Vikan


Vikan - 28.06.1979, Blaðsíða 27

Vikan - 28.06.1979, Blaðsíða 27
GÓÐIR ÆFINGASKÓR EIGA AÐ VERA GÆDDIR EFTIRTÖLDUM EIGINLEIKUM: 1. Góflum stuðningi undir ilina. 2. Hœlkappa, sem veitir góflan stuflning. 3. öruggrí reimun. 4. Fóflraflri, breiflrí tungu. 5. Nægilegu rými fyrir tæmar, bæfli á breidd og hæfl. 6. Hækkuflum breiðum hæl. 7. Sveigjanlegum sóla (hann má ekki hindra eðli- legar hreyfingar). 8. Mjúkum kanti um ökklana. 9. Hæfilega mjúkum sóla. 10. Yfirleflrí úr mjúku, endirgóflu efni. S/æmir skór getavaidið var- anlegum skaða Gerið ekki ykkar ágætu fótum þann grikk að skemma þá með röngum eða lélegum skófatnaði. Þessi regla gildir alltaf, en í eftirfarandi grein er lögð áhersla á fótabúnað þeirra, sem stunda íþróttir, þ.e. svokallaða æfingaskó, sem eru reyndar notaðir svo miklu meira en bara við iðkun íþrótta. Eiginlega ættu allir að hlaupa um berfættir, það færi best með fæturna. En aðstæðurnar leyfa það ekki, hvorki veðurfar né annað. Fyrir þá, sem æfa íþróttir og hlaupa mikið, skiptir skófatnaður- inn mestu máli við útbúnaðinn. Því miður standast ekki allar gerðir æfingaskóa, sem nú eru á markaðinum, þær kröfur, sem gera verður til þeirra. Slæmir skór geta valdið varanlegum skaða. Af skófatnaði fólks að dæma er mei.ihlutinn kominn á kaf í trimmið. Hinir svokölluðu æfingaskór eru orðnir ótrúlega algengur skófatnaður ungra sem gamalla, í vinnu, í skóla, í frístundum. Það stafar náttúr- lega af því, að þeir þykja þægi- legir á fótum, þeir hafa mjúka sóla, fóðraða tungu og efri kanturinn leggst mjúkt að ökklanum. Hins vegar verður að segjast eins og er, að með tilliti til þrifn- aðar, þá er ekki heppilegt að klæðast slíkum skóm daginn út og inn, eins og margra er háttur. Hitinn og rakinn í slíkum skóm mynda til dæmis kjörna gróðrar- stiu fyrir fótsvepp. VON VIKAN OG NEYTENDA SAMTÖKIN Æfingaskór eru hannaðir með það fyrir augum að styðja og' vernda fæturna við hlaup á hlaupabrautum. Þeir henta því ekki beinlínis til hversdagsnotk- unar á hörðu undirlagi til lengri tíma. Og þeir geta verið beinlínis skaðlegir fótum með veikbyggða ökkla og slæmar ristar. Oft virðist útlitið ráða Því miður standast hreint ekki allar gerðir æfingaskóa, sem nú eru á markaðinum, þær kröfur, sem gera á til þeirra. Þá skortir einhverja eða jafnvel alla af þeim kostum, sem einkenna verða góða æfingaskó, en þeir eru í stuttu máli: Stífur stuðningssóli, góður hælkappi, rétt uppbygging hælsins, gott rými fyrir tærnar og hæfilegur sveigjanleiki sóla. Sá sem ekki gætir vel að, gæti lent í því að kaupa sér skó, sem beinlínis valda honum líkþornum, siggi og fleiri vandræðum. Það virðist oft sem útlitið hafi ráðið meiru við framleiðsluna en gæðin. Allir æfingaskór, sem seldir eru á almennum markaði, eru fjöldaframleiðsla, og vitaskuld er ekki hægt að framleiða skó, sem henta öllum fótum jafnvel. En það eru viss atriði, sem ber að hafa i huga, sem við skulum nú líta nánar á. Stuðningssólinn Þann hluta sólans, sem nær frá hælhluta fram að tábergi, köllum við hér stuðningssóla, og það er mikilvægt, að hann sé hæfilega stífur og veiti réttan stuðning. Líkamsþyngd skiptir verulegu máli í því sambandi, og börn þurfa því ekki eins stífan stuðningssóla og fullorðnir. -í sumum æfingaskóm eru settir stuðningspúðar undir iljarnar. Stundum er þar um að ræða litlar, mjúkar plastpjötlur, sem hafa raunar litið að segja. Þeim er jafnvel slett nánast tilviljanakennt innan í skóna, svo að þær eru alls ekki á sama 26. tbl. Vikan 27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.