Vikan - 28.06.1979, Blaðsíða 30
HVAÐ
KOSTAR
ÞETTA
ARK)?
Þessari VIKU fylgir veggspjald til útreikninga á
heimiliskostnaði. Þeir sem tekið hafa þátt í bókhaldi
Vikunnar og Dagblaðsins kannast vel við spjaldið
sem er eins og það var í fyrra. Fyrir hina skal það
útskýrt nánar.
Fyrir hvern mánuð ársins eru tveir dálkar.
Annar ber yfirskriftina Matur og hreinlætisvörur
og hinn ber yfirskriftina Annað. Þegar komið er
heim úr verslunarferðum eru einfaldlega færðar inn
þær upphæðir sem keypt er fyrir. Og þegar reikn-
ingar eru borgaðir eru þeir færðir inn jafnóðum.
Niðurstöðurnar eru svo sendar Dagblaðinu og Vik-
unni eftir hver mánaðamót. Þá er reiknað út
hvernig hver fjölskylda stendur miðað við hinar,
bæði jafnstórar fjölskyldur og fólk yfirleitt. Úr
þeim seðlum sem berast er síðan dreginn einn og
hlýtur eigandi hans úttekt í þeirri verslun sem hann
helst kýs. Úttektin nemur þeirri upphæð sem
meðalfjölskylda af sömu stærð eyðir í mat og hrein-
lætisvörur. Er sú úttekt hreint ekki svo lítil búbót,
þannig að auk þess að gott er að fylgjast með í hvað
menn eyða getur það verið beinlínis fjárhagslega
hagkvæmt.
DS.
Nýtt veggspjald
Þátturinn Vikan á neytendamarkaði, og í seinní
tíð einnig Vikan og Neytendasamtökin, hefur nú
verið fastur liður í Vikunni í heilt ár, og reynslan
sannar, að hann á eftir að verða miklu eldri.
Lesendur hafa tekið honum mjög vel, og aðstand-
endur Vikunnar eru ekki í vafa um, að aukin skrif
um málefni neytenda, bæði í þessum þætti og
öðrum, eiga sinn þátt í aukinni útbreiðslu blaðsins
á þessu síðasta ári.
30 Vikan 26. tbl.