Vikan

Issue

Vikan - 27.11.1975, Page 33

Vikan - 27.11.1975, Page 33
eiginmann, en þeir, sem renndu hýru auga til auðsfa hennar og glæsileika Selton Hall, uppskáru ekki annað en fyrirlitningu hennar. Hún hafði því hafnað hverjum biðlinum S fætur öðrum og smám saman orðið að þessari gráklæddu einsetu- konu, fangi stolts slns og endurminn- inga. Vindinn lægði sem snöggvast, og utan úr garðinum heyrðist dauf bjölluhringirrg.Stóri hundurinn, sem lá og svaf við fótskör konunnar með'trýnið falið milli framlappanna, opnaði annað augað og blimskakkaði því á húsmóður sína. Hann gaf frá sér lágt urr. ,,Þegiðu,” muldraði Ellis og lagði höndina á höfuð hundsins. Þetta var sjálfsagt einhver af þjónustu- fólkinu að koma seint heim eða leiguliði að finna Jim gamla. Hún strauk iðju leysislega silki- mjúkan feld hundsins og reyndi að ná upp aftur hugsunarþræðinum, þar sem frá var horfið, en hundurinn var enn órólegur. Hann sperrti eyrun og virtist hlusta með athygli, eins og hann væri af eðlisávísan sinni að fylgjast með ferð komumannsins í gegnum garðinn. Að lokum var hegðun hans orðin svo áberandi, að hún gat ekki orða bundist. ,,Skyldi vera kominn gestur? Hver getur það vcrið á þessum tíma sólar- hrings?” En eftir fáein andartök kom Parry, þjónninn hennar, hljóðlátlega inn, og þar með fékk hún svar við spurn- ingunni. Yfir Parry hvíldi venjulega tignarleg ró, en nú virtist hann taugaóstyrkur. ,,Það er maður úti fyrir, frú mín kominn Iangt að og óskar að ná tali af yður ,,Hver er það? Hvað er honum á höndum? Hvað er að Parry?” ,,Hann er ekki einn af þessum venjulegu gestum, frú mín, alls ekki. Sannleikurinn er sá, að það var einungis vegna þrákelkni hans, að ég ákvað að trufla yður.” ,,Komdu þér að efninu!” sagði hún og bankaði óþolinmóð með stafnum I gólfið, ,,ef þú heldur svona áfram kemst ég aldrei að raun um hvað er á seyði. Og þar sem þú hefur ,,ákveðið að trufla mig”, er eins gott að ég fái að vita hvers vegna.” Þjónninn virtist hálfruglaður I rlminu og Hkamshreyfingar hans gáfu til kynna vanþóknun hans. En um leið og hann svaraði leyndi fyrir- litningin I rödd hans sér ekki. ,,Þetta er fransmaður, frú mín, kaþólskur prestur. Hann virðist vera með kornabarn -” ,,Hvað! Ertu genginn af vitinu Parry?” Ellis reis á fætur. Andlit hennar var jafn grámyglulegt og kjóllinn, og blá augun undir þungum auga- Teppi yfir allt gólfið-eða stök teppi PERSIU Skeifan 11 - sími 85822 48. TBL. VIKAN 33

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.