Vikan - 12.06.1980, Blaðsíða 63
Ryan O’Neal,
c/o lntermtional Creative
Management,
40 West 57th Street,
New York,
N. Y. 100 192.
Bonnie Tyler,
Osterstr. 116,
2000 Hamburg 19,
Deutschland.
Rod Stewart,
Poxtfach 5754,
2000 Hamburg 76,
Deutschland.
Teens,
c/o Wolfgang Scheer,
Kurfurstendamm 209,
1000 Berlin 15,
Deutschland.
Ég lœt þetta vera nóg, en ég
vona að það geti hjálpað ein-
hverjum sem er í vandrœðum.
Virðingarfyllst,
Rósa
Þetta var ekkert smáræði og
vonandi geta einhverjir
lesendur fundið þarna sitt
uppáhald og haft af heimilis-
fanginu nokkurt gagn. Rósu
þakkar Pósturinn kærlega
hjálpsemina.
Þú ert ■ . .___________________
Kæri Póstur!
Ég sendi þér nú mitt fyrsta
bréf og ef þú birtir það ekki
þá . . . Jæja, sleppum því. En
skilyrðið er að þú birtir ekki
nafn mitt heldur ???? Þið sjáið
það undir bréfinu.
Ég vona að Helga og Gunna
séu frískar, en ég frétti nefni-
lega um daginn að þær hefðu
verið með hettusóttina.
En þú, minn kœri Póstur, ert
nú meiri lygalaupurinn. í einu
Vikublaðinu birtirðu nafn og
heimilisfang Olivíu Newton
John og í því næsta á eftir
segistu ekkert vita um hana.
Hvað á þetta að þýða? Ha,
Hvað er lausaverslun?
Kœri Póstur!
Mig langar að biðja þig að svara tveimur spurningum
fyrir mig, sem ég efast ekki um að þú getur svarað. En þœr
eru svona:
Segjum svo að mig langi til að opna búðarholu með
vörum sem égframleiði sjálfur eða selja þær á annan máta.
Hvað þarf ég að gera til að svo geti orðið og hvaða skilyrði
þarf ég að uppfylla?
Hvað er lausaverslun?
Svo er það ekki meira að sinni.
Með fyrirfram þökk.
H.I.S.
Það var þetta síðasta sem vafðist rækilega fyrir Póstinum. í
íslenskri orðabók stendur að lausaverslun sé sú tegund
verslunar sem hefur enga fasta bækistöð. Þannig að farand-
salar ættu að falla undir það og einnig ýmiss konar umferða-
heildsalar.
í íslenskum lögum er ekki gert ráð fyrir að menn stundi
verslun án leyfis og þvi þarf smásöluleyfi til að stunda verslun
af flestu tagi. Smásöluleyfi kostar 130.500 krónur og gildir í
fimm ár i senn. Endurnýjun kostar sáralítið.
Til þess að fá smásöluleyfi þurfa einstaklingar að hafa
íslenskt ríkisfang og heimilisfesti, fjárræði og löggilt próf úr
verslunarskóla, eða jafngilda menntun. Umsóknir um undan-
þágur skulu sendar til viðskiptaráðherra. Rétti til smásöluversl-
unar fylgir leyfi til að afla tilboða í vörur hérlendis.
Hins vegar virðastlistamenn ekki þurfa verslunarleyfi til að
selja sínar vörur, svo ef þú telur þessa vöru þínar af list-
rænum toga er spurning hversu langt þú kæmist í kerfinu.
Annars færðu allar nánari upplýsingar um þetta hjá viðskipta-
ráðuneytinu og er siminn þar 25000.
viltu segja mér það?
Og í einu blaðinu var spurt
hvort Elvis aðdáendaklúbbur
væri til og þú sagðist ekki vita
það. En ég veit um einn og
fylgir hann hér: Elvis Presley
Flaming star, Postboks 52,
1470 Lerenskog. Og ég hef
einnig heimilisföng ýmissa
annarra.
Jœja, kæri Póstur, nú skaltu
vara þig. Ég og vinir mínir
höfum samið dágóða rullu um
þig. Hér kemur hún: Þú ert
karlmaður, giftur og átt 3 börn.
Þú ert þrjóskur, þrár og vitlaus
og veist ekkert í þinn haus.
Nú, þú hefur kvenmann þér til
aðstoðar þarna og hún gerir
lítið annað en að rugla þig. Þú
ert hávaxinn, dökkhærður, 28
ára og ert vatnsberi. Er þetta
nú ekki nóg? Og ef þessi lýsing
er eitthvað lík þér þá skal ég
fara að hlæja svo hátt að það
heyrist til þín.
Bestu kveðjur og blessaður
sendu nú rullu til mín.
Hahahahaha. 6135-6010
Allt verður nú Pósturinn að
sætta sig við, jafnvel þá þungu
sorg að pennavinirnir kalli hann
lygalaup og svo mætti lengi
telja. En það er náttúrlega hægt
að hugga sig við breiðu bökin.
Þrátt fyrir að Pósturinn hafi
nokkrum sinnum birt heimilis-
fang umræddrar Olivíu verður
hann að játa fáfræði sína hvað
alla aðra einkahagi hennar
varðar. Til þess að fræðast um
poppstjörnur að gagni verða
lesendur að lesa poppsíðurnar í
blaðinu. Og takmörkuðu plássi á
Póstsíðu er ekki hægt að eyða á
heimilisföng leikara eingöngu,
því þá er hætt við að ýmsum
sárni.
Því miður, vinir mínir, ekkert
úr rullunni um Póstinn hæfir
lýsingu á honum og hans
högum, ef til vill eitt eða tvö
atriði af þrettán eru ekki alröng.
Það getur varla talist að hitta
naglann á höfuðið. Það er
annars undarlegt að hafa svona
mikinn áhuga á persónulegum
högum Póstsins. Honum er nú
einu sinni ætlað að aðstoða
lesendur í sambandi við þeirra
einkamál, en ekki öfugt.
Helga og Gunna þakka fyrir
sig og segjast í sólskinsskapi og
við hestaheilsu.
Naga svo fer-
lega neglurnar
Kœri Póstur!
Þú sem allt veist, hvernig á
ég að fara að því að hætta að
naga neglurnar? Þær brotna og
klofna svo ferlega að ég get
engan veginn stillt mig um að
naga þær og bíta og svo er
þetta orðinn einn vítahringur.
Er til eitthvað til að bera á
neglurnar og get ég tekið
eitthvað inn til þess að þær
vaxi betur? Fljótur nú og ég
tek það fram að ég er EKKl
STELPA!
Margblessaður.
Nagli
Auðvitað veit Pósturinn hvernig
þú átt að fara að því að hætta að
naga neglurnar! Þú ferð í næstu
lyfjabúð og kaupir eitt glas af
efni sem framleitt er til að hjálpa
fólki í slíkum kringumstæðum.
Það er svo hryllilega bragðvont
að þér mun reynast gersamlega
ókleift að stinga fingrunum up-
í þig án þess að kasta upp — ,a
því sem næst. Síðan skaltu
kaupa í sömu férð vitamín og
kalktöflur og eftir um það bil tvo
mánuði ertu sem nýr maður —
ef á fingurna er litið! Og
vonandi á öllum öðrum sviðum
einnig.
Hvað þýðir?
Kœri Póstur!
Hvað þýðir nafnið Ingibjörg
Þórey?
Kveðja.
Líklega er þetta eitt stysta bréf
sem Póstinum hefur borist á
löngum ferli sem sálusorgari
Vikulesenda. Því er ekki nema
sjálfsagt að ljá því rúm hér á
síðunum.
Nafnið Ingibjörg hefur mjög
mikið verið notað hér síðan á
landnámsöld. Það er samsett úr
nöfnunum Ingi og Björg. Ingi er
eitt þeirra nafna sem ekki hefur
tekist að skýra með nokkurri
vissu en Björg þýðir einfaldlega
hjálp eða björgun. Þórey merkir
auðna Þórs og hefur tíðkast hér
frá upphafi.
24. tbl. Vikan 63