Vikan


Vikan - 07.06.1979, Síða 21

Vikan - 07.06.1979, Síða 21
 1 t f aldursmunurinn sé ekki til að bæta úr skák. Hvers vegna varst þú þá að giftast honum? — (Hún hlær innilega) Ef þú hefur einhvern tíma séð Pierre í eigin persónu þá ættir þú vel að skilja hvers vegna ég giftist honum. Hann er fallegur, myndarlegur og sérlega töfrandi maður. Ég var líka mjög ung og það hefur haft sitt að segja. En upphaflega held ég að það hafi verið líkamlegir töfrar sem drógu okkur hvort að öðru, frekar en flest annað. — En hvers vegna fór Pierre Trudeau að giftast svona ungri stúlku sem hafði lifað hátt, neytt ýmissa fíkniefna og staðið í fjöldamörgum ástarsambönd- um? Leyndirðu öllu þessu fyrir - honum? — Hann giftist mér af því að hann elskaði mig. Áður en af giftingunni varð bað hann mig að segja sér allt um fortíð mína sem síðar gæti komið höggstað á hann í stjórnmálalifinu. En í sannleika sagt þá vildi hann ekki fá að vita allt. Hann skildi ekki þennan tíðaranda sem ég hafði lifað í, hippana og allt það. Hann skildi ekki þá heimspeki sem lá þar til grundvallar. Hans — Ég er sannfærð um að margar aðrar konur hefðu staðið sig betur í þeirri stöðu sem ég var í heldur en raunin varð á með mig. Kröfurnar sem voru gerðar til mín voru bara allt of miklar — og ég brást. Ég ræddi þessi mál oft við aðrar konut sem voru í svipaðri aðstöðu og ég, þ.e. voru giftar mikilvægum mönnum. Allar vorum við sam- mála um að yfirleitt stæðum við í skugganum af mönnum okkar. Ég minnist sérstaklega langra samræðna sem ég átti við Alíu fyrrverandi Jórdaníudrottningu (3ju eiginkonu Husseins Jórdaníukonungs). Við urðum miklar vinkonur því við vorum í svipaðri aðstöðu og skildum hvor aðra. Hún var ung og falleg drottning og ég ung og eiginkona forsætisráðherra Kanada. Alía sagðist búa í hálf- gerðu fangelsi og þurfa að fórna miklu fyrir ást sína á konung- inum. Hún sagði að ég yrði að heimspeki byggist á fullkomleik og skynsemi. En ég sé ekki eftir neinu — þetta hjónaband hefur fært mér 3 dásamlega syni, Justin (7 ára), Sacha (5 ára) og Micha (3 ára). — Þú hefur verið ásökuð um að hafa yfirgefið börn þín. Hverju svararðu því? — Ég svara með því að segja — Það hefur oft verið talað um þigsem hina ,,lauslátu eigin- konu ”. Ert þú það? — Nei — með einni undantekningu þó. Það var þegar hjónaband okkar var hvort eð er komið á vonarvöl og ég fór til Bandaríkjanna til að fylgjast með tenniskeppni. Þar hitti ég mann og varð strax ást- fangin. En við ákváðum að hittast aldrei aftur. Þegar ég kom aftur til Ottawa þá töluðum við saman í síma á hverjum degi — en svo ekki meira. — Hver var þessi maður? — Ég get ekki gefið upp nafn hans. — En hvað með Rolling Stones? Á tímabili var það al- talað að þú héldir við Mick Jagger? — Það er rangt — alrangt. Það eina sem gerðist var að ég og hljómsveitin dvöldum fyrir tilviljun á sama hóteli og að ég hafi ekki yfirgefið þau. Ég hef notið tveggja ára frelsis fjarri fjölskyldu minni, en börnin hafa ekki þurft að líða fyrir það — þau eru í góðu jafnvægi og hamingjusöm. Þau hafa aldrei þurft að hafa það á tilfinning- unni að þau hafi misst móður eyddum nokkrum kvöldum í drykkju, skraf og söng. En ég hef aldrei sofið í sama rúmi og nokkur af meðlimum hljóm- sveitarinnar. — En þú viðurkennir þó að þú hafir ekki alltaf hagað þér' sem best á meðan þú varst enn gift forsætisráðherranum? 23. tbl. Vlkan 21

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.