Vikan - 07.06.1979, Page 9
Hér sru messur Kaldnar einu sinni é deg.
mannhæðarháum múr, vel mannheldum,
en þar fá nunnurnar sér göngu- og rabb-
ferðir þegar vel viðrar auk þess sem þær
rækta kartöflur og grænmeti ýmiss konar
til eigin nota.
— Það er dásamlegt að vera úti í garði á
sumrin, segja þær systur og horfa vonar-
augum út um gluggann þar sem lítill fugl
situr syngjandi í vorgolunni og horfir til
baka inn um gluggann til nunnanna. E.t.v.
hefur hann kynnst þeim sl. sumar og er nú
kominn til að endurnýja þau kynni.
Hver nunna í klaustrinu á sér sína sögu
eins og aðrir. Systir Veronika er búin að
vera hér á landi frá stofnun klaustursins,
eins og áður sagði, systir Miriam kom
hingað 1946 og hafði áður verið nunna í
hollensku karmelítaklaustri, en nunnuferill
systur Ólafar er styttri en hinna, þó hún sé
eldri. Við báðum hana að segja okkur ögn
frá honum.
Séfl inn sinn klausturganginn.
Bœnasalur. Hér hafur verið baflið mikifl fyrir
íslendingum allar götur siflan 1939.
i
l
i
t
í