Vikan - 28.06.1979, Blaðsíða 27
GÓÐIR ÆFINGASKÓR EIGA AÐ VERA
GÆDDIR EFTIRTÖLDUM EIGINLEIKUM:
1. Góflum stuðningi undir ilina.
2. Hœlkappa, sem veitir góflan stuflning.
3. öruggrí reimun.
4. Fóflraflri, breiflrí tungu.
5. Nægilegu rými fyrir tæmar, bæfli á
breidd og hæfl.
6. Hækkuflum breiðum hæl.
7. Sveigjanlegum sóla (hann má ekki hindra eðli-
legar hreyfingar).
8. Mjúkum kanti um ökklana.
9. Hæfilega mjúkum sóla.
10. Yfirleflrí úr mjúku, endirgóflu efni.
S/æmir skór
getavaidið var-
anlegum skaða
Gerið ekki ykkar ágætu fótum þann grikk að
skemma þá með röngum eða lélegum skófatnaði.
Þessi regla gildir alltaf, en í eftirfarandi grein er
lögð áhersla á fótabúnað þeirra, sem stunda
íþróttir, þ.e. svokallaða æfingaskó, sem eru
reyndar notaðir svo miklu meira en bara við
iðkun íþrótta.
Eiginlega ættu allir að hlaupa um berfættir, það
færi best með fæturna. En aðstæðurnar leyfa það
ekki, hvorki veðurfar né annað. Fyrir þá, sem
æfa íþróttir og hlaupa mikið, skiptir skófatnaður-
inn mestu máli við útbúnaðinn. Því miður
standast ekki allar gerðir æfingaskóa, sem nú eru
á markaðinum, þær kröfur, sem gera verður til
þeirra. Slæmir skór geta valdið varanlegum
skaða.
Af skófatnaði fólks að dæma
er mei.ihlutinn kominn á kaf í
trimmið. Hinir svokölluðu
æfingaskór eru orðnir ótrúlega
algengur skófatnaður ungra sem
gamalla, í vinnu, í skóla, í
frístundum. Það stafar náttúr-
lega af því, að þeir þykja þægi-
legir á fótum, þeir hafa mjúka
sóla, fóðraða tungu og efri
kanturinn leggst mjúkt að
ökklanum.
Hins vegar verður að segjast
eins og er, að með tilliti til þrifn-
aðar, þá er ekki heppilegt að
klæðast slíkum skóm daginn út
og inn, eins og margra er háttur.
Hitinn og rakinn í slíkum skóm
mynda til dæmis kjörna gróðrar-
stiu fyrir fótsvepp.
VON
VIKAN OG
NEYTENDA
SAMTÖKIN
Æfingaskór eru hannaðir með
það fyrir augum að styðja og'
vernda fæturna við hlaup á
hlaupabrautum. Þeir henta því
ekki beinlínis til hversdagsnotk-
unar á hörðu undirlagi til lengri
tíma. Og þeir geta verið beinlínis
skaðlegir fótum með veikbyggða
ökkla og slæmar ristar.
Oft virðist útlitið ráða
Því miður standast hreint ekki
allar gerðir æfingaskóa, sem nú
eru á markaðinum, þær kröfur,
sem gera á til þeirra. Þá skortir
einhverja eða jafnvel alla af
þeim kostum, sem einkenna
verða góða æfingaskó, en þeir
eru í stuttu máli: Stífur
stuðningssóli, góður hælkappi,
rétt uppbygging hælsins, gott
rými fyrir tærnar og hæfilegur
sveigjanleiki sóla. Sá sem ekki
gætir vel að, gæti lent í því að
kaupa sér skó, sem beinlínis
valda honum líkþornum, siggi
og fleiri vandræðum. Það virðist
oft sem útlitið hafi ráðið meiru
við framleiðsluna en gæðin.
Allir æfingaskór, sem seldir
eru á almennum markaði, eru
fjöldaframleiðsla, og vitaskuld
er ekki hægt að framleiða skó,
sem henta öllum fótum jafnvel.
En það eru viss atriði, sem ber
að hafa i huga, sem við skulum
nú líta nánar á.
Stuðningssólinn
Þann hluta sólans, sem nær
frá hælhluta fram að tábergi,
köllum við hér stuðningssóla, og
það er mikilvægt, að hann sé
hæfilega stífur og veiti réttan
stuðning. Líkamsþyngd skiptir
verulegu máli í því sambandi, og
börn þurfa því ekki eins stífan
stuðningssóla og fullorðnir.
-í sumum æfingaskóm eru
settir stuðningspúðar undir
iljarnar. Stundum er þar um að
ræða litlar, mjúkar plastpjötlur,
sem hafa raunar litið að segja.
Þeim er jafnvel slett nánast
tilviljanakennt innan í skóna,
svo að þær eru alls ekki á sama
26. tbl. Vikan 27