Vikan - 04.12.1975, Qupperneq 83
brjóstin var hann dreginn inn með
keðju úr fornum, marglitum eðal-
steinum, sem var í stíl við hárband
hennar. Löng slxða kórónaði svo
þessa mynd, sem var undraverð í
einfaldleik sínum, en áhrifin voru
ekki síst vegna þess líkamsvaxtar, sem
fötin huldu. Ivy St. Albans hafði
eins og margar enskar konur farið
að klæðast mússulíni bæði vetur og
sumar, vegna þess að það var vitað,
að Napoleon hefði ímugust á því,
og hirðmeyjum hans var harðbannað
að vera í kjólum úr því efni.
Marianne gat ekki ímyndað sér
Ivy I öðru en mússulíni. Hún
hafði verið í hvítum kjól úr mússu-
líni, þegar Marianne sá hana I fyrsta
sinni á síðastliðnu sumri I Bath.
Lafði Ellis hafði teymt Marianne
önuga og á móti vilja sínum frá
skógunum, sem henni þótti svo vænt
um, I þeim tvíbenta ásetningi að leita
sjálfri sér lækningar og jafnframt
að koma henni á framfæri I sam-
kvæmislífinu. En henni hafði fund-
ist hún eins og illa gerður hlutur
innan um 'þennan aragrúa af hátt-
prúðu fólki, sem þyrptist að hinni
frægu heislulind. Hávaðinn var of
mikill og sömuleiðis fólksmergðin og
mikið þvaður og glymjandi. Kon-
urnar fóru fram úr sjálfum sér I
klæðaburði, og svo voru það allir
spjátrungarnir, lífsleiðir og tómlátir
I framkomu, en eina ástrrða þeirra
var spilafíknin.
Og svo var það einn morgun, að
konurnar tvær óku niður Milson
stræti eftir að hafa gert innkaup.
Allt I einu kallaði lafði Ellis upp
yfir sig og bað ekilinn um að stansa.
Tvær manneskjur gengu fram hjá,
og hjarta Mariannes tók að slá örar.
Konan var vissulega falleg. Hún
var I einföldum hvítum kjól og með
und’ursamlegan stráhatt, sem var hul-
inn flngerðu slöri. En Marianne
veitti henni ekki þessa athygli nema
til þess að öfunda hana af mannin-
um, sem hún var I fylgd með.
Hann var án efa myndarlegasti mað-
urinn, sem hún hafði nokkru sinni
augum litið. Auk þess var það að
honum, sem hinni ofsafengna upp-
hrópun var beint.
,.Francis, Francis Cranmere! Kæri
vin, en hvað er gaman að sjá þig
aftur. Þú ætlar þó ekki að segja
mér, að þú þekkir mig ekki?”
Lögulegur en lltilsvirðandi munn-
ur herramannsins sveigðist Htið eitt
og loks brosti hann.
,,Lafði Selton!” Hann þekkti
hana undir eins. „Hvernig gastu
ímyndað þér, að ég þekkti þig ekki?
í Englandi er yfirfullt af konum, en
það er aðeins ein Ellis Selton. Ég
1 er þér ávallt til reiðu mln kæra.”
Hann tók ofan bifurskinnshattinn,
sem hann hafði borið dálltið á skjön,
en því næst hneigði hann sig djúpt
Vogar- 24. sept. —
merkið 23. okt.
Reyndu að láta ekki
þitt slæma skap bitna
á öðrum. Það er ekki
sennilegt, að það verði
þér að nokkru gagni,
þótt þér takist að
koma öðrum I annað
eins ástand og kvelur
þig þessa dagana. Jóla-
skapið virðist satt að
segja harla fjarri þér
þessa dagana.
Dreka- 24. okt. —
merkið 23. nóv.
Hafðu hugfast að
tækifærin eru ckki allt-
af á hverju strái. Ef þú
grlður þau ekki þegar
þau bjóðast, gætir þú
séð eftir þvl seinna.
Gættu þín á öllum
misskilningi, sem gæti
skotið upp kollinum
milli þln og þinna
nánustu. Ef ekki er
reynt að jafna málin
strax, er það kannski
orðið um seinan.
Bogmanns- 23. nóv. —
merkið 21. des.
Við horf þitt gagn-
^vart llfinu og tilver-
unni er mjög jákvætt
um þessar mundir.
Hlustaðu vandlega á
það, sem aðrir hafa til
málanna að leggja,
það verður þér nota-
drýgra en gæti virst
við fyrstu sýn. Gættu
ítrustu varkárni I sam-
skiptum þínum við
eldri ættingja.
Geitar- 22. des. —
merkið 20. jan.
Þú streitist ákaft gegn
ímynduðum hindr-
unum. Það er mis-
skilningur, að aðrir séu
að leggja stein í götu
þína, þinn eiginn vilji
er stærsta hindrunin.
Þínir nánustu þarfnast
meiri umhyggju en áð-
ur, reyndar virðist þú
hafa töluverða ánægju
af að snúast I kring-
um einhvern.
Vatnsbera- 21. jan. —
merkiö 19. febr.
Gæfan virðist hafa
snúist þér I hag ótrú-
lcga snögglega. Þrátt
fyrir það vcrður þú að
gæta ítrustu varkárni,
annars gætir þú lcnt á
hálum Is. Sjálfsöryggi
cr kostur, ef því er
haldið innan skynsam-
lcgra takmarka. Hugs-
un þln er óvenju skýr
og ákveðin, hafðu
framkvæmdirnar I
fullu samræmi.
Fiska- 20. febr. —
merkið 20. marz
Eyddu ekki starfskröft-
um þínum og tlma I
ónauðsynlcga hluti.
Kynntu þér hina ýmsu
möguleika og skipu-
lcggðu tírna þinn alv-
cg frá nýju sjónarhorni
Þcr hættir til að láta
undirbúning jólanna
varpa skugga á sjálfa
hátíðina, fjölskyldu
þinni til mikilla leið-
inda.
49.TBL. VIKAN 83