Vikan - 07.06.1979, Side 29
Pils úr blúndudúk
Þessi dama hefur búið sér til
rómántískt pils úr finum
blúndudúk, sem hún bregður
utan yfir venjulegt pífuundir-
pils. Blússuna hefur hún keypt
tilbúna. Svona blúndudúkar
eru lika til í beigelit, sem gæti
verið ekki síður fallegt.
Fjarstæða — eða hvað?
Ekki skyldi maður trúa öllu
sem að eyrunum berst, en þó
er óneitanlega dálítið gaman
að fá að vita, að karlmenn sem
fyrst líta á fótleggi kvenna, eru
taldir þeir þægilegustu i sam-
skiptum. Þeir hafa undan-
tekningarlaust góðan
„karakter”, er haft eftir
amerískum prófessor, Nancy
Hirchberg, en hún hefur eytt
mörgum árum í að kynna sér
það sem kalla mætti
„líkamstungumálið”.
Þeir karlar sem fyrst horfa á
brjóst konunnar, eru opnir og
sjálfstæðir og ekki sérlega
áhugasamir um að aðstoða
aðra, heldur hugsa frekast um
sjálfa sig. Menn, sem strax
fanga bakhluta konunnar með
augunum, lifa í reglubundnum
heimi og vilja hafa hlutina í
föstu formi. Þeir hafa ekki
mikið sjálfstraust.
En það er dálítið skrítið, að
sagt er að konur, sem hafa
áðurnefnda líkamshluta í
„góðu lagi”, hafi sömu
skapgerðareinkenni og
karlarnir, sem hrífast af áður-
nefndum líkamshlutum.
Konur með fagra fótleggi eru
vingjarnlegar, kvenlegar og
vilja vera þægilegar. Konur
með stór brjóst vilja gjarna
Bökuð kartafla með
síld og sýrðum rjóma
Rjúkandi heit kartafla,
bökuð, í selskap með marin-
eraðri síld og ísköldum sýrðum
rjóma, er lostæti. Kartaflan er
bökuð á venjulegan hátt og
skorinn kross í hana að bökun
lokinni, smjörbiti látinn í og
saltað dálítið. Rétt fyrir fram-
reiðslu er síldin lögð við og
sýrði rjóminn látinn yfir
síldina. Skreytt með sneiðum
af rauðlauk og dillkvisti.
hella sér út í ævintýrin, og þær
eru sjálfstæðar og öruggar.
Þær sem hafa bakhlutann að
státa af eru oft formfastar í
skoðunum og skortir sjálfs-
traust.
Sérfræðingar í „líkams-
tungumálinu” telja þó ekki
alveg takandi mark á þessum
upplýsingum — þetta eru
aðeins veikar fullyrðingar,
segja þeir.
☆ ☆ ☆
Þá gengur vel að
strjúka þvottinn
Þó allflest, sem við notum af
fatnaði og öðru líni til heimilis-
halds sé nú orðið straufrítt, er
þó ýmislegt sem ekki verður
komist hjá að strauja. Ef
þvotturinn hefur þornað um
of er gott ráð að láta hann í
plastpoka og leggja í frystinn í
hálftíma. Þá gengur miklu
betur að strauja, jafnvel þó við
eigum ekki gufustraujárn.
23. tbl. Vlkan 29