Vikan - 29.06.1978, Page 28
Texti og myndir:
Sigurjón Jóhannsson,
Osló ekki lengur si
Osló og verð að segja, að nú á allra síð-
Mannlífið í Osló er býsna litríkt, og þar eru
andstæður íar að skerpast milli hinna guð-
hræddu og vinnufúsu og unga fólksins, sem
syngur uri ástir og frið, eða leitar á náðir eitur-
lyfja í ^ axandi mæli.
Osló cr stærsta sveitaþorp i heinti,
fullyrða niargir. og i þessari staðhæfingu
felst bæði lof og last. Blaðantaður Vik-
unnar dvaldi nokkra daga i Osló síðari
hluta maímánaðar, og það voru viðburð-
arikir dagar á þjóðmálasviðinu. einkum
vakti tilboð Volvoverksmiðjanna
sænsku unt að selja Norðmönnum 40%
hlutabréfa i fyrirtækinu ntikla athygli.
Blöð og aðrir fjölmiðlar stóðu á öndinni.
en Norðmenn áttu bágt með að trúa þvi.
að ekki væru einhver brögð i talli, þvi
þeir hafa dálitla minnimáttarkennd
gagnvart Svíum eins og Danir. En hvað
um það, þetta mál hefur verið reifað hér
í blöðum.
BORGIN HEFUR
KASTAÐ AF SÉR
DRUNGANUM
Ég hef tvisvar áður gert stuttan stans í
ustu timum hefur orðið mikil breyting á
ntannlifi í borginni; eins og hún hafi
kastað af sér drunganum og ákveðið,að
leyfa öllum blómum að blómstra, eins og
Maó vildi hafa það í Kina ekki fyrir
löngu.
í miðbæ borgarinnar ber nú mikið á
hörundsdökku fólki, enda hafa Norð-
menn undanfarið tekið vel á móti suð-
rænu fólki, vegna þess að þeir þurftu á
vinnuafli þess að halda. Sagt er. að veit-
ingastaðirnir þrifist ekki nema með að-
stoð þessa fólks, og það hefur tekið að
sér ýmis „óæðri" störf, eins og víðar i
Evrópu.
SAMDRÁTTUR —
FÓSTUREYÐINGAR —
NÝ HEGNINGARLÖG
En það bar á beyg lijá Norðmönnum,
þeir verða varir við þá stöðnun, sem
hefur færst yfir Vestur-Evrópu undan-
farið. Það mátti lesa i blöðunum, að ver-
ið væri að loka fyrirtækjum, önnur ættu
I erfiðleikum, og oliugróðinn er ekki svo
nálægur, að menn geti beðið hans til að
leysa ailan efnahagsvanda. Hið nafntog-
aða fyrirtæki Tandberg, sem Norðmenn
28 VIKAN 26. TBL.