Vikan


Vikan - 23.08.1979, Page 43

Vikan - 23.08.1979, Page 43
Hendið gömlum lyfjum! Einn daginn finnur þú til óþæginda. Ekkert alvarlegt — alla vega ekki svo að þú farir að eyða tima og peningum í að ná í lækni eða fara í apótek, sem hvort tveggja getur verið i órafjar- lægð. Smávegis hósti, hálsbólga, magaverkur, sem ekki linnir, höfuðverkur, eitthvað slíkt sem þú hlýtur að geta bætt um sjálfur. Þú rótar svolítið í meðala- skápnum (sem örugglega þarf að laga dálítið til í) og yfirleitt finnur þú eitthvað, sem notað var við svipuðum veikindum áður. En svo staldrar þú við og hugsar: Hvenær keypti ég aftur þetta meðal? Er það kannski svo gamalt að það gæti verið hættulegt? Þú snýrð og veltir glasinu fyrir þér. Nei, það stendur hvergi, hvað það á að endast lengi. Þýðir það kannski að það endist í hið óendanlega? Á ég ekki bara að sjá til? Nei, það átt þú ekki að gera. I flestum tilfellum missa gömul meðul aðeins áhrif sín við aldur. Hins vegar er nokkuð um meðul, sem beinlínis geta verið skaðleg, vegna þess, að þau inni- halda efni, sem breytast í eitur- efni, ef þau eru geymd of lengi. Eftirlit og geymsluþol Allir framleiðendur lyfja, sem sett eru á markað hérlendis, Ödagstimpluð lyf eru talin hafa allt að sex ára geymsluþol. Það fer hins vegar allt eftir því, hvernig og hvar þau eru geymd. Ef þú notar þau ekki, eða heldur að þau séu oiðin of gömul, skaltu henda þeim. verða að greina frá geymsluþoli auk annars í skýrslu til Lyfja- eftirlitsins. Á lyfjum, sem hafa minna geymsluþol en fimm ár, verður að vera dagsetning. Ef ekki er prentuð dagsetning á meðalaglasið, má reikna með, að geymsluþol þess sé alls ekki meira en sex ár frá framleiðslu- degi. Lyf, sem framleidd eru í apó- tekum og hafa lítið geymsluþol, etu einnig dagstimpluð. Haft er eftirlit með hráefnum í þessum lyfjum og hversu lengi má nota þau, og kemur það í veg fyrir, að meðul, sem eru of gömul, séu af- greidd úr apótekum. Oft kemur þó fyrir, að ekki er greint frá hvert geymsluþol meðalsins er og getur það lent í langri geymslu hjá neytandanum. Leyft er að selja ódagsett lyf í allt að sex ár frá framleiðsludegi. Trúlegast er þó besta ráðið að geyma ekki lyf heima fyrir nema í mesta lagi tvö ár. Farið eftir geymslureglun- um! Allar dagstimplanir eru settar á meðul í samræmi við geymslu- þol og reglur varðandi geymslu. Ef á lyfjaglasinu stendur „Geymist í kæli”, er þýðingar- mikið, að lyfið sé geymt í kæli. Ef þessum geymslureglum er ekki hlýtt, minnkar geymslu- þolið. I baðherbergjum, þar sem loft er tiltölulega meira raka- mettað en annars staðar, minnk- ar t.d. geymsluþol á töflum veru- lega. Athugaðu sjúkrakassann! Ef lyf og önnur efni í sjúkra- kassanum eru ekki dagstimpluð á geymsluþol þeirra að vera sex ár. En hins vegar er á það að líta, að varla eru lyfin og bindin sett glæný í kassana, svo ráðlegt er að skipta oft um þau, t.d. annað hvert ár. Sért þú í vafa, skaltu líta við í einhverju apótekinu og biðja starfsfólk þar að cndurnýja kassann. Það á sem sagt ekki að geyma lyf í meðalaskápum og sjúkra- kössum á heimilum og í bilum lengur en tvö ár, segja sérfræð- ingarnir. Það væri kannski gáfu- legt að athuga meðalaskápinn og henda lyfjum, ef þú ert í vafa? Hvað er t.d. langt síðan þú leist í sjúkrakassann í bílnum? Hvernig losar þú þig við gömul meðul? Hentu samt ekki lyfjum þannig að börn og dýr eða aðrir óviðkomandi geti komist í þau. Apótekin eru trúlega rétti stað- urinn til þess að taka við slíku og koma því í lóg, sérstaklega sterkum efnum. Venjulegum lyfjum, sem eru orðin ónýt eða ekki not fyrir lengur, er hægt að sturta niður í klósettið. Þýð.: HP. Birt í samráði við Neytendasamtökin. ílr Rád og Rön VON VIKAN OG NEYTENDA- SAMTÖKIN 34. tbl. Víkan 43

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.