Vikan - 27.11.1975, Blaðsíða 56
íiug dreymdi
í FLUGVÉL.
Kæri draumráðandi!
Ég ætla að biðja þig að ráða þennan draum fyrir
mig, en hann dreymdi mig aðfararnótt 12. ágúst síðast-
liðins.
Mér fannst ég vera stödd á Reyk.javíkurflugvelli og
var að þíða eftir flugvél. Ég var á leiðinni eitthvert
til útlanda, og beið margt fólk eftir því, að vélin
kæmi úr flugi. Ég leit upp í loftið og sá vélina koma.
Þegar hún var í þann veginn að lenda, hrapaði hún
allt í einu og fannst mér endilega eins og eitthvað
væri að hjólunum, en eigi að síður tókst henni að
lenda og enginn slasaóist. Því næst kom fólkið
út úr vélinni og sá ég, að það var mjög hrætt. Mér
fannst ég fara upp í vélina og fleira fólk, uns hún
var orðin þéttsetin farþegum. Svo kom flugfreyjan í
búningi og á eftir henni kom flugmaðurinn, en hann
var ekki einkennisklæddur, heldur í dökkum buxum
og grárri peysu og með gleraugu. Mér fannst
eins og ekkert skilrúm væri milli stjórnklefans og far-
þegarýmis. Það var ákaflega skýjað og hvasst, og þegar
ég leit út um gluggann sá ég, að farið var að snjóa, flug-
brautin var orðin hvít og mér fannst hún vera renn-
blaut undir snjónum. Svo var vélinni ekið af stað
eftir flugbrautinni alveg út á enda, þar var henni snúið við
og ekið hægt til baka. Ég var viss um, að eitthvað
væri að og var orðin mjög hrædd. Allt í einu fannst
mér ég vera með tvö börn í fanginu, son minn og yngri
telpu, sem mér fannst ég eiga líka.
Ég heyrði flugmanninn segja: Það er eitthvað að
hjólinu, en svo bætti hann við: Það getur ekki verið,
því að vinur minn (hann nefndi hann með nafni og
hvers son hann væri, en ég man ekki nafnið) er
búinn að gera við hjólin. Við þetta varð ég afskaplega
hrædd, en nú var búið að stöðva vélina og þeir, sem
vildu, máttu fara út. Fólkið tróðst af stað út, en
ég sat kyrr með börnin í fanginu og hélt þeim
afskaplega fast, og mér fannst ég hugsa: Við förum
þá öll, ef eitthvað kemur fyrir. Svo fór ég að biðja
fyrir okkur og síðan taldi ég, hve margir væru eftir í
vélinni. Það voru tíu manns eftir, þegar vélin fór
aftur af stað. Henni var ekið niður brekku, og við
brekkuræturnar stöðvaði flugmaðurinn hana og fór út
til að athuga hjólin. Þá varð mér litið út um glugg-
ann og sá þá flugmann og flugfreyju koma gangandi,
og tók ég sérstaklega eftir því, að þau voru einkennis-
klædd. En allt í einu fóru flugmennirnir að slást, og
sá í búningnum hafði betur, og ég vaknaði, þegar hann
henti hinum niður.
Meðkveðju. G.B.
Þessi draumur er fyrir því, að þú sækir um nýtt
starf, og verður ásamt nokkrum öðrum valin í það
úr stórum hópi umsækjenda.
HÖND HINS ILLA.
Kæri draumráðandi!
Ég ætla að biðja þig að ráða fyrir mig draum, sem
mig dreymdi fyrir skömmu.
Ég var að kaupa miða inn á dansleik og var með
sænskan fimmkrónuseðil, en þegar ég var að borga,
margfaldaðist fjárhæðin í höndunum á mér, og var
ég allt í einu komin með stóran bunka af fimmkrónu-
seðlum í hendurnar.
Ég spurði mann, sem var þarna, hvernig á þesssu
stæði, en hann sagði, að djöfullinn væri þarna með
■mér, og ég mætti ekki nota peningana, heldur ætti
ég að losa mig við þá með því að setja þá inn í stein-
vegg og leggja stein ofan á þá.
Ég ætlaði að leita ráða hjá presti, og fór til kirkju.
í anddyrinu komu tvær konur á móti mér og tóku
í höndina á mér, og þá fékk ég sting í höndina,
því að ég vissi, að þetta var tákn djöfulsins, og hrópaði
upp yfir mig: Hönd djöfulsins. Þá beindu þær að
mér regnhlíf og ætluðu að drepa mig, en í þeim svifum
vaknaðiég.
Meðkveðju, H.B.
í þessu draumi eru tvö aðaltákn, sem ekki virðast
eiga margt sameiginlegt. Annað bendir til þess, að þú
verðir fyrir einhverju fjárhagslegu tjóni og hitt til þess,
að þú munir lifa lengi við hestaheilsu.
TVEIR DRAUMAR D.H.J.
Komdu sæll herra draumráðandi!
Mig langar til þess að biðja þig um að ráða fyrir
mig tvo drauma. Ekki birta nöfn þeirra, sem koma
fram í draumnum, og ekki heldur fyrsta stafinn í
nafninu þeirra.
Fyrri draumurinn var á þessa leið:
Ég, systir mín, frænka mín og vinkona mín vorum
að fara til .... og við lögðum af stað með... En
svo var eins og við værum á lítilli jullu þarna úti á
sjó og .... að fara framhjá okkur. Þá kom mamma á
trillu og var .... með henni. Svo var eins og ... og
... væru að synda, en ég og ... að hoppa og vagga
trillunni.
Svo vorum við komin til ... og vorum að fara til ...,
en pabbi ætlaði að sækja okkur. Hann gekk inn
í eitthvert herbergi og ég á eftir, en nam staðar til að
kveðja ... með kossi, en hann svaraði kossi mínum og
sagði bless.
Draumurinn varð ekki lengri.
Síðari draumurinn var svona:
Ég var á gangi úti á götu. Þá kom bróðir minn
á jeppa og ... með honum. Bróðir minn tók mig
upp í bílinn og ég sat aftan við ... Ég hvíslaði að
honum: Ég þarf að sýna þér dálítið á eftir, og
hann brosti til mín. Þetta var þó alls ekki það, sem ég
ætlaði að segja, heldur: MYNDIN ER SVO GÓÐ!
HÚN ER Á BORÐINU HJÁ MÉR!
Með fyrirfram þakklæti og von um þirtingu. D.H.J.
Fyrri draumurinn virðist mér vera fyrir ótrúlega
mikilli velgengni þinni efnalega, því að þú ert sannar-
lega ekki ein þeirra, sem leggja kapp á að koma sér
áfram eins og það er kallað. Hinn síðari er öllu
torráðnari. Líklega er hann þó fyrir einhverju happi,
en ekki þó stóra vinningnum í happdrættinu, heldur ein-
hverju smærra í sniðum.