Vikan - 23.08.1979, Síða 62
PÓSTIRIW
Finnst hann
sætur og
skemmtilegur
Kæri Póstur!
Ég hef aldrei skrifad þér
ádur svo aö ég vona aö þú birt-
ir bréfið. Ég er hrifin af strák.
sem er 18 eda 19 ára (sjálf er
ég 14 ára). Mér finnst hann
bædi sœtur og skemmtilegur.
Stundum þegar ég hitti hann
verö ég dálitiö feimin. Hvaö á
ég að gera svo ég geti talað
meira við hann og hitt hann
oftar? Segðu ekki gleymdu
honum því honum gleymi ég
aldrei. Meö fyrirfram þökk
fyrir birtinguna.
Þóra.
P.S. Hvað á ég að vera þung
þegar ég er 1.62 sm á hæð.
Það er alls engin ástæða fyrir þig
að reyna að gleyma honum, en
hins vegar skaltu láta hér næo'a
að dást að honum úr fjarlægð.
Hann er bæði heldui \m ...
fyrir þig og svo gerir fiarl rgð n
fjöllin blá. Á þínum aldri er
miklu meira spennandi að ciga
svona leynda ósk og alls ekkert
æskilegra eða betra að óskin
rætist.
Hæfileg þyngd fyrir þig er um
það bil 55 kíló, miðað við að þú
sért ekki mjög stórgerð.
Hrifin af
tveimur í einu
Kæri Póstur!
Ég þakka allt gamalt og gott
efni I Vikunni. Ég kaupi hana
oftast og finnst hún mjög góð
og skemmtileg. Mér þykir þú
gefa öðrum góð ráð og settist
því niður og skrifaði smá
snepil. Jæja. best að koma sér
að efninu. Þannig er mál með
vexti að ég var hrifin af strák
sem er einu ári eldri en ég, en
svo hætti ég að hugsa um
hann. Síðan fór ég að hugsa
um strák sem er þremur árum
eldri en ég. Þessi strákur, sem
er þremur árum eldri, á ekki
heima hér (þarsem égá heima)
heldur úti á landi. Svo um
daginn varð mér það Ijóst að
ég er hrifin af þeim báðum.
Mér finnst ég ekki geta verið
hrifin af þeim báðum í einu,
hvað finnst þér? Jæja, þá segi
ég bara bæ, bæ.
Með fyrirfram þökk fyrir
birtingu.
Gunný.
Það er ekkert sem mælir á móti
því að þú getir verið hrifin af
þeim báðum í einu. Það væri
hins vegar erfiðara í fram-
kvæmd ef þú reyndir að vera
með þeim báðum í einu, því ekki
er víst að þeir sættu sig við það.
Líklega er allra best fyrir þig að
láta þér nægja dagdrauma í sam-
bandi við þá báða, enda senni-
lega ólíkt skemmtilegra og vand-
ræðaminna þegar til lengdar
lætur.
Myndavélar og
framköllun
Halló Póstur!
Ég vona að Helga sé ekki
glorhungruð núna því þetta er í
fyrsta sinn sem ég skrifa þér.
Hvaða munur er á 35 mm
myndavél og venjulegri Kodak
myndavél? Hver er munurinn á
Zoom-linsu og venjulegri linsu?
Hvað er t.d. Hoya-filter. Ef
135 mm linsa er á myndavél,
er þá hægt að setja 200 mm
linsu á eða verður fyrst að taka
135 mm linsuna af? Og að
lokum, hvar get ég afað mér
upplýsinga um myndavélar og
framköllun?
Með fyrirfram þökk fyrir
birtinguna.
Einn fáfróður.
35 mm myndavélar eiga að gefa
betri ljósmynd. Til dæmis getur
þú tekið myndirnar úr meiri fjar-
lægð. Filterar eru til í ýmsum
gerðum, sumir eru til þess að
hlífa linsunni en aðrir til að fá
skýrari mynd. Það verður alltaf
að taka þá linsu, sem fyrir er, af
til þess að setja aðra í staðinn.
Annars getur þú fengið allar nán-
ari upplýsingar í næstu ljós-
myndaverslun, og í bókabúðum
og á bókasöfnum má fá ýmsar
bækur um þetta efni.
Ein öfundsjúk
Sæll og blessaður, kæri Póstur!
Eg hef aldrei skrifað þér
áður og vona að Helga sé södd.
Eg er skotin í strák en hann er
skotinn í annarri stelpu. Hvað
get ég gert, stelpan sem hann
er með er vinkona mín.
Þakka birtingu.
Ein öfundsjúk.
Ha, ha, þú ert alveg óvenjulega
hreinskilin unglingstelpa! Það er
vist fátt sem þú getur gert því
vináttan milli ykkar vinkvenna
er ólíkt þýðingarmeiri en það
hvort þér tekst að krækja í hann
frá. vinkonunni. Að eyðileggja
slíkt fyrir vinkonu sinni er
slæmur siður og ekki líklegur til
að afla þér vina í framtíðinni.
Aldur þinn er líka ekki ýkja hár
og ekki ósennilegt að þú hafir
löngu gleymt hvern þú hafðir í
huga þegar þetta birtist.
Tungumála-
kennsla í Dan-
mörku og Eng-
landi
Komdu sæll, kæri Póstur!
Eg ætla að byrja á því að
þakka þér fyrir frábært lesefni.
Mig langar til að spyrja þig um
tungumálakennslu í Danmörku
og Englandi.
1. Hvar og hvenær eru nám-
skeið: 1 ensku á Englandi og í
dönsku í Danmörku?
2. Býr maður hjá fjölskyldum,
á hótelum eða í heimavist?
3. Hvað mundirðu halda að
það kostaði að fara á svona
námskeið í mánuð?
Með fyrirfram þökk fyrir
birtingu.
Hrönn.
Til þess að fá tæmandi svör við
þessum spurningum þarft þú
helst sjálf að hafa samband við
viðkomandi sendiráð. Einnig
hafa ferðaskrifstofurnar mikið
haft milligöngu í slíkum málum,
svo sem Útsýn. A vegum Út-
sýnar er skóli i Bonmegouth í
Englandi fyrir aldurinn 15 ára
og eldri. Þar er búið hjá fjöl-
skyldum. Annar er á þeirra
vegum skammt frá fyrir 14 ára
og yngri. Skólar þessir kosta
með fari eitthvað í kringum
400—500 þúsund.
62 Vikan 34. tbl.