Vikan - 04.12.1975, Blaðsíða 86
Einkaumboð:
Karl K. Karlsson,
Tjamargötu 10 A,
simi 20350.
SANA HF. AKUREYRI
Thule
Thule
Thule
BLANDAÐUR
SYKURSNAUÐUR
Appelsin og ananas
Framleiddur
úr hreinum
appelsínusafa
100 gromm af
óblönduðum
safa
inniheldur
l aðeins 105
hitaemingar
saman og hún vissi ekki nema hún
hefði sagt eitthvað heimskulegt.
Eftir veiðiförina þennan dag lét
hann ekki sjá sig um tíma. Snögg
veikindi frænku hennar urðu líka
til þess, að Marianne hafði um annað
að hugsa. Svo var það eitt kvöld
tveimur dögum áður en hún dó,
að lafði Ellis bað systurdóttur sína
um að finna sig.
,,Ég veit, að ég er að dauða komin
barnið mitt,” sagði hún. ,,en ég
mun fara í friði, vegna þess að ég
veit, að ég mun ekki skilja þig
eina eftir.”
„Hvað áttu við?”
„Francis hefur beðið um hönd
þína, og þú átt að giftast honum.”
„Hönd mína? En hann hefur
aldrei minnst á það við mig.”
„Hættu þessu blaðri. Ég á ekki
langt eftir, og hann er maður,
sem mun áreiðanlega gera þig ham-
ingjusama. Hann er nú tuttugu
og átta ára gamall og mun veita
þér þá leiðsögn og stuðning, sem þú
þarfnast. Auk þess mun ég bæta
fyrir vangá örlaganna með því að
koma ykkur saman. Francis er með
öllu eignalaus, en er hann hefur
gengið að eiga þig, mun hann kom-
ast yfir allar eignir Seltonanna til
jafns við þig. Og er ég hvíli
þarna fyrir handan í garðinum mun
ég gleðjast yfir því að vita af ást-
kæru heimili mínu í ykkar höndum.
Á þann hátt mun ég aldrei að fullu
yfirgefa ykkur. ’ ’
Framhald i næsta blaði
86 VIKAN 49. TBL.