Vikan - 07.06.1979, Blaðsíða 22
Pierre og Margaret ó meðan allt lék i lyndi.
fórna mér á sama hátt fyrir
Pierre, og ég mætti ekki vera
eigingjörn. Alía lést síðar í þyrlu-
slysi. Þegar ég frétti það brast
eitthvað innra með mér og ég
ákvað að fórna mér ekki lengur
á þennan hátt. Fram að því
hafði ég trúað að ég gæti komið
einhverju til leiðar með því að
standa við hlið manns míns. En
stjórnmálin eru of umfangs-
mikil, almenningsálitið of sterkt
og fjölmiðlarnir of ákafir þannig
að ég sá ekki að ég gæti breytt
nokkru í sambandi við alla þá
hræsni og ranglæti sem ríkir í
heiminum.
— Hélstu virkilega að þú
gætir fengið einhverju fram-
gengt á stjórnmálasviðinu með
því einu að vera gift stjórnmála-
manni?
— Eiginkonur stjórn-
málamanna bregðast misjafn-
lega við slöðu sinni. Sjáið t.d.
Betty Ford og Joan Kennedy
sem völdu þá leið að sökkva sér í
áfengi til að þrauka. Ég tek
marijuana fram yfir (það er alla
vega hollara en vodka). Þetta
svar vekur líklega eitt hneykslið
í viðbót. (Hlær).
— Hvernig tók maðurinn
þinn því að þú skyldir vera að
reykja marijuana?
— Mjög illa. Alltaf þegar
hann bauð mér góða nótt þá leit
hann fast I augun á mér til að sjá
hvort ég hefði verið að reykja.
Pierre hafði andstyggð á
ntarijuana, hann reyndi það
aldrei og mun aldrei koma til
með að gera það — til þess er
hann of gamall. Marijuana veitir
mér ró og gerir mig ánægða á
meðan það varir.
— Þú sagðir fyrir nokkrum
mánuðum að Pierre hefði gefið
þér glóðarauga. Kom slíkt oft
fyrir?
— Já, hann sló mig þegar ég
kont heim eftir að hafa dvalið á
sama hóteli og Rolling Stones,
og það leiddi til þess að ég fékk
heljarmikið glóðarauga. Hann
sagði að ég hefði svert mannorð
hans og ég gleymi seint blikinu
sem var i augum hans þegar
hann sló mig. Daginn eftir
neyddi hann mig til að fylgja sér
á ballettsýningu, en ég var ófús
og sagði honum að allir myndu
sjá að ég hefði verið slegin. En
þá svaraði hann einfaldlega: —
Þá getur fólk séð að ég er sannur
karlmaður. Það var aldrei neina
iðrun eða eftirsjá að finna hjá
Pierre.
— / dag ert þú eins og blóm I
eggi. Ert þú ástfangin á ný?
— Nú geri ég játningu sem ég
hef ekki gert áður! Ég er ást-
fangin af manni sem ég hitti
fyrir nokkrum mánuðum. Ég
get ekki sagt hvað hann heitir en
hann er frá S-Ameríku, fæst við
bílaviðskipti og er á svipuðu reki
og ég. Ég held að nú hafi mér
tekist að finna manninn sem
skilur mig og getur tekið mér
eins og ég er. Ég hef í huga að
halda áfram að vinna fyrir mér
sjálf þannig að ég verði ekki upp
á aðra komin því ég vil fyrir alla
muni vera sjálfstæð. Ég skil ekki
konur sem geta niðurlægt sig
með því að biðja eiginmenn sína
sífellt um peninga. Ég fer ekki
fram á neitt frá Pierre — enda
hefur hann aldrei verið rausnar-
Ennaukin
þjónusta! u
Ókeypis eyðublöð á afgreiðslunni: Dagblaðið er smáauglýsingablaðið
Bíll: Sölutilkynningar, tryggingabréf, víxlar, afsöl. Dagblaðið afgreiðsla Þverholti 11 sími 27022
Lausafé: Kaupsamningar, víxlar. Miðstöð smáauglýsingaviðskiptanna
Húsnæði: Húsaleigusamningar. Smáauglýsingaþjónustan.
BIAÐIB
Dagblaðið er smáauglýsingablaðið Afgreiösla Þverholti 11, sími 27022
22 Vikan 23. tbl.