Vikan - 29.06.1978, Page 4
1. Hálfsmánaðar Úrvalsferð fyrir tvo
í íbúð á Ibiza.
2. Hálfsmánaðar Úvalsferð fyrir tvo
í íbúð á Kanaríeyjum.
3. Hálfsmánaðar Úrvalsferð fyrir tvo
í íbúð á Mallorca.
Hér hefst sumargetraun
Vikunnar 1978, sem verður
alls í fjórum blöðum, 26.-
29. tbl, að báðum meðtöld-
um. Getraunaseðill birtist í
hverju blaði, en þá skal ekki
senda jafnóðum, heldur
safna þeim saman, uns öll
fjögur blöðin eru komin,
stinga þeim þá í umslag og
skrifa utan á:
VIKAN,
PÓSTHOLF 533,
REYKJAVÍK:
Merkið umslagið:
„SUMARGETRAUN.”
Dregið verður tíu dögum
eftir útkomu 29. tbl. og
vinningshafar látnir vita
strax og dregið hefur verið.
Þrenn verðlaun verða veitt,
en þau eru utanlandsferðir
með ferðaskrifstofunni
ÚRVAL.
Eftirsótt af
listamönnum og
ungu f ólki
Hvern dreymir ekki um að
sleikja sólina á ströndum
Ibiza. Fyrstu verðlaun í
sumargetrauninni er
hálfsmánaðar Úrvalsferð
fyrir tvo í íbúð á Ibiza, sem
er þriðja stærsta eyjan í
hinum fagra baleriska eyja-
klasa. Eyjan er 572 km2 að
stærð og íbúar um 40.000.
Á síðari árum hefur Ibiza
orðið eftirsótt af lista-
mönnum og ungu fólki frá
öllum heimshornum, því
eyjan býður gestum sínum
friðsæld og kyrrð, en einnig
skemmtanir og fjörugt
næturlíf. Landslag er mjög
sérstætt og gróðurfar
fjölbreytt, og loftslag
ákaflega milt.
Á Kanarí
Önnur verðlaun í Sumar-
getrauninni er hálfs-
mánaðar Úrvalsferð fyrir
tvo í íbúð á Kanaríeyjum,
sem eru einn fjölsóttasti
áningarstaður ferðamanna
hvaðanæva úr heiminum.
Kanaríeyjar eru eldfjalla-
eyjar, þrettán talsins, þar af
sjö í byggð. Spánverjar hafa
ráðið þeim frá því í byrjun
15. aldar, og fyrr á tímum
voru eyjarnar mikilvægur
áningarstaður þeirra, sem
áttu fyrir höndum langa
sjóferð til Nýja heimsins.
Landslag á eyjunum er svo
margbreytilegt, að það er
stundum sagt að sérhver
Kanaríeyja sé heilt megin-
land í hnotskurn.
Perla Miðjarðarhafsin
Úrvalsferð fyrir tvo í íbúð á
Mallorca er þriðji vinn-
ingurinn í sumargetraun
Vikunnar. Mallorca er
stærsta eyjan af balerísku
eyjunum, um 3.640 km2 að
stærð. íbúar eru 450
þúsund og býr um
helmingur þeirra í höfuð-