Vikan

Issue

Vikan - 22.11.1973, Page 22

Vikan - 22.11.1973, Page 22
umsjón: eva vilhelmsdóttir tízkuhönnudur Flestir islenzkir karlmenn kannast við þá hlægilegu kröfu dyravarða samkomuhúsanna, um hálstau og, jakka eða viðkvæði þeirra:, ,,þú ert í gallabuxum, — út! Erlendir ferða- menn reka upp stór augu sem von- legt er, því þessar kröfur þekkjast ekki í öðrum stórborgum sérstak- lega þar sem unga fólkið skemmfir ser. Hér heima er unga fólkið það stór hópur viðskiptavina skemmti- staðanna, að raunar væri það ekki nema sjálfsögð þjónusta, að alla vega fylgjast með tímanum, og kynnast hvernig unga fólkið klæðir sig í dag. Hér á síðunum má sjá nokkur dæmi um frjálslegan og ó- hátíðlegan herrafatnað, þar sem hálstau er látið lönd og leið. Hér vinstra megin er sjalkraga- peysa þar sem skyrtukraginn er brettur utanyfir. Hægra megin, tveirstoltir í peysusettum. Grófir peysujakkar eins og þessir á neðri myndunum verða mjög vinsælir í vetur.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.