Vikan - 28.06.1979, Blaðsíða 4
Mynd af Gunnlaugi takin áður en hann hélt til
Þassi mynd af Grete er
tekin rétt eftir að þau
Gunnlaugur
kynntust.
Fátæktin
skildi þau
q' Blaðamaður Vikunnar
CIV ræðirviðfrú
Grete Linck Grönbeck, fyrrverandi
eiginkonu Gunnlaugs Scheving
listmálara.
náms i Kaupmannahöfn.
Þau kynntust á Listaakademíunni í
Kaupmannahöfn árið 1928 og felldu hugi
saman. Bæði voru þau við myndlistarnám.
Grete Linck og Gunnlaugur Scheving. Þau
voru ung og ástfangin og skeyttu lítt um
ólíkan uppruna. • Hún kom frá miklu
menningarheimili á Friðriksbergi, hann frá
fátæku fiskimannaþorpi á Seyðisfirði. Sú
staðreynd átti þó eftir að ráða örlögum
þeirra.
Þau gengu i hjónaband og settust að á
Seyðisfirði. Ólíkar venjur, óblíð veðrátta
okkar hrjóstruga lands, myrkur og einangr-
un reyndu mjög á hina ungu stúlku, sem
gat ekki gleymt dönskum sumaryl og
ilmandi birkiskógum. Þau ætluðu sér að
lifa á list sinni. Frá örófi alda hefur slík
ákvörðun verið vísasti vegurinn til
örbirgðar. Þau voru engin undantekning,
og fátæktin varð þeim að falli.
Um Gunnlaug Scheving, þann frábæra
listamann, þarf ekki að fjölyrða. Grete
Linck heitir nú Grete Linck Grönbeck og
býr í Kaupmannahöfn ásamt seinni eigin-
manni sinum, sem einnig er listmálari.
Gunnlaugur kvæntist ekki aftur.
Grete hefur hlotið viðurkenningu og
unnið til margra verðlauna fyrir teikningar
sínar í heimalandi sínu. Hún hefur einnig
fengist við ritstörf, skrifað greinar fyrir
danska listasafnið og útvarpið. Hún hefur
ritað bók, endurminningar um kynni og
hjónaband þeirra Gunnlaugs og veru þeirra
á íslandi á árunum 1932-’38. Sú bók er
4 Vikan 26. tbl.