Vikan - 28.06.1979, Blaðsíða 28
stað í skóm af sömu gerð. Auk
þess eru slíkar pjötlur endingar-
litlar og losna auðveldlega.
Fólk með eðlilegan lengdar-
boga getur rifið þessar pjötlur í
burtu, þar sem þær gera ekkert
gagn.
Hælkappinn
Hælkappinn gegnir mikil-
vægu hlutverki. Sá stuðningur
og stöðugleiki, sem skórnir eiga
að veita, ræðst ekki síst af því,
hversu góður hælkappinn er.
Hælkappinn á að ná vel utan
um hælinn og fram með báðum
hliðum. Hann má ekki vera svo
stífur og harður, að hann orsaki
hælsæri. Hann verður að vera
svolítið sveigjanlegur, þannig að
hann gefi eftir við talsverðan
þrýsting, en aflagist þó ekki við
notkun. Ekki mega vera saumar
eða kantar innan í hælkappan-
um.
Mikil hlaup, einkum á
uppvaxtarárunum, geta valdið
því, að þykkildi myndast á
hælnum, þar sem hásinarnar eru
festar við hælbeinið. Meiðsli á
þessum stað eru ekki óvenjuleg
og geta meðal annars stafað af
því, að skófatnaðurinn hefur
ekki verið með réttu lagi.
Reimarnar
Það er ekki nóg, að hæl-
kappinn sé með réttu lagi, ef
reimunin er það ekki. Það er
hennar hlutverk að halda
fætinum á sínum stað í skónum.
Sé skórinn rétt lagaður yfir
ristina, er betra, að reimunin nái
tiltölulega stutt fram á fótinn, þá
eru meiri líkindi til, að fóturinn
sitjið þétt og vel í skónum.
Tungan
Því miður eru ekki nærri allir
æfingaskór á markaðinum með
tunguna í lagi. Hún á að vera
breið og fóðruð til dæmis með
fílti eða frauðplasti. Sé tungan
ekki nægilega fóðruð, geta
reimar, kósar og saumar þrýst að
og sært ristina.
Sumir leysa þetta vandamál
með því að fóðra sínar tungur
sjálfir. Það má gera með því að
klippa út bút af frauðplasti, 1 sm
á þykkt, ca 12 x 18 sm í skó af
stærðunum 42-44. Þennan bút
má annaðhvort leggja undir
tunguna eða líma hann fastan
við hana. Þetta er þó vitanlega
Sólinn á að vera garður úr þramur mismunandi stHum lögum. Naðsta lagið á
að vara harðast, miðlagið talsvert mýkra, og stífni efsta lagsins á að vera
þama mrtt á milli. Kanturinn um ökklann á að vera mjúkur. Sé notað
plastafni i kantínn, vill það springa eftir nokkra notkun. Skórinn á myndinni
ar skorinn i tvannt.
Ef hælkappinn ar ekki nssgUaga góður, getur skórinn gengist illa og valdið
frekari skaða.
Það verður að vera 5-6 mm rúm YFIR tánum frammi i skónum. i aftari
skónum er nœgilogt rými fyrir tæmar, en i fremri skónum ar of „lágt undir
loft", og það getur valdið núningssárum og bláum rtögium.
Æfingaskór em sannarlega ekki allir
með sama laginu. Hór sjáum við
aftan á nokkrar tegundir. Það er
mikilvægt, að skórinn sá nægilega
breiður um hælinn og að hælbotninn
só ekki sláttur, heldur skálariaga.
ekki eins gott og ef tungan er
nægilega fóðruð frá upphafi.
Tœrnar
Skórnir verða að vera nokkuð
víðir fram, svo að alltaf sé nægi-
legt rúm fyrir tærnar. Tærnar
mega alls ekki þrýstast saman.
Gleymið því ekki, að fæturnir
þrútna við áreynslu, einkum í
hlýindum.
Fullvissið ykkur um, að
tærnar geti hreyft sig í skónum.
Innanfótarlínan verður að vera
rétt löguð. Hún má ekki vera
þannig, að stóratá þrýstist inn á
við, það er mjög mikilvægt, að
hún haldist í eðlilegri stöðu.
Allar tæmar verða að hafa
nægilegt rúm i skónum.
28 Vikan 26. tbl.