Vikan

Tölublað

Vikan - 04.12.1975, Blaðsíða 83

Vikan - 04.12.1975, Blaðsíða 83
brjóstin var hann dreginn inn með keðju úr fornum, marglitum eðal- steinum, sem var í stíl við hárband hennar. Löng slxða kórónaði svo þessa mynd, sem var undraverð í einfaldleik sínum, en áhrifin voru ekki síst vegna þess líkamsvaxtar, sem fötin huldu. Ivy St. Albans hafði eins og margar enskar konur farið að klæðast mússulíni bæði vetur og sumar, vegna þess að það var vitað, að Napoleon hefði ímugust á því, og hirðmeyjum hans var harðbannað að vera í kjólum úr því efni. Marianne gat ekki ímyndað sér Ivy I öðru en mússulíni. Hún hafði verið í hvítum kjól úr mússu- líni, þegar Marianne sá hana I fyrsta sinni á síðastliðnu sumri I Bath. Lafði Ellis hafði teymt Marianne önuga og á móti vilja sínum frá skógunum, sem henni þótti svo vænt um, I þeim tvíbenta ásetningi að leita sjálfri sér lækningar og jafnframt að koma henni á framfæri I sam- kvæmislífinu. En henni hafði fund- ist hún eins og illa gerður hlutur innan um 'þennan aragrúa af hátt- prúðu fólki, sem þyrptist að hinni frægu heislulind. Hávaðinn var of mikill og sömuleiðis fólksmergðin og mikið þvaður og glymjandi. Kon- urnar fóru fram úr sjálfum sér I klæðaburði, og svo voru það allir spjátrungarnir, lífsleiðir og tómlátir I framkomu, en eina ástrrða þeirra var spilafíknin. Og svo var það einn morgun, að konurnar tvær óku niður Milson stræti eftir að hafa gert innkaup. Allt I einu kallaði lafði Ellis upp yfir sig og bað ekilinn um að stansa. Tvær manneskjur gengu fram hjá, og hjarta Mariannes tók að slá örar. Konan var vissulega falleg. Hún var I einföldum hvítum kjól og með und’ursamlegan stráhatt, sem var hul- inn flngerðu slöri. En Marianne veitti henni ekki þessa athygli nema til þess að öfunda hana af mannin- um, sem hún var I fylgd með. Hann var án efa myndarlegasti mað- urinn, sem hún hafði nokkru sinni augum litið. Auk þess var það að honum, sem hinni ofsafengna upp- hrópun var beint. ,.Francis, Francis Cranmere! Kæri vin, en hvað er gaman að sjá þig aftur. Þú ætlar þó ekki að segja mér, að þú þekkir mig ekki?” Lögulegur en lltilsvirðandi munn- ur herramannsins sveigðist Htið eitt og loks brosti hann. ,,Lafði Selton!” Hann þekkti hana undir eins. „Hvernig gastu ímyndað þér, að ég þekkti þig ekki? í Englandi er yfirfullt af konum, en það er aðeins ein Ellis Selton. Ég 1 er þér ávallt til reiðu mln kæra.” Hann tók ofan bifurskinnshattinn, sem hann hafði borið dálltið á skjön, en því næst hneigði hann sig djúpt Vogar- 24. sept. — merkið 23. okt. Reyndu að láta ekki þitt slæma skap bitna á öðrum. Það er ekki sennilegt, að það verði þér að nokkru gagni, þótt þér takist að koma öðrum I annað eins ástand og kvelur þig þessa dagana. Jóla- skapið virðist satt að segja harla fjarri þér þessa dagana. Dreka- 24. okt. — merkið 23. nóv. Hafðu hugfast að tækifærin eru ckki allt- af á hverju strái. Ef þú grlður þau ekki þegar þau bjóðast, gætir þú séð eftir þvl seinna. Gættu þín á öllum misskilningi, sem gæti skotið upp kollinum milli þln og þinna nánustu. Ef ekki er reynt að jafna málin strax, er það kannski orðið um seinan. Bogmanns- 23. nóv. — merkið 21. des. Við horf þitt gagn- ^vart llfinu og tilver- unni er mjög jákvætt um þessar mundir. Hlustaðu vandlega á það, sem aðrir hafa til málanna að leggja, það verður þér nota- drýgra en gæti virst við fyrstu sýn. Gættu ítrustu varkárni I sam- skiptum þínum við eldri ættingja. Geitar- 22. des. — merkið 20. jan. Þú streitist ákaft gegn ímynduðum hindr- unum. Það er mis- skilningur, að aðrir séu að leggja stein í götu þína, þinn eiginn vilji er stærsta hindrunin. Þínir nánustu þarfnast meiri umhyggju en áð- ur, reyndar virðist þú hafa töluverða ánægju af að snúast I kring- um einhvern. Vatnsbera- 21. jan. — merkiö 19. febr. Gæfan virðist hafa snúist þér I hag ótrú- lcga snögglega. Þrátt fyrir það vcrður þú að gæta ítrustu varkárni, annars gætir þú lcnt á hálum Is. Sjálfsöryggi cr kostur, ef því er haldið innan skynsam- lcgra takmarka. Hugs- un þln er óvenju skýr og ákveðin, hafðu framkvæmdirnar I fullu samræmi. Fiska- 20. febr. — merkið 20. marz Eyddu ekki starfskröft- um þínum og tlma I ónauðsynlcga hluti. Kynntu þér hina ýmsu möguleika og skipu- lcggðu tírna þinn alv- cg frá nýju sjónarhorni Þcr hættir til að láta undirbúning jólanna varpa skugga á sjálfa hátíðina, fjölskyldu þinni til mikilla leið- inda. 49.TBL. VIKAN 83
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.