Vikan - 23.08.1979, Síða 6
Hver á að fá um-
gengnisrétt við
Réiturinn til að fá að sjá og hafa sam-
band við barn sitt þegar fólk skilur heitir
umgengnisréttur. Það er sá réttur sem fólk
rífst gjarnan um viðskilnað Oft þurfa yfir-
völd að grípa inn í til þess að tryggja öðrunt
aðilanum umgengnisrétt. Umgengnisréttur
hefur valdið ntörgum vandamálum. ekki
síst þeint sem hann ætti að vera fyrir: börn-
unum. Börn hafa engan lagttlegan rétt til
umgengnisréttar. Það er stór spurning
hvort svo ætti ekki að vera.
skilnað?
Samkomulag
um umgengnisrétt
Foreldrar skilja. Akvörðun er tekin um
hjá hverjum börnin eiga að vera. í lang-
flestum tilfellum verða börnin eftir hjá
móðurinni. Ef foreldrarnir hafa verið giftir
hefur faðirinn rétt á umgengni við börn sín.
Oft er það samkomulagsatriði hve ntikill
þessi umgengnisréttur á að vera. Stundum
gerir fólk nákvæmt santkomulag unt
hvernig unigcngnisrétti skuli vera háttað.
Viðkomandi hittast kannski örsjaldan, t.d.
einu sinni á ári. eða mjög oft, allt upp í að
haft sé samband vikulega. á stórhátíðum og
yfir suntarmánuðina. Oft kemur hinsvegar
fyrir að foreldrar halda ekki samkomulag
unt umgengnisrétt. Hvernig stendur á því?
Börn notuð sem tæki
í valdabaráttu
Danski lögfræðingurinn Gunnar Bögh,
sem hefur ntargra ára reynslu í því að fjalla
um og ntiðla málurn varðandi umgengnis-
rétt. hefur alveg ákveðnar skoðanir á um-
gengnisrétti. Hann segir m.a. að orsökin
fyrir því að margir foreldrar vilji halda unt-
gengnisrétti til streitu sé vegna þeirra sjálfra
— ekki barnanna vegna. Gunnar segir að
umgengnisréttur sé ágætis tæki fyrir for-
eldra til þess að halda áfrarn að pirra og
pína hvort annað. Þau noti börnin i áfram-
haldandi baráttu, börnin verði einskonar
valdatæki. Þar hjálpi lögin fólki til að mis-
nota börn í miskunnarlausri baráttu.
Gunnar álítur að tekið sé alltof ntikið tillit
til réttar foreldra, en að réttur barnsins
sjálfs sé nánast enginn. Barnið gleymist og
það verði fyrir ómældu sálrænu tjóni vegna
þess að málið snýst í rauninni ekki um hvað
sé því fyrir bestu. Lögin hjálpa til. Lögin
eru gerð af fullorðnum fyrir fullorðna.
Börn skipta litlu máli. Þess vegna sé
umgengnisréttur í rauninn aðskilnaðar-
réttur.
Réttur barnsins
Faðirinn eða móðirin geta fengið um-
gengnisrétt, en barnið sjálft á engan rétt á
slíku. Þessu er þó ekki allsstaðar þannig
varið, t.d. í Noregi. Þar er ekki talað um
rétt föður eða móður til barnsins, heldur
um rétt barnsins til þess að vera með því
foreldri sem flyst burt við skilnað.
Við skilnað getur barn haft allt aðrar
þarfir en þeir fullorðnu. Það eru sálfræði-
legar þarfir barns sem langoftast rekast á
við þarfir foreldra við skilnað. Bam getur
t.d. haft brýna þörf fyrir að hafa einmitt
ekki samband við þann aðila sem flytur
burt við skilnað. Það getur líka haft þörf
fyrir að samband við aðilann sé algerlega
rofið í einhvern vissan tíma. Lögin taka
ekkert tillit til sálfræðilegra þarfa barna, og
það er nt.a. þess vegna að umgengnisréttur
Umgengnisréttur
og samvinna foreldra
Framkvæmd umgengnisréttar getur
gengið átakalaust fyrir sig, en það eru hins-
vegar fleiri dæmi um að framkvæmd hans
sé erfiðleikum bundin. Oft halda foreldrar
ekki það samkomulag sem gert var við
skilnaðinn, og oft hefur ekki verið nægjan-
lega vel gengið frá samkomulagi.
Þegar fólk ákveður að gifta sig hugsar
það yfirleitt ekki um, að það geti skilið
seinna meir. Skilnaðarsérfræðingarnir
Bente og Gunnar Öberg segja að í þjóðfé-
lagi nútímans ætti að halda eftirfarandi
ræðu yfir brúðhjónum: „Kæru vinir, ég
vona að þið hafið verið svo skynsöm og
vitur að velja hvort annað út frá þeim
eiginleikum sem þið sýnið við hugsanlegan
getur verið ósamræmanlegur þörfum
barnsins.
Danski lögfræðingurinn, Bögh, viður-
kennir að lögfræðingar séu langt frá að
vera nógu hæfir til að taka ákvarðanir í
mikilvægum fjölskyldumálum er snerta
skilnað. Þeir eru hreinlega ekki menntaðir til
að setja sig inn í flókin fjölskylduvandamál.
Skilnaður er miklu meira en lögfræðilega
hliðin. Bögh styður að sérmenntað fólk
með þekkingu á börnum og fjölskyldu-
málum aðstoði fólk sem stendur í skilnaði.
6 Vikan 34- tbl.