Vikan


Vikan - 03.01.1980, Qupperneq 36

Vikan - 03.01.1980, Qupperneq 36
Víkan og Neytendasamtökin Börn eru litlar Ef við lítum í náms- bækur húsagerðarmanna getum við séð þéttskrif- aðar blaðsíður um nákvæm mál fyrir allar hugsan- legar þarfir mannsins. Þar er fjallað um allt frá leikhússviði til þess hve teskeiðinni er ætlað stórt rúm í áhaldaskúffunni. Allt er nákvæmlega útreiknað. En sé leitað eftir hver skulu vera málin á þeim hlutum, sem börnum eru ætlaðir, er ekki um auðugan garð að gresja. Það skoðast aðeins sem tímabundið ástand að vera barn. Stærð barnsins er ekki viðurkennd og mikil- vægasta hlutverk barnsins talið að vaxa og verða eins stórt og við hinir fullorðnu.' Ef eitthvað er framleitt fyrir börn og lagað að þeirra stærð — er oftast um að ræða smækkaða mynd af „fullorðins- hlutum”. Við gerum þær kröfur að barnið vilji það sama og fullorðnir, vilji vera eins og við. Við gleymum því, að börn hafa ekki getu til að skilja hvers við krefjumst af þeim. í mörg ár er þörf barnanna sú að finna til öryggis meðal okkar — þessu viljum við gleyma. Við megum ekki gleyma, að heimur barnsins og öryggistilfinning þess í bernsku hefur mikil áhrif á fullorðinsaldri. Ef við getum veitt þeim öryggi meðan þau eru lítil finnst þeim þau kannski alveg mátulega stór hverju sinni. Getum við gert eitthvað varðandi okkar næsta um- hverfi, sem skaþar börnunum okkar það öryggi, sem þau þarfnast? Getum við gefið þeim rými og nóg pláss, svo að þau megi þroskast eins og eðlilegt er? Getum við komist hjá óþarfa árekstrum á heimilinu, sþarað okkur og börnunum angur vegna ólíkra þarfa, manneskjur Lítil — ég? Nei, langt frá því? Ég er alveg mátulega stór — fylli alveg út í mig bæði á lengd og breidd. Ert þú kannski stærri en þú sjálfur? * forðast slys og komist hjá of miklu álagi? Það er ekki nauðsynlegt að kosta miklu til fjárhagslega til að bæta aðstöðu litlu mann- eskjunnar á heimilinu. Við verðum að reyna að skilja hvað er mikilvægt fyrir litlar manneskjur — án þess að við verðum sjálf fórnardýr þarfa þeirra. Margoft hefur verið bent á ýmsar hættur sem leynast í umhverfi barna, s.s. rafmagnsinnstungur, rafmagnstæki ýmiss konar og rafmagnssnúrur, of lág handrið og meðul, sem látin eru standa þar sem börn ná til. En það er fleira innan veggja heimilanna sem þarf að huga að. Við skulum nú líta á aðra hluti á heim- ilunum, sem ekki eru beint hættulegir en geta orsakað árekstra milli barna og fullorðinna. Um leið og börn okkar taka fyrstu sþorin út í lífið koma erfiðleikarnir í Ijós. Barnið hefur verið verndað í rúmi sínu, leikgrind og á handlegg hinna fullorðnu, nú þarf það eitthvað til að halda sér í fyrstu skrefin. Óhreinir, klístrugir fingur grípa í það sem hendi er næst. Þvottekta veggfóður, tré- veggir og sléttir málaðir fletir eru ekkert vandamál, það þarf bara að strjúka af oftar en áður. Við verðum að umbera fingraförin. Frá 6-7 mánaða aldri unir barnið oftast vel í háum barnastól. En smám saman vill það reyna að borða sjálft, halda sjálft á skeiðinni, berja í borðið, velta mjólkurkönnunni, sulla og sóða út. Þolir borðþlatan slíka meðferð? Það verða ótal för og rispur. Þarna gæti lítið bretti komið í veg fyrir skemmdir. För og rispur sjást betur á dökkum flötum en Ijósum. Olíuborið eða 36 Vlkan X.tbl.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.