Vikan


Vikan - 03.01.1980, Side 38

Vikan - 03.01.1980, Side 38
Vikan og Neytendasamtökin Börn 3-4 ára Börn 5-7 ára Fullorðnir 104 sm 120 sm 160-180 sm að þau líti á fína barna- herbergið eins og fangelsi. En ef við aftur á móti látum barniðfinna, að stofan er því ætluð alveg eins og okkur, mun barna- herbergið áreiðanlega verða kærkomið afdrep fyrir barnið, þegar það vill vera eitt eða loka sig inni með vinunum. Á haustin og veturna, þegar börnin þurfa oft að vera inni mikinn hluta dagsins, þurfa þau meira pláss en venjuleg barna- herbergi bjóða upp á. Þau vilja byggja hús með teppum og púðum, leika lestaleik með stólunum og skríða undir borðstofu- borðið eða bak við sófana. Getum við ekki leyft þeim þetta? Auglýsendur ganga reyndar oft á undan og sýna okkur stofur með ein- földum, þægilegum hús- gögnum, klæddum mjúk- um, þvottekta áklæðum. Það eru rennilásar á púðum og verum utan um sessurnar og með einu handtaki má taka verið af og setja það í þvott. Þetta lítur vel út. Sérstak- lega kann okkur að sýnast þægilegt að geta þvegið verin. En þetta er ekki eins einfalt og okkur sýnist í auglýsingunum. Það er þó nokkuð fyrirhafnarsamt að taka slík ver af, þvo þau og koma þeim aftur á sessur og púða. Höfum við tíma og þrek? Oftar vill það líklega verða svo, að húsgögnin eru orðin illa óhrein þegar við loksins gefum okkur tíma til að taka í gegn og þá erfitt að ná burtu blettum, sem lengi hafa setið í. Meira að segja getur svo illa tekist til, að efnið hlaupi eða litir renni til. Þykkt, þéttofið og slétt ullaráklæði, eða blandað ull og rayon, er ólíkt betra efni á húsgögn. Það má þurrka af því og hreinsa með svampi og sápu og endist mörg ár. Því skal ekki á móti mælt, að það getur verið þægilegt að hafa rennilás á verunum þar sem því verður við komið. Þá getum við líka sjálf saumað eftir því gamla, þegar þarf að endurnýja áklæði. Blettir sjást síður á röndóttu eða öðru munstr- uðu efni. En fyrir alla muni skulið þið vel ja áklæði, sem þolir smáslys. Það má ekki verða uppþot, þó litla manneskjan sulli niður úr bollanum sínum í húsgögnin eða klíni þau út. Getum við sett okkur í spor litlu manneskjunnar þegar hún kemur heim þreytt eftir langan dag í leikskóla eða í bænum með mömmu? Er nokkur furða þó hún verði uppgefin? Eða þá mamman? Það er ekkert skrýtið þó það kosti fyrirhöfn og armæðu að komast upp á fjórðu hæð með börn og vörur. Það er dýrt að hafa lyftur og í sjálfu sér ekkert slæmt að ganga stiga, enda oft eina hreyfing margra. En barnanna vegna væri óneitanlega betra að hafa lyftu. En gæti ekki verið hjálp í auka handriði, sem sett væri neðan við það sem ætlað er hinum fullorðnu. Hugsiðykkur hve hátt lítið barn þarf að lyfta fætinum við hvert skref. Yfirleitt eru það konur sem sinna því þolinmæðis- verki að drösla börnum upp erfiða stiga. Völ á hlutastarfi fyrir foreldra ungra barna er fyrst og fremst barninu í hag. En nú er komið inn á aðrar brautir og við skulum hyggja að næsta atriði. Við sjáum fimm ára barn teygja sig í dyrabjöll- urnar. Barnið nær ekki í bjölluna á fjórðu hæð. Hvaða ástæða getur verið til þess að setja bjöllu- hnappana svona hátt? Það er erfitt að koma auga á hana. Manneskjan, sem situr í hjólastól, getur ekki heldur náð að hringja á bjöllur, sem eru svona hátt. Þetta ættu húsa- gerðarmenn að íhuga. í nýtísku íbúðum er oft lítið pláss fyrir utanyfir- flíkur, útiskó og þess háttar. Það verður ekki hjá því komist þar sem börn eru, að þeim fylgi mikill búnaður. Börnin henda oft af sér fötunum við útidyrnar um leið og þau koma inn og svo hnjót- um við um hrúguna. En við GETUM reynt að gera eitthvað til hagræðis eins og t.d. sýnt er hér á síðunni. í hillunni er pláss fyrir stígvél og skó og í efri hillunum liggja vettl- ingar, húfur og annað laus- legt. Sumum börnum þykir skemmtilegt að hafa reglu á hlutunum sínum, ef þau hafa aðstöðu til þess. Öðrum finnst það algjört aukaatriði (það finnst sumum fullorðnum líka!). Börn vilja gjarnan bjarga sér sjálf. Oft þurfa þau hjálp við að fara úr stígvélunum og það er átak fyrir bakið. Stígvélaþrællinn gæti þjónað barninu og um leið létt af okkur erfiði. Hér er sýndur einfaldur, heimatilbúinn stígvéla- þræll. Þessi þriggja ára piltur á myndinni á létt með að klæða sig sjálfur úr með hjálp þrælsins. Börn hafa gaman af að sulla við vaskinn, þvo sér sjálf eða hjálpa til við uppþvottinn. Ef við út- vegum skemil til að standa á, mun barninu finnast það miklu öruggara og öðlast sjálfstraust, þegar það finnur að það er nógu stórt til að ná upp í vaskinn. Yfirleitt eru það ekki dýrir hlutir, sem við þurfum til að gera um- hverfi barnsins hættuminna og þægilegra. Börnin þarfnast fyrst og fremst hinna fullorðnu, sem hafa úthald og þolinmæði. En það er mjög mikilvægt að við veljum hentuga innan- stokksmuni og sköpum heimili þar sem barninu líður vel og þar sem því er 38 Vlkan I. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.