Vikan


Vikan - 14.12.1972, Page 8

Vikan - 14.12.1972, Page 8
BOXAR AUPPREISNIN í KÍNA En-Haí, banamaður þýzka sendiherrans, til vinstri, sendiherrann sjálf- ur, von Ketteler fríherra, til hægri. Kínverskur prins, Sjúng að nafni, ásamt þýzkum herforingjum á leið til að vígja minnismerki, sem kínversku stjórninni var gert að reisa eftir von Ketteler. Evrópuveldin, Bandaríkin og Japan höfSu beitt Kínverja mikilli kúgun og ásælni, meSal annars neytt þá til að leyfa frjálsan innflutning á ópíum. Reiði Kínverja fékk útrás í Boxarauppreisninni um aldamótin, þegar fjöldi kristinna lands- manna og útlendinga var myrtur af mikilli grimmd. Nú liggja allar leiðir til Pek- ing, og engir sækja fastar en leiðtogar hinna kapítalísku Vesturlanda að ná vináttu og viðskiptum við Maó formann. Ekki hafa Kínverjar alltaf ver- ið í slíkum hávegum hafðir á Vesturlöndum. Er skemmst að minnast þess, að reynt var að einangra Kína að frumkvæði Bandaríkjanna eftir byltinguna þar, og á nítjándu öld og tals- vert fram á þá tuttugustu urðu Kínverjar að sæta margs kon- ar þrengingum af hálfu Evr- ópustórveldanna, Bandaríkj- anna og Japans. Hvað mesta athygli í því sambandi vakti svokölluð Boxarauppreisn, sem gerð var kringum aldamótin. Boxararnir voru leynisam- tök, sem stofnuð voru í Kína þegar um 1770. Þau beindust upprunalega gegn keisaraætt- inni, en gerðust síðan fjand- samleg útlendingum að vestan, er þeir tóku að láta á sér kræla í Kína. Nafn tóku þau af her- merki sínu, sem var krepptur hnefi, kallaður „hnefi réttlæt- is og einingar“. Keisarastjórn- in, sem átti í vök að verjast gegn stórveldunum, gerði um síðir sáttmála við samtökin og veitti þeim stuðning í barátt- unni gegn „hvítu djöflunum“, eins og Kínverjar kölluðu Vest- urlandamenn. Þetta bandalag keisarastjórnarinnar og Boxar- anna var gert snemma árs 1900. í yfirlýsingu, sem Boxar- ar gáfu út í apríl það ár, stóð meðal annars „Útlendir djöflar eru komn- ir og hafa með kenningum sín- um snúið mörgum Kínverjum til rómversks siðar og mót- mælendatrúar . . . Kirkjur út- lendu djöflanna hegða sér þannig, að engu lagi er líkt. Þær hafa misnotað aðstöðu sína tillitslaust, spillt góðum embættismönnum og gert þá að þjónum sínum. Sími er kom- inn og járnbrautir. Líka hefur verið komið upp verksmiðjum, sem framleiða vopn og verjur, en þess háttar stofnanir vekja hvítu djöflunum illfúsa gleði. Sama er að segja um eim- vagnana og raflampana . . . Kína lítur aftur á móti á þá sem barbara, sem Guð hefur fordæmt. Andar og árar stíga af himnum ofan til að tortíma þeim . . . Við verðum að brenna hús útlendinganna og endurreisa hof okkar forn.“ Hatur Kínverjanna beindist ekki hvað sízt að diplómata- hverfinu í Peking, þar sem stórveldin höfðu reist sendiráð sín innan þykkra og hárra múr- veggja. Þaðan var öllu braski þeirra víðs vegar um Kína stjórnað. Nánar tiltekið höfðu þá Bandaríkin, Belgía, Þýzka- land, Frakkland, Bretland, Hol- land, ítalía, Japan, Austurríki —Ungverjaland, Rússland og Spánn sendiráð í Peking, og var sendiráðahverfið um tólf ferkílómetrar að víðáttu. Þegar bér var komið höfðust þarna við um fimm hundruð útlend- ingar, þeirra á meðal varð- menn sendiráðanna, og um tvö þúsund og fimm hundruð Kín- verjar, sem flestir höfðu flúið þangað undan Boxurunum. Boxararnir höfðu byrjað að láta á sér kræla úti á landi alll.öngu áður en þeir komu til sjálfrar höfuðborgarinnar. Þeir höfðu myrt margt hvítra manna á hinn fúlmannlegasta hátt, þar á meðal um fjörutíu kristniboða. Höfuð þeirra 8 VIKAN 50. TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.