Vikan - 29.06.1978, Síða 12
Vikan sparar lesendum sínum sporin og kannar ve
Garðsldtturinn
í algleymingi
Ótrúlegt úrvalqfgarðsláttuvélum
á markaðinum
Nú stendur garðslátturinn
sem hæst, og margt kvöldið og
margan frídaginn má sjá garð-
eigendur með sveittan skallann
við að slá garðholuna sína.
Margir eiga sláttuvél af „fín-
ustu” og dýrustu tegund, sem
þeir ýta á undan sér með miklu
stolti — Aðrir þurfa ekki annað
en að rétt „hanga í”, því vélin
fer áfram knúin eigin drifi. Sum-
ir hafa aldrei komið því í verk að
eignast sína eigin sláttuvél og
þurfa að fá þennan þarfa grip að
láni hjá nágrönnum sínum. Svo
eru líka til þeir, sem eru með
gamlar og úr sér gengnar sláttu-
vélar, sem gera eigendum sínum
lífið leitt í hvert skipti, sem þarf
aðslá.
Major 46 SR 8 vólin ar með fjórar
hœðarstillingar.
Okkur datt í hug að kynna úr-
val garðsláttuvéla, sem til eru á
markaðnum hér, hvað þær
kosta og hverjir eru eiginleikar
þeirra.
Ótrúlegt úrval
Úrvalið er ótrúlega mikið.
Okkur taldist svo til, að til séu
hvorki meira né minna en 21
tegund af vélknúnum sláttuvél-
um, fyrir utan 4 gerðir af raf-
magnsvélum og 4 vélarlausum,
handknúnum vélum. Þetta er
ótrúlega mikið og gott úrval í
landi, þar sem íbúarnir eru ekki
nema rúmlega 200 þúsund sálir,
og ber vott um frjálsan og hafta-
lausan innflutning. Hvort þetta
er svo heppilegt frá þjóðhags-
legu sjónarmiði, skal látið ósagt.
Af öllum þessum merkjum selj-
ast trúlega ekki nema nokkrir
tugir, og erfitt hlýtur að vera að
hafa á takteinum varahluti í svo
margar tegundir véla.
En taka verður með í reikn-
inginn, að margar af vélknúnu
vélunum eru með samskonar
mótorum, sem eru að sjálfsögðu
allireins.
Vörumerkin eru þó ekki
svona mörg, heldur eru til fleiri
en ein gerð af vélum í sama
merki.
Það ætti því ekki að vera
neinn vandi fyrir hvern og einn
að finna sér garðsláttuvél, sem
hæfir, bæði hvað verð og annað
snertir.
Dýrasta vélknúna sláttuvélin,
sem við fundum, kostar rúmlega
145 þúsund kr. og sú ódýrasta
62 þús. — Önnur af rafmagns-
vélunum, sem á markaðinum er,
Bensín: G. ÁSGEIRSSON SAMBANDIÐ SUÐURLANDSBRAUT
Tegund. HUSQVARNA BS- 450 HUSQVARNA BS-400 ROTOR—MAJOR 46/SR/8 TORNADOR MAJOR 1-B TORNADO 51/S/8
Verð. 84.700 76.700 69.875 79.812 109.660
Sjálfdrff. Nei Nei. Nei Nei Jó
Gressafnarí. Jó Fóanlegur Fóanlegur Fóanlegur Fóanlegur
Þyngd. - - 22 kg - 33 kg.
Mótor/ha 4 gengis 3,5 ha. 4 gengis 3,5 ha 4 gengis 3,5 ha 4 gengis 3,5 ha 4 gengis 4 ha
Slóttubreidd. 45 cm. 40 cm 46 cm 51 cm 51 cm
Slóttuhœð. 4 hœðarstill. 4 hæðarstill. 4 hæðarstill. 4 hæðarstill. 4 hæðarstill.
Tegund hnifa. 2 öryggis- hn'rfar. 1 hn'rfur 1 hnífur 2 öryggishnffar. 1 hnffur
Ábyrgð/mótor. Ársóbyrgð. Ársóbyrgð Ársóbyrgð Ársóbyrgð Ársóbyrgð
Aths.: Bríggs ft Stratton mótor, auðveld i gangsetningu. Sór- lega hljóðlót að sögn. Briggs ft Statton mótor. Grasskúffa fóanleg og kostar 7600. Hsegt að leggja handfangið saman. Ítaiskur Aspera mótor. Graspoki kostar 5.600. Briggs ft Stratton mótor. Bríggs £r Stratton mótor.
12 VIKAN26. TBL.