Vikan - 07.06.1979, Blaðsíða 34
Um bola, bilada snúru
og ball
Kæri draumráðandi!
Mig langar að biðja þig að ráða fyrir
mig þrjá drauma.
Draumur 1: Mig dreymdi, að það
var stór kvíguhópur úti á stóru túni,
sem var afgirt á þrjá vegu, en stór
skurður á einn veginn. 1 þessum kvígu-
hópi var gríðarlega stórt naut. Ég var
beðin um að ná í kvígurnar, og gerði
ég það. Kom þá bolinn á móti mér og
var allvígalegur. Ég komst einhvern
veginn á bak við eina kvíguna og tókst
þannig að skýla mér fyrir bola. Þegar
færi gafst, hljóp ég að girðingunni og
var komin hálfa leið yfir hana, þegar
boli kom ragnandi og bölvandi, en ég
slapp með naumindum.
Draumur 2: Ég var stödd í eldhús-
inu heima. Ég bað bróður minn að
laga einhverja snúru (á lampa), mér
fannst hún vera öll í bútum, en leiddi
þó þannig að það kom smátýra á
peruna. Éannst mér snúran öll vera
einhvern veginn tjösluð saman með
límbandi. Þegar ég kom inn í eldhúsið,
var bróðir minn að tala við einhvern
(ég held, að það hafi verið mamma) og
hann sagði: Mikið er harðfiskurinn
orðinn dýr. Hann er jafndýr og
áfengið. En við þessi orð vaknaði ég.
Draumur 3: Ég var á balli í
samkomuhúsi hér í sýslunni. Mér
fannst alveg ógeðslega leiðinlegt á
þessu balli. Þar var enginn, sem ég
þekkti, og ég var alltaf að gá að
kærastanum, en fann hann ekki,
hvernig sem ég leitaði. Fór ég þá að
leita að bróður mínum, sem átti að
vera þarna, en fann hann ekki heldur.
Svo var farið heim í blindhríð, og voru
þá að koma stœrðar skafar á veginn.
Um morguninn, þegar ég vaknaði,
spurði ég bróður minn, hvar hann
hefði verið. Hann sagðist hafa verið
hjá kærastanum mínum. Þá spurði ég
hann, af hverju þeir hefðu ekki komið
á ballið, og hann sagði: Við ætluðum,
en áttuðum okkur ekki á, hvað klukk-
an var orðin margt, fyrr en hún var
orðin tvö, og þá fórum við á ballið. En
þá voru allir farnir, og löggan var bara
að keyra af stað. Draumurinn varð
ekki lengri. Það skal tekið fram, að
bróðir minn er sjómaður, 3 árum eldri
en ég og náinn vinur kærasta míns.
Kær kveðja. XXXXX = 5X
Mig
dreymdi
Fyrsti draumurinn er varla nægilega
greinilegur, en þó má segja, að hann sé
ekki líklegur til að vera fyrirboði mikilla
vandræða. Oft eru naut fyrirboði
heimsóknar valdamanna og fer þá erindi
þeirra eftir hegðun nautanna. Miðað við
endi draumsins ættir þú ekki að óttast
málalok í því efni. Annar draumurinn er
líklega fyrir smáatvikum í heimilislífinu,
en þar má búast við peningaleysi og
öðrum erfiðleikum um tíma. Þriðji
draumurinn er þér líka fyrir erfiðleikum
sem þú munt þó yfirstiga af eigin
rammleik.
Þær drukknuðu allar
í slýi
Kæri draumráðandi.
Ég vona, að þú ráðir þennan draum
fyrir mig, sem mig dreymdi síðastliðna
nótt. Ég á ægilega bágt með að lýsa
þessum draumi, en ætla samt að
reyna. Mig dreymdi 6 eða 7 íslenskar
söngkonur, þar á meðal Ragnhildi
Gísladóttur og Ellen Kristjánsdóttur,
ásamt 4 eða 5 öðrum sem voru víst
nýlega orðnar þekktar. Ég man, að 2
voru ofsalega líkar ABBA-stúlkunum.
Hinar þekkti ég ekki, en ég man, að
ein minnti mig á Þuríði Sigurðar-
dóttur. Ég man ekki, hvað þær hétu,
en mundi það í draumnum. Þær
ætluðu allar að fara að synda og fóru
að læk. Frá læknum var bugða inn í
vatn, og stúlkurnar syntu þangað hver
á eftir annarri nema Ellen K. Hún fór
löngu seinna. Þegar hún var komin
þangað, var þarna ekkert nema ógeðs-
legt slý. Ellen átti bágt með að halda
sér á floti. Hún sökk alltaf dýpra og
dýpra. Það höfðu líka hinar stúlkurnar
gert. Þœr drukknuðu allar í slýi.
Löggan og allt sjúkraliðið var komið á
slysstaðinn. Ég man, að ég stóð og
horfði niður í slýið, og þá kom Ellen
K upp og sagði: Tosið hinar upp, þær
eru ofan í, ég sá þær. Síðan sökk hún
aftur. Hún var dáin, þegar hún sagði
þetta. Ég man, að ég reyndi ásamt
fleirum að ná þeim upp úr, en án
árangurs. Ég man líka, að einn maður
sýndi okkur plakat af þeim látnu. Á
því voru nokkrir karlmenn. Ég spurði:
Dóu þeir líka? Maðurinn kinkaði kolli.
Ég fór heim, og þar beið mín póstur,
þar á meðal pakki. Ég kíkti aðeins í
hann og sýndist ég sjá nokkra upptak-
ara með fánum á. Ég fór heim til
vinkonu minnar, en mig minnir, að við
höfum ekkert minnst á dauðu stúlk-
urnar. Við vorum samt báðar sorg-
mœddar. Ég fór aftur á slysstaðinn og
sá, að Ragnhildur kom ögn upp. Ég
horfði stíft á hana, og mér brá heldur
meira en lítið, er ég vaknaði við að
heyra sjálfa Ragnhildi syngja: Tíminn
er að líða, ég má aðeins bíða, í laginu
Eina ósk með Björgvini Halldórssyni.
Ég vona, að þú ráðir þennan draum
fyrir mig. Með kærri þökk.
Andrea
Þessi draumur virðist ekki boða neitt
tengt þessum ákveðnu söngkonum,
heldur vera þér aðvörun um að gæta
betur að athöfnum þínum. Sérstaklega
skaltu gæta þess að fara varlega í öllum
samskiptum við fólk tengt poppheim-
inum, því það gæti reynst þér skeinu-
hætt, og reyna að skerpa eigin
dómgreind. Öll dýrkun ákveðinna
manngerða veldur þér vandræðum, því
þú ert alls ekki nægilega sterk til að
standast ýmislegt, sem þvi getur fylgt.
34 Vikan 23. tbl.