Vikan


Vikan - 03.01.1980, Síða 42

Vikan - 03.01.1980, Síða 42
Vikan og Neytendasamtökin KVEFOG INFLÚENSA Nánast allar manneskjurfá kvef, sumir oft og iðulega, aðrir stöku sinnum. Kvef er tiltölulega meinlaust, en oft verulega óþægilegt. Yfirleitt getur fólk verið við vinnu. Ekkert meðal læknar kvef, en viss lyf bæta líðan manns. Infúensa er oft lík miklu kvefi, en henni fylgir yfirleitt nokkuð hár hiti og mjög mikil óþægindi. Það er hægt að bólusetja gegn infúensu, en ekki eru tök á að bólusetja alla. Heilsulítið fólk og fólk, sem gegnir mikilvægum stöðum, gengur yfrleitt fyrir. Viss lyf geta linað þjáningar eða óþægindi, semfylgja infúensu. Oftast er fólk eina viku frá vinnu, en er lengi að jafna sig eftir veikindin. Þegar þú ert með nefrennsli, sviða í augum og átt erfitt með að kyngja, þá ertu með kvef. Þú gætir líka verið með inflúensu. Einkennin eru ekki ósvipuð, þó hefur inflúensa miklu meiri áhrif á allan likamann. En hvað er eiginlega kvef og inflúensa, og hver er munurinn á þessu tvennu? Kvef er lasleiki, sem við fáum nánast öll og veldur okkur tölu- verðum óþægindum og stundum svo miklum, að við treystum okkur ekki til vinnu. Þekktur og óþægilegur sjúk- dómur, en hættulaus. Inflúensa er alvar- legri veiki. KVEF Allir þekkja þessi einkenni: Sviða i augum og nefi, höfuðverk, slappleika og óþægindi af ýmsu fleira tagi. Sumir fá jafnvel lágan hita. Slðar stíflast nefið og oft fylgir þrálátur hósti í kjölfarið. Yfir 90% kvef- og smitsjúkdóma i ytri öndunarfærum orsakast af örsmáum veirum, þeim smæstu sem við þekkjum. Rannsóknir hafa ekki verið teljandi á þessum sjúkdómi, m.a. vegna þess hve meinlaus hann er álitinn. Talið er, að um fleiri mismunandi sýkla sé að ræða, en ekki vitað mikið um málið. Mikið af rannsóknum á sjúkdómum almennt fer fram I sambandi við sjúklinga á sjúkra- húsum, og enn sem komið er hafa sjúkl- ingar með kvef ekki verið lagðir inn á sjúkrahús. Veðrabreytingar hafa oft þær afleið- ingar að fólk fær kvef og oft fær fólk, sem er að koma heim frá suðlægum löndum, kvef. Fólk er oft kærulaust um að klæða sig i samræmi við veðrið og móttækilegra fyrir smitun en ef það væri hlýlega búið. Kveftilfellum fjölgar alla jal'na vor og haust. Fólk virðist þá oft óvarkárt og klæðir sig ekki eftir veðri, heldur frekar eins og það vill að veðrið sé. Það er sannað, að fóthiti er svipaður og hiti í nefgöngum og koki. Ef maður er kaldur og rakur á fótum, lækkar hitinn I öndunarfærunum. Mótstöðuaflið I sllm- himnunum gegn smiti er háð ákveðnu hitastigi. Ef það er of lágt skapast hagstæðari skilyrði fyrir veirur. Maður getur sem best smitast af kvefi, án þess að veikjast að ráði, ef mótstöðuaflið er óveikt. Því er mikilvægt að vera rétt búinn og halda sér þurrum. AFAR SMITANDI Kvef er mjög smitandi. Smit getur legið I loftinu lengri tlma. Ef einhver, sem er kvefaður, yfirgefur herbergi þar sem hann hefur dvalið um stund og einhver annar kemur þar inn nokkrum tímum siðar, getur viðkomandi smitast. HITI Yfirleitt fylgir ekki hiti kvefi. En þó kemur vissulega fyrir að hitinn hækki. Fari hann yfir 38 stig ætti fólk að halda sig heima við og taka lífinu með ró. Það er ekki nauðsynlegt að vera í rúminu. Það er stundum erfitt að meta hvort maður á að vera heima frá vinnu, ef maður er með kvef, en ekki hita. Ef óþægindi eru veruleg og fólk treystir sér illa að vera við vinnu, er sjálfsagt að vera heima einhverja daga. En ef líðanin er ekki þvi verri, er ekkert því til fyrir- stöðu, að fólk stundi sin störf. Auðvitað á maður á hættu að smita samstarfsfólk sitt, og þvl er þörf á aðgætni I umgengni við aðra. Ráðlegt er að þvo oft hendur, nota vasaklúta þegar maður hóstar og hnerrar og forðast að koma of nærri fólki. En við getum smitast alls staðar og ekki auðvelt að forðast slikt. Á AÐ LEITA LÆKNIS? Læknar geta ekki mikið gert við kvefi. Þeir geta ávísað á hóstasaft eða nef dropa, en það er líka hægt að fá slíkt án lyfscðils. Það er því í flestum tilfellum algjörlega ónauðsynlegt að ónáða lækni vegna kvefpestar. ÞEGAR EINKENNIN GERAVARTVIÐ SIG Margir hafa spurt, hvort ekki sé hægt að stöðva kvef, þegar það gerir vart við sig. Sumir hafa trú á stórum skömmtum af C-vitamíni. Miklar umræður hafa farið fram um áhrif C-vitamíns gegn kvefi og sýnist sitt hverjum. Nóbelsverðlaunahafinn Linus Pauling er þeirrar skoðunar, að C-víta- min komi að haldi. Fjöldi annarra vísindamanna innan lyfjafræði telur að C-vítamín sé til gagns. En til að sanna áhrifin þarf að fara fram umfangsmikil rannsókn. Það er mælt með að taka 10-20, 50 milligr töflur. Fólk, sem er viðkvæmt í maga, ætti að gæta sín á lyfinu, sem inniheldur sýru og getur aukið maga- sýrurnar. Best er að taka vitamínið strax og vart verður sárinda í hálsi og nefi. Það kemur ekki að haldi að taka C-víta- min, eftir að kvefið hefur náð sér veru- lega niðri. Höfuðverkur fylgir oftast kvefi og þá koma venjulegar verkjatöflur að gagni. Helst eru það töflur sem innihalda m.a. acetylsalicylsýru, en þessar töflur geta ert magaslímhúðina og valdið óþægind- um — jafnvel leitt til magasárs hjá þeim, sem eru sérstaklega viðkvæmir i maga. Þvi ber að taka slík verkjalyf með gát. Mörgum finnst gott að sjúga beiskar töflur og telja þær geta bætt líðan sina. Þetta er umdeilt meðal sérfræðinga, en margir, sem nota svona töflur, staðhæfa að þær geri gagn. Við erfiðum hósta er hægt að kaupa ýmsar tegundir af hóstasaft, bæði með og án lyfseðils. Sumar þessar blöndur innihalda alkóhól — þeir sem ekki drekka áfengi þurfa að athuga það. Áfengissjúklingar verða því að gæta sín, það er fyllsta ástæða til að spyrjast fyrir I lyfjabúðinni, áður en maður kaupir hóstasaft. Reynt hefur verið að bólusetja gegn kvefi, en árangur ekki verið mikill. Því hefur ekki verið reynt að beita þvi ráði. U.þ.b. 10% kveftilfella orsakast af gerlum. Slík tilfelli eru erfiðari og veikindi meiri en þegar um venjulegt kvef er að ræða. Oft fylgir bólga í ennis- og kinnholum. Þá er þörf að leita læknis. Þeir sem fá slikt kvef einu sinni læra fljótt að þekkja einkennin og þá gildir að leita sem fyrst læknis áður en kvefið er orðið mjög slæmt. Fleiri en eitt lyf er notað í slíkum tilfellum og fer eftir mati læknis hverju sinni. INFLÚENSA Inflúensa er vírussjúkdómur. Oft líkist sjúkdómurinn slæmu kvefi, en einkennin eru yfirleitt miklu ákveðnari. Oftast fylgir hár hiti (40 stig) og eymsli í Iiðum og vöðvum. Maður verður máttlaus og þróttlítill, oft verulega þjáður, og getur litið annað gert en skríða upp í rúm. Það eru til ýmsir stofnar af inflúensu. Hin óttalega spánska veiki sem gekk eins og faraldur kringum 1920 var ein tegund inflúensu. Asíuinflúensa er önnur tegund inflúensu og Hong-Kong veikin sú þriðja. Það er einkennandi fyrir inflúensu, að hún getur á fáum árum breiðst út og orðið faraldur um stóra hluta heimsins. INFLÚENSA GETUR LEITTTIL DAUÐA Inflúensa er ekkert alvarlegur sjúk- 42 ViKan X. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.