Vikan

Eksemplar

Vikan - 22.11.1973, Side 33

Vikan - 22.11.1973, Side 33
VINSÆLD AKOSNIN G Akveðið hefur verið, að efna til vinsældakosningar á vegum þáttarins. Fyrirkomulag keppninnar verður á þann veg, að þær hljómsveitir, sem áhuga hafa á að taka þátt i keppninni, til- kynna þátttöku sina til þáttarins. t blaðinu, sem kemur út 6. desem- ber, sem er 49. tbl og jafnframt jólablaðið, verður listi yfir hljóm- sveitirnar og meðlimi þeirra, ásamt kosningaseðli. Kosið verður um: 1. Beztu og vinsælustu hljóm- sveitina (lita verður svo á, að vin- sælasta hljómsveitin sé einnig bezt) 10 ár verið viðriðinn tónlist og tón listarmál hérlendis, þó ejcki sé þar beint um sinfóniuna að ræða. Einar hefur, ásamt Jónasi Jónssyni, gefið út eina L.P. plötu og fjórar litlar plötur. Tónlistin á öllum þessum plötum hefur verið frumsamin af Einari Vilberg. beim félögum var og boðið til Japan i söngvakeppni á vegum tónlistardeildar Yamaha. A meðan dvöíinni stóð i Japan, léku þeir félagar og sungu inn á eina litla plötu, sem enn hefur ekki verið gefin út hérlendis. Lögin á plötunni eru að sjálfsögðu eftir Einar Vilberg, en kostnaður allur við upptökuna var greiddur af Yamaha. Sú ákvörðun forráðamanna Tónlistarskólans að taka umsókn Einars i skólann, ekki til greina. vekur nokkra furðu. A þvi leikur ekki nokkur vafi, að einhvern tima hafa verið teknir minni hæfileika menn i skólann en Einar, svo hvers vegna ekki hann.? Og Einar var með álit sitt á Tón- listarskólanum á hreinu. ,,Tón- listarskólinn”, sagði hann,,, hann er bara uppeldisstöð fyrir sin- fóniuna”. 2. Bezta lagasmiðinn Bezta lag ársins (útgefið á hljóm- plötu, litilli eða stórri) 4. Bezta söngvarann 5. Beztu söngkonuna Viðameiri er ekki hægt að hafa kosninguna að þessu sinni. Kosningaseðillinn verður aðeins birtur i jólablaðinu, en upplag þess er helmingi meira en venja er til. Frestur til að skila seðium er til áramóta. Dregið verður úr þeim seðlum, sem berast þættinum. Kjósandi setur bára eitt nafn við hvert atriði, þ.e. tilnefnir bara einn, sem bezta söngvarann, aðeins eina hljómsveit, sem beztu hljómsveitina o.s.frv. Þegar úrslit eru fengin verður safnað saman þeim seðlum, sem hafa þau fimm nöfn, sem hlutu fyrsta sæti. Þ.e. safnað saman kosningaseðlum frá kjósendum, sem kosið hafa þá hljómsveit, lag og einstaklinga, sem hlutu fyrsta sæti. Úr þeim seðlum verður dregið eitt nafn og hlýtur sá eða sú verðlaun, sem eru allar islenzkar rokk og popphljóm- plötur, sem út hafa komið á árinu 1973. Úr hinum seðlunum verða dregin önnur og þriðju verðlaun. og eru þau einnig hljómplötur. John Miles Capricorn og Júdas Þegar þessar linur eru ritaðar, standa fyrir dyrum miðnætur- hljómleikar i Austurbæjarbiói með ofangreindum listamönnum. John Miles er gjörsamlega óþekktur hérlendis, en á að þvi bezt er vitað, vaxandi fylgi að fagna i heimalandi sinu, Englandi. Er nú að sögn, aðeins beðið eftir þvi að hanrt slái i gegn með einhverju góðu lagi. Micky Most er maður nefndur og kallast i Englandi producer eða framleiðandi. Hann hefur „pródúserað” marga fræga kappa m.a Herman Hermits og Animals. Hann hefur nú augastað á John Miles og hefur væntanlega komið hingað upp til að fylgjast með framvindu mála. En ekki skal ég skrifa meira um það, sem ekki er enn orðið að veruleika. Nánar verður greint frá hljóm- leikunum i næsta þætti. GEORDIE Can you do it Can you do it Do it like you did last night Can you do it Can you do it Do it like you did last night Oh oh sure felt right Oh oh sure felt right Can you hold me, can you hold me Hold me like you did last night Can you love me, can you love me Love me ’cause it sure felt right Oh oh sure felt right Oh oh sure felt right So come on come on come on come on Keep moving Come on come on come on come on Keep grooving Can you hold me Can you liold me Hold me like you did last night Can you squeeze me Can you tease me Oh yeh sure felt nice Oh oh sure felt right Oh oh sure felt right So come on come on come on come on Keep moving Come on come on come on come on Keep grooving Can you do it Can you do it Do it like you did last night Can you do it, can you do it Do it like you did last night Oh oh sure felt right Oh oh sure felt right Oh last night Yeh you did it last night Elton John, Rod Stewart og David Cassidy, stórstirni hins enska poppheims, hafa bundist vinaböndum, að þvi að fregnir herma af meginlandinu. Elton og David hittust nú i sumar, þegar þeir voru á ferðalagi i Kaliforniu. Siðan þá hafa þeir verið góðir vinir og Rod var tekinn i hópinn nú fyrir skemmstu. Myndirnar, sem hér fylgja, voru teknar þegar blaðamönnum var boðið i heim- sókn á sveitasetur Eltons i Surrey á Suður-Englandi. Roy Wood heldur sinu striki i músikinni og ekki vantar múnder inguna þegar hann kemur fram á sviði. Hann sagði i viðtali fyrir stuttu, þar sem hann var spurður um sitt af hverju, að hljómsveitin Move, sem hann var einn höfuð- paurinn i, tilheyri fortiðinni. Það, sem hann sé að gera i dag, sé það sem mestu máli skipti. Þegar hann var spurður um hvern hann teldi vera konung rokksins, sagði hann að sá héti Elvis Presley. Hann væri sá eini, sem taíist gæti konungur rokksins og sá eini, sem hefði skapað sinn feril sjálfur. Myndin hér með, synir Roy i svið- staujinu. Já, og einu má ekki gleyma. Hann hefur hlotið viður- nefni 1 bransanum. Hver man ekki eftir forsiðunni á nýjustu L.P plötunni hans, Wizzard? Þaðan er það vist komið, hann hefur verið kallaður „Eldabuska djöfulsins”. John Lord höfuðpaur Deep Purple, hefur tekist á hendur hljómleikaferðalag'með Sinfóniu- hljómsveit Luxemborgar. Ferð- inni er heitið til, Köln og Munchen og verkið, sem flytja skal er eftir John Lord og heitir Gemini svitan. David Cassidy: 47. TBL. VIKAN 33

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.