Vikan - 04.12.1975, Blaðsíða 45
Jólagetraun Vikunnar er árviss viðburður, sem eng-
inn vill láta niður falla. Þrautin í ár er eins konar
púsluspil, sem birtist í átta myndum, tvær myndir
í hverju blaði. Allar myndirnar sýna einhver
skemmtileg atvik úr jólaundirbúningnum, og með
hverri þeirra birtist stykki úr einhverri af hinum
sjö myndunum. Myndirnar eru merktar með
tölustöfum, en púslustykkin með bókstöfum. Nú
þegar allar myndirnar átta hafa birst, klippið þið út
myndirnar og stykkin, og þá ætti að vera auðvelt
að sjá, hvaða stykki passa við hverja mynd.
Svo skrifið þið á getraunaseðilinn, hvaða myndir
heyra saman, með því að nefna fyrst tölustaf mynd-
arinnar og síðan bókstaf púslustykkisins. Þetta
er auðveldur og skemmtilegur leikur, sem allir
geta tekið þátt í. Góða skemmtun!
am
ATHUGIÐ:.
Þetta er síðasti hluti getraunarinnar. Nú er að
skrifa á getraunaseðilinn, hvaða myndir heyra
saman með því að nefna fyrst tölustaf mynd-
arinnar og síðan bókstaf púslustykkisins.
Sendið lausnirnar til VIKUNNAR, PÓSTHÓLF
533, REYKJAVÍK og merkið umslagið ,,JÓLA-
GETRAUN". Athugið, að lausnir eru því
aðeins teknar til greina, að þær séu skrifaðar
á getraunaseðilinn í blaðinu sjálfu. Skilafrest-
ur er til 15. desember. Vinningar verða af-
hentir fyrir jól og sendir í pósti þeim, sem búa
utan Reykjavíkur.
___ Snati hefur líklega fundið
lyktina af kjötbeininu, sem hann
á að fá í jólagjöf.
__Hver átti eiginlega hugmynd-
ina að því að gefa stráknum
læknistösku í jólagjöf?
tSi
49. TBL. VIKAN 45