Vikan - 04.12.1975, Blaðsíða 58
Svefnbekkir í úrvali á verksmiðjuverði.
4 gerðir 1 manns
1 gerð 2ja manna.
Fallegt áklæði.
Tilvalin jólagjöf.
Sendum gegn póstkröfu.
SVEFNBEKKJA
Höfðatúni 2 — Sími 15581
Reykjavík
ísafjörður er sögufrægur bær. Þegar minnst er á þennan
höfuðstað Vestfjarða, koma upp í hugann nöfn eins og
Hannes Hafstein, Skúli Thoroddsen og Vilmundur Jónsson.
Flest er ágætt um þessa menn að segja, en för okkar
vestur á ísafjörð fyrir nokkru var þó alls engin pílagrímaför
á slóðir þeirra, heldur fýsti okkur að kynnast örlítið lífinu,
sem nú er lifað á Isafirði, og heyra viðhorf þeirra, sem nú
byggja staðinn. Meðal þeirra, sem við tókum tali, voru
Jón Jónsson klæðskeri, Ragnar H. Ragnar skólastjóri hins
blómlega tónlistarskóla ísfirðinga, Jón Baldvin Hannibalsson
skólameistari Menntaskólans á ísafirði og kona hans Bryndís
Schram. Þá heimsóttum við húsmæðraskólann Ósk á
ísafirði, og við lögðum leið okkar inn í ísafjarðardjúp,
þar sem við heimsóttum ungan bónda. Árangur vestur-
fararinnar mun birtast í næstu blöðum Vikunnar, en fyrst
bregðum við upp nokkrum svipmyndum úr förinni,
Fyrrum dbnsk verslun á hafirði. Þetta hús var byggt í kringum 1750,
og nú býrþar skólastjóri lðnskólans á ísafirði.
58 VIKAN 49. TBL.