Vikan - 12.06.1980, Síða 6
Listahátíð í Reykjavik.
Erlingur f hlutverki hjartasór-
fræðingsins, nývaknaður.
Æfingum á leikritinu Snjó
lauk nú fyrir skemmstu og það
hefur nú verið frumsýnt á Lista-
hátið. Þá uppskera leikarar, leik-
stjóri, höfundur og aðrir
aðstandendur sýningarinnar
laun erfiðis síns, og þá loks vita
SNJÓR
UM MITT
SUMAR
Reynir að blíðka Dísu (Lilju Guðrúnu).
Það skerst í odda með þeim.
þeir i raun hver árangurinn
hefur orðið. Blaðamaður og
ljósmyndari VIKUNNAR
fengu nú fyrir skömmu að líta
inn á æfingu leiksins og fylgjast
með því sem þar fór fram. Það
var skuggsýnt á sviðinu er okkur
bar að garði, full skuggsýnt
fannst ljósmyndaranum sem þó
tókst að festa þessar myndir á
filmu. Leikarar og leikstjóri
Höfundur leikritsins Snjór er Kjartan
Ragnarsson. Kjartan hefur á undan-
förnum árum verið töluvert í sviðs
ljósinu, í eiginlegri og óeiginlegri
merkingu þess orð. Hann er leikari,
leikstjóri og leikritahöfundur og hcfur
líklega vakið hvað mesta athygli fyrir
síðasttalda hlutverkið nú að undan-
förnu. Útfærsla hans á Ofvita
Þórbergs Þórðarsonar hefur gengið
fyrir fullu húsi í allan vetur og önnur
leikrit hans eru mönnum í fersku
minni. Saumastofan, Týnda teskeiðin
og Blessað barnalán hafa náð til
ótrúlegs fjölda landsmanna og alltaf er
verið að setja upp leikrit Kjartans viða
um land. Og hvers megum við svo
vænta af Kjartani í þessu nýja leikriti,
Snjó? Kjartan segist vera að fjalla um
lifið og tilveruna, reyna að bregða upp
mynd sem höfðar til áhorfenda og
boðskapur leiksins verði svo sjálfsögð
niðurstaða þess sem á horfir. Hann vill
ekki predika yfir fólki, gildra sem
líklega er auðvelt að falla í ef fjallað er
um jafnviðkvæmt efni og vandamál
fólks. Leikurinn gerist i læknisbústað
úti á landi. Gamli læknirinn þar fær
hjartaáfall. Hann þykist hvergi
hræddur og neitar að fara suður á
spitala. Hjartasérfræðingur kemur á
staðinn, gamall nemandi gamla
læknisins, og kona hans sem einnig
hafði hafið nám i læknisfræði en hætt
til að vinna fyrir manninum sínum
meðan hann var að Ijúka prófi.
Spenna magnast svo með ýmsu
móti. Brestir fara að koma í 10-15 ára
hjónaband yngri læknisins en eldri
læknirinn reynist óttast dauðann
meir en hann vill vera láta. Kjartan
leitast við að ná upp spennu i leiknum,
halda athygli áhorfandans og inn í
dæmið koma utanaðkomandi spennu-
valdar. Kjartan telur að uppbygging
leiksins, skipulag hans sé meginatriðið
sem hann hefur við að fást í Snjó.
Hann hafi í raun ekki getað byrjað að
vinna verkið fyrr en hann gerði sér
grein fyrir því hvernig því mundi
lykta. Það sem hann hafi þó fyrst og
fremst orðið að gera sér grein fyrir sé
hvaða tilfinningu hann vill framkalla
hjá áhorfandanum. Leikformið bjóði
síðan upp á útfærslumöguleika sem
kalli á ákveðin vinnubrögð, markviss
og að vissu leyti eftir ströngum
lögmálum. „Það er líkt og að setja
Höfundur spjallar vifl aðstoðarleikstjóra, 'ouflnýju Halldórsdóttur.
KJARTAN RAGNARSSON
6 Vikan 24. tbl.