Vikan - 03.04.1980, Page 40
Hótel Columbus - St. Ponsa
Vinsælt þriggja stjörnu hótel í hinum vinalega
baðstrandarbæ St. Ponsa. Öll herbergi eru með baði
og svölum. Stórt útivistarsvæði með sundlaugum og
leiktækjum. Dansað 3 kvöld í viku og önnur kvöld
haldið bingó, tískusýningar og fl. í ár mælum við
sérstaklega með Hótel Columbus.
Banatica Magaluf
Banatica er staðsett vestast við Magaluf ströndina.
Allar íbúðirnar eru með'tveimur svefnherbergjum.
Umhverfið og útsýnið er rómað fyrir fegurð og ró.
Royal Magaluf
Þetta mjög rómaða íbúðarhús býður íbúðir, sem eru
,,stúdíó” og 1 svefnherbergi. Það er staðsett alveg á
Magaluf ströndinni. Auk þess eru sundlaugar og stór
verönd fyrir framan bygginguna.
Hotel Pax - Magaluf
Þriggja stjörnu hótel, vestast í Magaluf. Hótelið hefur
spánskt yfirbragð. Það hefur verið mjög eftirsótt af
Urvals-farþegum á undanförnum árum, enda ekki
brugðist kröfum þeirra. Fullt fæði.
Magasol - Magaluf
Nýtt íbúðarhús (1978) vestarlega í Magaluf aðeins 100
m frá ströndinni. íbúðirnar eru „stúdíó” — með einu
svefnherbergi eða tveimur svefnherbergjum. Á fyrstu
hæð er „cafeteria” með setustofu og leikherbergi fyrir
börn. Á þaki hússins er sólverönd með lítilli barna-
sundlaug. Barnaleikvöllur, verslanir og fl.
Skrifstofa Urvals er í Magasol byggingunni.