Vikan - 23.08.1979, Blaðsíða 9
Frá Ukavittos ar stórfenglegt að sjð
Ijósasýninguna á Akrópólis.
okkur i þveröfuga átt og horfa á Akró-
pólis úr suðvestri. Þar er veitingahúsið
ÐIONISOS rétt við uppganginn á
sjálfa Akrópólis.
Nafnið er hið sama og á fyrstnefnda
veitingahúsinu, enda er fyrirtækið hið
sama. Heimilisfangið er á homi Rover
etu Galli og Ðionissíú Eropagitú. Sím-
inn er 923—3182 og hér þarf lika að
panta í sima, ef maður vill fá fullkomið
útsýni.
Senniiega er héðan allra besta út-
sýnið til Akrópólis. Neðst sér maður
leikhúsið Heróðes Attíkus. Ofar sér
maður hinar miklu tröppur með súlna-
göngum og Nike-musterinu. Efst gnæf-
ir svo hið hrikalega Parþenon-hof í
allri sinni dýrð. Og allt er þetta aðeins
steinsnar frá þér.
Þarna skaltu lika panta borð að
kvöldi til og velja svalirnar, ef ekki er
of kalt í veðri. Þarna nýtur þú best
flóðljósasýningarinnar, sem hefst um
klukkan níu. En vertu kominn klukkan
átta, svo þú sjáir dýrðina lika í dags-
birtu.
Þvi miður var ég gestur þarna og
hafði ekki aðstöðu til að kynna mér
verð á matnum. En mér er sagt, að
það sé örlítið hærra en á nafnanum
uppi á Likavittos. Maturinn er heldur
verri og þjónustan afleit. En þú mátt
bara ekki vera að því að hugsa um það
vegna hins einstæða útsýnis.
Séð úr rúmi sínu
Ég hef nú gengið freklega fram í að
benda á, hvernig menn geti orðið gjald-
þrota af Akrópólis-glápi. Því er ekki
nema sanngjarnt, að ég bendi á einn
matstað, sem kostar nánast ekki neitt.
Við bjuggum um tima á ATHENS
GATE hóteli við Syngrú 10 og höfð-
um herbergi á fimmtu hæð af sjö
mögulegum. Þar höfðum við svalir og
miklar glerdyr, sem hægt var að draga
alveg frá. Siðan gátum við lagst upp í
rúm og horft beint upp á sjálft Parþen-
on á Akrópólis úr suðausturátt.
A Ðkmisos sátum við aftast til hægri
vifl Irtla borðifl næst brúninni.
Við fórum út á götuhorn og keypt-
um okkur ýmsar tegundir af frábærum
rúsínum og hnetum, svo og besta hun-
ang í heimi. Hjá næsta götuhornskarli
keyptum við brauð og kökur,
KÚLÚRI, BÚREKIA, BÚGATSA, og
PlROSKI. Þetta kostaði samanlagt
næstum ekki neitt. Og þetta mauluðum
við uppi í rúmi með Parþenon nánast í
fanginu, í 400 metra fjarlægö.
Fáðu þér þvi herbergi á Athens
Gate, nógu hátt uppi. En gerðu það
helst utan aðalferðamannatímans því
að þá heimtar hótelið ekki „hálft
borð”. Og enginn maður með fullu viti
borðar „hótelmat”.
Jónas Kristiánsson.
1 næstu Viku:
Sextán réttir
í skuggahverfmu
34- tbl. Vikan 9