta kosti úti annað. „Piease Bend”, er samið af þeim öllum. 1 upphafi var þetta lag aðeins lltill rokkfrasi, sem skyndilfjga skaut upp kollinum i kollinum á Svanfriði. 1 raun eru flest lögin bara litlir rokkfrasar, sem siðan hefur verið smiðað utan um. Hvað trommuleik I stúdiói snertir, ber að hafa i huga, að trommuleikarinn verður að byrja á að venjast gjörsamlega nýjum hljómum úr hverri trommu. Þetta varð Sigurður að ganga i gegnum, og tók það hann stundum upp I þrjá tima að fá réttan hljóm úr trommunum. Svipuð stilling hjá hinum tók venjulega ekki nema fimmtán til tuttugu mínútur. Annað er, að trommuleikari verður raunveru- lega að leika á trommurnar við upptöku, en ekki berja þær af lifs og sálar kröftum, eins og oft vill bregða við á böllum. OPINBERUN 26 VIKAN 38.TBL,

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.