Vikan


Vikan - 12.06.1980, Page 7

Vikan - 12.06.1980, Page 7
ræddu ákaft saman ýmislegt sem við kom leiknum, misskiljanlegt leikmanni eins og blaðamanni. Úti í sal sat höfundurinn ásamt aðstoðar- manni leikstjóra, Guðnýju Halldórsdóttur, en Sveinn Einarsson leikstjóri heilsaði upp á innrásarliðið og kynnti leikar- ana fimm sem flytja okkur Snjó um mitt sumar. Með hlutverk í leiknum fara Bríet Héðinsdóttir, Erlingur Gíslason, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Pétur Einarsson (þetta er hans fyrsta hlutverk í Þjóðleikhúsinu) og Rúrik Haraldsson. Hvíslarinn, Jóhanna Norðfjörð, var líka á þönum og fólk kom þarna og fór, án þess maður fyndi í því nokkra reglu. Þó var auðfundið að í þessum ys og þys fór eitthvað markvisst fram. Baka til var verið að æfa samlestur, búningar voru rétt í mótun, búningahönnuður, Dóra Einarsdóttir, birtist við mikinn fögnuð. Mér skilst að skraut- legur klæðaburður hennar hafi vakið þessa kátínu. Höfundi leikmyndar, Magnúsi Tómas- syni, bregður fyrir. Aftur er hlegið og mér er sagt að það hafi verið að leikhúsbrandara, ef ég man þá rétt. Hvert sem nafnið er á þess konar fyndni þá þekkist hún af því að vera léleg og þá er líka hlegið á „sérstakan hátt”. Og áður en ég veit af er farið að leika upphaf 3ja þáttar. Sviðið er læknisbústaður úti á landi. Snjóflóð hefur fallið, öng- þveiti virðist ríkja, en ekki endilega vegna þess. Við fáum saman ferskeytlu.” segir Kjartan. þar sem hann situr við skólastofulegt borð úti í sa! Þjóðleikhússins og fylgist með leikurunum túlka leikrit hans. Hann segist litlu hafa breytt frá upphaf- legum texta og getur tekið undir að það hjálpi honum til að vinna verkið á raunhæfan hátt að þekkja svo vel til leikhúss sem raun ber vitni. Hann reynir líka að gæða hvert hlutverk sínu lífi:...leikari verður að hafa á einhverju að byggja,” segir hann. Það er kannski þess vegna sem upphaf þriðja þáttar. sem rétt i þessu er að byrja, höfðar beint til blaðamanns úti í sal, sem þekkir hvorki haus né sporð á framvindu leiksins fram að þvi né hvernig honum muni lykta. Uggur og nokkur spenna hefur þó óneitanlega gert vart við sig eftir þetta stutta atriði. Kjartan segist líka hafa verið að reyna að vekja vissa spennu og óhugnað hjá áhorfendum, í þessu leikriti. Að þessu sinni leikstýrir Kjartan ekki leikriti sínu. það er enginn annar en Sveinn þjóðleikhús- stjóri Einarsson sem það gerir. Kjartan er þó þarna og fylgist með þróun leiksins I meðförum leikara og ekki annað að sjá en honum líki vel. Það hefur litið þurft að eiga við texta leiksins i meðförum. „Það var bara i Ble'ssuðu barnaláni sem við þurftum að breyta textanum, laga hann að áhorfendum, þvi farsi byggist á því að vinna með áhorfendum." í leikriti sem þessu, sem byggist á því að vinna upp spennu, hlýtur meðferð textans að vera það sem höfundi er annast um og greinilegt er að þarna er saman kominn hópur sem reynir að gera leikriti Kjartans verðug skil. aób. Pétur Einarsson brunar inn ð sviðið: Snjóflóð er fallið. (Ljósip. Jim Smart.) Rúrik i hkjtvarki gamla lœknisins hlustar á Láru, konu hjartasér- frœðingsins (Bríeti): „Mér liður eins og stórfljóti sem hefur sprengt af sér . . . nokkrar hagnýtar vatnsafls- stöðvar." örlitla innsýn inn í persónuna Dísu, sem Lilja Guðrún leikur, og ekki er laust við að mann gruni hvers konar manngerð yngri læknirinn, sem Erlingur leikur, er. Það er líka brugðið upp svipmynd af samleik þeirra Rúriks og Brietar i hlutverkum gamla læknisins og eiginkonu hjartasérfræðingsins. Pétur Einarsson virðist vera eini maðurinn sem hefur áhuga á því að fallið hefur snjóflóð. En það er auðvitað ekki hægt að segja mikið um atriði sem þessi slitin úr samhengi. En forvitnin er vakin og það er ekki vafamál að áhugavert er að sjá þessa sýningu í heild. Góða skemmtun. aób. 24. tbl. Vikan 7

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.