Vikan - 29.06.1978, Qupperneq 19
luberjasultu
íslenskuferðafólki
íKaupmannahöfn leiðbeint
ímat 7.grein
Jlaki og remúlaði, en dýrast er
brauö með reyktum laxi.
Vilji menn meiri veislumat en
hér hefur verið lýst, er hœgt að
fletta upp í fastaseðlinum, sem
gildir einn á kvöldin. Þá sleppa
menn heldur ekki með 2.000 til
2.500 íslenskra króna útgjöld.
Þá kostar þriggja rétta máltíð
með víni og kaffi 6.500 til 7.500
krónur fyrir manninn og 4000-
4.800 krónur, ef keypt er öl í
stað vírts.
REYKT DÁDÝRAKJÖT
Á RÚGBRAUÐI
Við byrjuðum á hænsnasalati
á 29.50 og dádýrakjöti á 26.50
sem forréttum. í hænsnasalatinu
var hænsnakjöt, krabbakjöt,
skinka, artistokkar, maís, sperg-
r _
Inœstu viku: Jacobs barBQ
Nafnið Rossini stafar af kæf-
unni. Með þessu fylgdi svo rauð-
vínssósa og bakaðar kartöflur.
Hreindýrasteikin var borin
fram með kastaníuhnetumauki,
hálfri niðursoðinni og steiktri
peru, trönuberjasultu, Waldorf-
salati úr mönd/um og koníaks-
rjómasósu. Þetta var hreinasta
góðgæti. Kjötið var meyrt og
safaríkt, þótt það værisvart.
/ eftirrétt fengum við svo
steiktan camembert-ost með sól-
berjasultu á 15,50 og írakaffi
með Tullamore Dew á 20 krón-
ur.
Með matnum fengum við
eina flösku af Croz.es Hermitage
frá Coq d'Orá 89 krónur. Það er
dökkt, öflugt og bragðsterkt vín
úr Rhone-dalnum í Frakklandi.
Þetta var gott vín, en auðvitað
of dýrt, eins og gengur og gerist
um vín í Danmörku.
ill og karrísósa. Hinn forréttur-
inn fólst í þunnum sneiðum af
reyktu dádýrakjöti á rúgbrauði
með lauk. Hvort tveggja var
mjöggott.
Sem aðalréttir urðu fyrir val-
inu hreindýrasteik á 82 krónur
og Coq d'Or Trio Rossini á
71.50. Hvort tveggja reyndist
óaðfinnanlegt.
Hið síðarnefnda var nokkuð
sérkennilegur en skemmtilegur
réttur, byggður á þremur litlum
steikum nautakjöts, kálfakjöts
og svínakjöts. Þaðan kemur
nafnið Trio. Steikurnar þrjár
voru skreyttar krabbakjöti,
sveppum og gæsalifrarkæfu.
EINN AFLJÓSUM
PUNKTUM HAFNAR
Auðvitað er skynsamlegra að
kaupa í staðinn tvær öljlöskur á
samtals 17 krónur. Menn mega
helst ekki falla fyrir vínfreisting-
um í Danmörku, ef þeir kæra sig
ekki um að rélta við Jjárliag
danska ríkisins með eigin hendi.
Þar er vín ekki síður tollað en
hér á landi, enda eru þeir jafn-
framt að styðja hina innlendu
bjórbruggun.
Með víninu kostaði sú veisla,
sem hér hefur verið lýst, 334
danskar krónur fyrir tvo eða
7.500 krónur íslenskar á mann.
Með tveimur flöskum af öli I
stað vínsins hefði hún kostað
4.800 krónur á mann. Það væri
sanngjarnt verð fvrir ágætan
mat.
Að öllu samanlögðu er Gull-
haninn einn af Ijósu punktunum
í gastrónómíu KaupmannahaJ'n-
ar.
(Coq d'Or, H.C.Andersens
Boulevard 13, sími 1484 52).
Jónas Kristjánsson.
26. TBL.VIKAN 19