Vikan

Tölublað

Vikan - 04.12.1975, Blaðsíða 22

Vikan - 04.12.1975, Blaðsíða 22
„Spitiö þiö tiint SMÁSAGA EFTIR JÓN TRAUSTA. Behring gamli var skrítinn karl, og okkur börnunum þótti svo undur vænt um hann. — Hann var um sextugt, orðinn gráhærður og kinn- fiskasoginn, en var þó ern og fjörugur. Hann var barngóður og mesti æringi. Hann lék sér við okkur, hoppaði og stökk, þegar best lá á honum, og masaði við okkur á am- bögumáli sínu. Þá var honum best skemmt, þegar hann sagði einhverja þá vitleysu, sem við veltumst um að hlæja að. ,,Sþielen sie, Kinder”, 1) var við- kvæði hans. Við vissum hvað það þýddi, en útlögðum það þó á okkar vísu og gcrðum úr því: Spilið þið, kindur. Svo hlógum við að honum 1) Þýska, framborið: Spílen sí, kind- er, og þýðir: leikið ykkur, börn. upp í opið geðið á honum — og — hann sjálfur með okkur. Hann var þjóðverji, ættaður frá Suður-Jótlandi, var beykir að iðn og hafði flust hingað til landsins um tvítugsaldur. Fyrst hafði hann verið beykir við fastaverslunina, síðan verslunarmaður þar. Svo fór hann að versla, og verslaði I mörg ár með miklum blóma. Nú var hann hættur þvl að mestu og bjó eins og velmeg- andi kaupstaðarborgari. Hann hafði verið giftur íslenskri konu. Þau áttu einn son uppkominn og þrjú börn á reki við okkur. Börn þeirra þar á milli höfðu dáið. Sonurinn hét Jóhann og var einkar efnilegur maður og vel látinn. Hann var trúlofaður bóndadóttur á bæ þar I nánd við kaupstaðinn, efnaðri stúlku og fríðri, sem þótti einhver besti kvenkostur þar um slóðir. Þótt Behring gamli hefði verið svo lengi hér á landi, hafði honum geng- ið illa að læra íslenskuna. Hann skildi þó nálega allt, sem við hann var sagt, en málið, sem hann talaði, var okkur börnunum — og jafnvel fleirum — óþrotlegt hlátursefni. Þó kastaði tólfunum, þegar hann fór að reyna að tala Islensku, því þar var ekkert orð óbjagað. Best skildum við þýskuna hans, enda vorum við orðin henni svo vön. Þótt margt kæmi okkur þar kátlega fyrir, lærðum við nöfn hans á ýmsum hlutum, snerum út úr þeim, rangfærðum þau, hermdum eftir honum og hlógum að öllu saman — en allt I sakleysi. Enginn vildi móðga hann, þvl öllum þótti svo vænt um hann. Það gerði Behring gamla enn skringilegri I okkar augum, hvernig hann var I framan. Hann hafði einhvern tlma fengið snert af heila- blóðfalli og bar þess jafnan menjar. Annað munnvikið hafði dregist út á kinnina og var hálfmáttlaust, og oft voru einhverjir undarlegir kippir I andlitinu. — Skeggið huldi þessi lýti að mestu. Það var grátt, stutt og gisið, en náði um allt skeggstæðið. Svo hafði gamli maðurinn spegilgljáandi skalla, alveg aftur I hnakkagróf. Margt sáum við undarlegt hjá Behring, sem hvergi sást I kaupstaðn- um nema þar. Eitt af þvl var dyrabjalla. Hringur úr hvítum leir var festur utan á útidyrahurðina. I honum miðjum var eirtyppi. Utan á það var letrað með fallegum TOMSTUNDAHUSIÐ STÆRSTA LEIKFANGAVERZLUN LANDSINS Dýr leikföng Ódýr leikföng TÓMSTUNDAHÚSIÐ Laugavegi 164 Sími 21901 22 VIKAN 49. TBL.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.