Vikan

Tölublað

Vikan - 04.12.1975, Blaðsíða 26

Vikan - 04.12.1975, Blaðsíða 26
hann. Tveir menn voru I honum. Það var Jóhann Behring og maður með honum. Þeir höfðu farið á sjó snemma um morguninn til að skjóta fugla. Nú urðu þeir að reyna að ná landinu með seglinu, því það stoðaði lítið fyrir tvo menn að hugsa til að berja gegn slíku roki. Við horfðum á bátinn. Hvorugur okkar var neitt hræddur, en báðir vorum við alvarlegir. Ég held okkur hafi vcrið farið að finnast, að rokið væri ckkert leikfang lengur. Báturinn þaut áfram og stefndi á ská inn og yfir höfnina. Við vissum hvað þeir ætluðu sér að gera, þótt ekki værum við miklir sjómenn. Bráðum mundu þcir snúa við og sigla undir ncsið að innanverðu. I þriðja ..slagnum” mundu þeir komast svo langt upp í ládcyðuna, að þeir gætu fellt scglið og róið það, sem þá var cftir til lands. I:n þcgar þeir voru nýsnúnir við, kom afskaplcg stormhviða af landi. Ilún þyrlaði upp sjónum undireins við fjörustcinana, og þcgar hún kom lcngra út á sjóinn, ók hún á undan scr stórri hrönn af fannhvítu sædrifi. Við stóðum á öndinni og héldum okkur dauðahaldi 1 hjallinn. Þegar hviðan hitti bátinn, tók hann sprett álram, cinsog hind, sem fengtð hefir hið banvæna skeyti vciðimannsins. Dálitla stund sá varla í hann fyrir sædrifinu. Nú sást hann aftur og þaut cnn áfranr, eins og hann kæmi varla við sjóinn. Allt í einu flcygðist hann flatur og seglið fór í kaf. Skriðið hætti um leið, og kjölur- inn kom bctur og bctur upp úr sjón- ttm. Okkttr sýndist eitthvað dökkt koma upp rctt fyrir aftan bátinn, cn svo hvarf það aftur. Við heyrðum óp og óhljóð ofan frá Itúsunum. Undireins voru einir 20 karlmcnn komnir saman í fjör- unni. Áttæringi var hrundið á flot. Tvcir mcnn voru um hverja ár. og bcstu árarnar úr öllurn bátunum voru tcknar mcð í förina. Innan skamms voru þcir komnir út þangað, scm slysið varð. ('rluggttrnir í Itúsi Behrings sneru út að sjónum. Þar stóð gamli maðurinn við opinn glugga og horfði á slysið gcgnuni sjónauka sinn. MAÐUR GETURI ALLTAF VIÐ SIG BLÓMUM/ BÆTT BLÓMABÚÐIN FJÓLA Alltaf fjölgaði í fjörunni á meðan þeir voru úti. Það var hryggðar- og skelfingarsvipur á hverju andliti. Menn biðu^þess með sárri óþreyju, að áttæringurinn kæmi aftur. Hann kom loks eftir langa og harða útivist með hinn bátinn í eftirdragi, en — ekki mennina. — — Daginn eftir voru þeir slæddir upp. Og á Þorláksdag voru þeir jarðaðir. Þessi sorglegi atburður vakti bæði harm og sorg I kaupstaðnum. Það var almæli, að Behring gamli og konan hans bærust lítt af, og unn- usta Jóhanns sáluga væri sinnulaus af sorg. Enginn láði þeim það, því allir fundu, hve mikill mannskaði var að þessum manni. Samt bauð Behring gamli börn- unum á jólatré hjá sér nú, eins og endranær.— Þegar verið var að búa okkur að heiman, vorum við áminnt um það, að vera nú hljóð og háttprúð og muna eftir þeirri þungu sorg, sem gömlu hjónin höfðu nýlega orðið fyrir. Það þurfti þó ekki að minna, okkur á þetta, við mundum það vel. Og okkur hefði alls ekki furðað á því, þótt við hefðum ekkert jólatré fengið hjá Behring þetta árið. Við höfðum talað um þetta okkar á milli úti á svellunum, og gerðum helst ráð fyrir, að okkur yrði ekki boðið. Þegar -við komum heim í hús Bchrings, var okkur vísað inn í borð- stofuna, eins og vant var, þar til hin yrði opnuð. Á stuttri stundu fylltist sú stpfa af börnum. Það dróst óvanalega lengi, að stofan, sem jólatréð varí, yrði opnuð. Það var sama stofan, sem líkið hafði staðið uppi í, og gamli Behring hafði því ckki komist að því, að undirbúa jólatréð neitt, fyrr en jarð- arförin var afstaðin. Á meðan við biðum, voru þær inni hjá okkur, frú Behring og Björg, sem verða átti tengdadóttir hennar. Hún var stödd þar og ætlaði að vera þar um jólin. Frú Behring rcyndi að brosa við okkur og segja einhver blíðleg orð við okkur, þegar hún gekk um, en ekki leyndi það sér, að hún var annars hugar. Hún var önnum kafin og ekki farin að grciða hár sitt eða hafa fataskipti. Björg var lengst af inni hjá okkur. Það var há og grönn stúlka, fagur- lega vaxin. Hún var öll svartklædd, litverp í framan, með augun rauð og bólgin af gráti. Á meðal okkar var hún cins og sorgargyðjan sjálf. Hinn svarti búningur hennar stakk mjög í stúf við búninga okkar. — Telp- urnar voru allar hvítar eða litklædd- Sr, og við líka eitthvað meira og minna hvítir. Aðeins börn Behrings voru svartklædd og óvanalega hnugg- in. Björg gekk hljótt um, talaði lítið og aðeins lágt, cn alltaf eitthvað vingjarnlegt. Hún tók sum yngstu börnin í fang sér og kyssti þau. Návist hennar gerði okkur enn þá hátíðlegri. Hún minnti okkur á hina þungu heimilissorg. Óljóst fundum við til þess, hve nærri sér hún tæki það, að þurfa að sinna okkur nokkuð, ekki síst það, að reyna að vera glaðleg. Loks kom augnablikið, sem við höfðum ævinlega áður hlakkað svo mikið til. Behring opnaði báða hurðarvængina og bauð okkur að koma inn. Ekkert barnið ætlaði að fást til þess að verða fyrst; við sátum og stóðum öll hreyfingar- laus. Áður höfðum við öll starað á hið skrautlega jólatré. Nú voru það ekki nema sum okkar, sem litu þangað. Hin störðu á gamla mann- inn. Behring var óvanalega fölur og sýndist ellilegri en vant var. Það var auðséð, að hann hafði þolað mikið síðustu dagana. — Okkur börnunum er svo farið, að við eigum erfitt með að dylja geðs- hræringarnar. Þetta er eitt af því, sem lærist með árunum. Oft þarf maður á því að halda í lífinu, en þó er fefasamt, hvort þetta er fremur kostur en ókostur. Þetta kveld var tilfinning okkar barnanna hluttekning í sorg gamla mannsins. Hann hafði kallað okkur saman til þess að gleðja okkur. Auðvitað áttum við að reyna að láta ekkert á geðshræringum okkar bera og skemmta okkur vel og siðlega, til þess að geðjast honum og gleðja hann. En við gátum það ekki. Það fundum við þegar á meðan við biðum, og enn þá betur fundum við það, þegar við sáum hann sjálfan. — Behring gekk á undan- okkur í kringum jólatréð. Konan hans og tengdadóttir gengu með í hópnum. Jólasálmar voru sungnir, og sumir okkar tóku undir þá. Svo söng Behring jólasálma á sínu máli. Þá söng hann árlega, og oftast nær einn, því þá kunni enginn annar. Þeir voru um engla guðs, sem nú væru komnir ofan á jörðina til þess að boða börnunum frið og gleði og velþóknun guðs, því í dag væri þeim frelsari fæddur. Lagið og efnið fór svo vel saman og var svo einfalt og látlaust, svo þýtt og blítt, að yndi var að hlusta á það, þótt hann syngi það einn og við ættum bágt með að skilja orðin. -Það voru gamlar minningar frá jólum æsku- stöðva hans, sem hann söng þá fram og rifjaði upp fyrir sér. Hann var skjálfraddaðri nú en hann hafði verið áður. Að því búnu var farið að útbýta jólagjöfunum. Það gerði Behring sjálfur. Hann gekk til hvers barns með það, sem því var ætlað, og sagði eitthvert blíðlegt orð við það á bögumáli sínu og klappaði því á kinnina eða kollinn. Nú datt engu okkar í hug að hlæja að ambögunum hans. — Svo komu sætindin. Eftir ör- skamma stund voru föngin á okkur orðin full af sætindum og jólagjöf- um. Nú vildi gamli maðurinn, að við færum að skemmta okkur, hoppa og dansa I kringum jólatréð, syngja og gala, eða jafnvel ólátast. En það leit ekki út fyrir, að við hefðum löngun til að gera neitt af þessu. Við stóðum öll þegjandi og horfðum á gamla manninn. Hann gekk frá hverju barni til annars, reyndi að koma því til þess að hlæja, kraup niður hjá því, lék sér við það, gerði sig skoplegan í framan og reyndi að tala Islensku, — en það var það skoplegasta, sem hann gat gert. — En á milli andvarpaði hann þunglega. „Spielen sie, Kinder ___ spielen sie, Kinder!" hrópaði hann til okkar hvað eftir annað. Ég skotraði augurtum snöggvast til Simba. Hann stóð eins og drengur úr vaxi, og datt hvorki af honum né draup. Telpurnar stóðu líka eins og brúður og héldu fast utan um bréfpokana og jólagjafirnar, eins og þær væru ráðalausar með það. En þær andvörpuðu engu minna en gamli maðurinn. ,, Tanzen sie!_ Wollen sie nicht tanzen was? "1) ,,Hann er að spyrja ykkur, hvort þið viljið ekki dansa. Hann er að biðja ykkur að fara að leika ykkur,” sagði frú Behring. Hún hélt, að börnin skildu hann ekki. Aldrei hafði þó áður þurft að þýða fyrir okkur það, sem hann sagði. Gamli Behring tók eina telpuna og tosaði hana út á gólfið. Björg tók einn drenginn og fór að dansa við hann. Öll hin börnin stóðu kyrr. Það reyndist ómögulegt að koma þeim af stað, ómögulegt að blása lífi og fjöri I samkvæmið. Þótt ein- stöku krakki væri dreginn út á gólf- ið til að dansa, þá gerði hann það nauðugur, og hin börnin hreyfðu sig ekki. Gamli maðurinn hafði ama af þessu, þótt hann léti ekki á því bera. Þegar hann var að reyna að koma börnunum til, glitruðu tárin I augum hans. ,,Spielen sie, Kinder! Warum spielen sie nicht?' ’ 2) Hann kraup niður hjá einu barn- inu, svolitlum drenghnokka, sem hafði fengið munnhörpu, og fór að kenna honum að nota hana. Hann lék fjörugt lag á munnhörp- una og fékk honum hana svo aftur. Það var eins og ljós rynni upp fyrir drengnum, og hann skildi, hvílíkan kostagrip hann hafði eign- ast. Hann setti hörpuna við munn sér og blés I hana af öllum kröftum Margar nótur skræktu I einu. Við hrukkum öll saman, eins og við værum stungin með tltuprjónum. Og oft hefi ég hugsað um það slðan, hvernig þessi skrækur muni hafa látið I eyrum gamla mannsins, eins og taugar hans voru nú á sig komnar, eftir grát og kvöl og margar andvöku- nætur. 1) Dansið þið. Viljið þið ekki dansa, — hvað? 2) Hvers vegna leikið þið ykkur ekki? 26 VIKAN 49, TBL.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.