Vikan - 04.12.1975, Blaðsíða 27
,,Es ist recht _ es ist recht!"l)
hrópaði hann og sló saman hönd-
unum. Þarna vottaði þó fyrir neista
af þeirri glaðvaerð, sem hann vildi
vekja.
Drengurinn belgdi gúlana og ætl-
aði að fara að blása aftur. Þá
sá hann, að öll börnin horfðu hvasst
á hann. Hann hætti þá, og var
ófáanlegur til þess framar.
Sorg heimilisins lá okkur eins og
bjarg. Fyrir tveim dögum hafði lík
staðið uppi í þessari stofu. Og nú
áttum við að fara að dansa þar,
skrækja á hljóðpípur og ómast. —
Nei, það gátum við ekki.
Allt vorum við reiðubúin að gera
fyrir gamla manninn annað en það,
að leika okkur kringum sorg hans.
Þetta var okkur meira og minna ljóst,
og þótt eitthvert okkar hefði gleymt
þvl, minnti svartklædda stúlkan,
fríða og litverpa, okkur á það, sem
var líka að reyna að vekja glaðværð-
ina. Og ef hana bar ekki fyrir okkur
I svipinn, þá voru þar einnig þrjú
svartklædd börn.
Hitt skildum við ekki, að við hefð-
um gert honum mikla gleði með því.
Alvaran og samhryggðin greip
okkur meira og meira. Við gátum
ekki um annað hugsað en sorg þessa
vinar okkar. Við vissum það og
fundum, að hann tók sér mjög nærri
þessa viðleitni til að skemmta okkur.
Við kenndum svo innilega í brjósti
um hann, og við hugsuðum til þess
með iðrun, að við höfðum stundum
ert hann og hermt eftir honum,
þótt það væri i sakleysi.
Ein telpan skar upp úr og fór að
gráta.
,,Ég vil fara heim!” sagði hún
kjökrandi, þegar hún var spurð um,
af hverju hún væri að gráta.
Þá var okkur öllum lokið. Sum
fóru að gráta, en sum viknuðu, svo
þau gátu ekkert sagt.
Þá komu undarlegir kippir í and-
lit gamla mannsins. Hann sneri
sér frá okkur og þurrkaði augun,
en stillti sig þó.
Þegar við kvöddum hann, faðmaði
hann okkur að sér, eins og hann
ætti hvert bein í okkur, og kvaddi
okkur öll með kossi. Tárin hrundu
niður andlitið á honum. Þó fundum
við, að hann var í raun og veru að
þakka okkur fyrir eitthvað.
Hann fann það og vissi, að það
var af hluttekningu í sorg hans,
að við gátum ekki skemmt okkur.
Þessi samkoma hefði fengið allt
annan blæ en hann hafði ætlast til
og búist við. En ég er viss um,
að hann hefir oft hugsað hlýlega
til okkaí síðan.
Ekkert vermir hjörtu mannanna í
sorgum þeirra cins og hluttekning
annarra manna, og hluttekning
barnanna er sönn og einlæg.
Mörg jólakveld eftir þetta
komum við saman við jólatré gamla
Behrings. En þetta kveld mun verða
okkur öllum minnisstæðast, því að
það var fátækast af léttúð og galsa,
en ríkast af göfugum tilfinningum.
.O'
^GNAV^
% AXELS i
EYJOLFSSONAR
Smiöjuvegi 9 Kópavogi sími 43577
Klæöaskápur
frá okkur
er lausnin...
Hægt er að fá
skápana óspónlagða,
tilbúna
að bæsa eða mála
/Jlu'f
úff^
... ojí vandfundnir eru hentugri
klæðaskápar livað samsetningu
og aðra góða eiginleika varðar.
Litmyndabæklingur
um flestar gerðir klæðaskápa,
samsetningu, stærðir, efni og
verð ásamt öðrum upplýsingum.
Allar gerðir klæðaskápa
eru til í teak, gullálmi og eik.
[ Vinsamlegast sendið mér nýja litmyndabæklinginn
I um klæðaskápana.
Nafn:----------------- ------------------------
SkrifiS meS prenlsföfum
í
Heimilisfang:.
^ Húsgagnaverslun Axels Eyjólfssonar, SmiSjuvegi 9, Kópavogi. |
1) Það er rétt.
49. TBL. VIKAN 27