Vikan - 12.06.1980, Blaðsíða 31
Popp
R/liðjumyndin að þessu sinni er skop-
stæling af Bítlunum i sömu stellingum
og þeir birtast á umslagi plötunnar
frægu Sgt. Pepper Lonely Heart Club
Band. Hún var gefin ut 1. júní árið 1967
og vakti þá i senn undrun og mikla
hrifningu og var mikið um hana fjallað i
helstu poppritum. I dag er þessi plata
ekki einungis talin sú besta sem Bitlarnir
gerðu um dagana heldur og ein besta
poppplata sem gefin hefur verið út til
þessa. Sannkölluð timamótaplata og
kemur þar margt til.
Aðalsmerki Sgt. Pepper er fjölbreyti-
leiki í lagavali án þess að eitt lag hverfi í
skuggann af öðru, því hvert þeirra er
útsett af mikilli smekkvisi og þeirri
upptökutækni sem þekkt var fyrir 13
árum beitt til hins ýtrasta — og gott
betur því þarna bregður fyrir hljóðum
og hljómfalli sem áður hafði ekki verið
notað á poppplötum, a.m.k. ekki á sama
hátt. Með öðrum orðum: Frá tæknilegu
sjónarmiði olli platan straumhvörfum í
hljómplötuútgáfu.
Ekkert bil er milli laga plötunnar og
það var nýjung árið 1967. Lögin mynda
því samfellt verk án þess þó að textarnir
gefi tilefni til þess. Viss stígandi er i upp-
Sgt. Pepper Lonely Heart Club Band:
Merkasti minnis-
varðinn sem
Bítlarnir reistu sér
röðun laga og endar platan (síðasta lag á
hlið 2) á einu áhrifamesta lagi sem
Bítlarnir skildu eftir sig á plötu, A Day
in Life.
Umslagið eða umbúðirnar vöktu ekki
siður athygli en innihaldið, einkum
myndin á framhliðinni (sjá mynd hér að
ofan) sem vakti margar spurningar
meðal poppunnenda. Þarstanda Bitlarn-
ir fjórir mitt meðal frægs fólks sem ýmist
var lífs eða liðið árið 1967. Stendur allt
þetta merkisfólk yfir leiði með árituðum
borðum og stóð ekki á ráðningu þessarar
myndgátu meðal poppspekinga. Hér
stóðu fjórmenningamir frægu ásamt
friðu föruneyti yfir eigin gröf — þeir
væru með öðrum orðum hættir. Ekki
reyndist sú ráðning rétt þvi plötur Bítl-
anna urðu fleiri. Eðlilegri skýring á útliti
umslagsins er sú að á þessum árum voru
Bitlarnir komnir á kaf í austurlenska
dulspeki og birtist sá áhugi í mörgu sem
þeir tóku sér fyrir hendur, breyttri
músik, breyttum klæðnaði og útliti og
ýmsum tiltækjum i hegðun og frani-
komu — og því þá ekki að gera umslag
plötunnar svolítið dularfullt. Á
bakhliðinni eru svo textar allra laganna
prentaðir. Þetta hafði ekki tíðkast áður
en varð mörgum til eftirbreytni og þykir
í dag sjálfsögð þjónusta við kaupendur
hljómplatna, þ.e. hafi textarnir
einhverja þýðingu.
Má segja að umbúðir og frágangur
Stg. Pepper hafi breytt viðhorfum hvað
varðar hönnun á plötuumslögum og
hleypt mikilli grósku í þessa atvinnu- og
listgrein, sem í dag er mikilvægur liður í
hljómplötuútgáfu.
Bítlarnir gáfu út Sgt. Pepper um
svipað leyti og þeir stóðu á hátindi
frægðar sinnar. Hugur þeirra hafði þá
þegar hneigst að öðrum hugðarefnum
jafnhliða músíkinni, t.d. dulspeki eins og
áður er getið, sem m.a. varð þess vald-
andi að þeir komu ekki saman aftur til
plötuupptöku sem ein samverkandi heild
heldur sem fjórir einstakiingar hver með
sinar skoðanir á músik og málefnum
Ágreiningur lagasmiðanna ágætu,
þeirra McCartneys og Lennons, óx stig
af stigi eftir þetta, allt þar til siðustu
merkin um samstarf sáu dagsins Ijós —
platan Let it be sem út kom 1970.
Sgt. Pepper Lonely Heart Club Band
er tvimælalaust merkasti minnisvarðinn
sem Bítlarnir reistu sér og þær plötur
vandfundnar sem hafa haft jafn-
áþreifanlega mikil áhrif i poppinu.
24. tbl. Vlkan 31