Vikan - 12.06.1980, Page 11
Svo hratt er tekið af staö vifl niðursetninguna . . .
. . . afl Sverrir Þór hefur naumast tima til afl lyfta sér upp á pallinn, áður
en vélin hverfur út i buskann.
Að loknum ströngum vinnudegi
sátu hjónin Sigurður og Jóhanna
fyrir með dóttur sinni Guðfinnu
Ingibjörgu.
ættu ekki að verða undrandi þótt þær
skemmist tiltölulega fljótt. Rakinn og
hitinn á þeim stað valda því að geymslu-
þol kartaflnanna styttist mjög.
Flestar verslanir hafa slæm geyntslu-
skilyrði fyrir kartöflur og þess vegna er
ekki ætlast til að kartöflupokar frá
Grænmetisversluninni séu seldir þegar
meira en 4 dagar eru liðnir frá
dagsetningunni sem stimpluð er á
pokana.
„Kartaflan er næringarrik og holl en
afar viðkvæm fæðutegund sem þarfnast
umhyggju og góðrar meðferðar á leið
sinni frá upptöku á disk neytandans,”
segir í leiðbeiningum Eðvalds B.
Malmquist um vöruvernd og betri
meðferð kartöfluframleiðslunnar.
Augljóslega hljóta allir sem koma
nálægt kartöflurækt að vanda .til
framleiðslunnar svo sem þeim er unnt,
enda er þetta „engin uppgripaatvinna”,
segja kartöflubændur i Þykkvabænum.
Fjárfesting í kartöflujörð nemur líklega
60-80 milljónum króna þegar allt er talið
með, vélar. byggingar og jörðin sjálf.
Miðað við að bændurnir þurfa að
leggja í sama stofnkostnað' Wíer sem
uppskeran verður. og að fjárfestingar- og
rekstrarlán eru af mjög skornum
skammti. hljóta bændur að reyna að ná
sem mestri og bestri uppskeru. -jás
Öskar i Hábœ haffli ekki haft tima til afl raka sig i dagsins önn, en lét þó tilleiðast að vera mefl á
mynd. Öskar situr fyrir miflju, til vinstri sést Sverrir i Rimakoti, en til hægri feðginin Sigurður og
Guðfinna.
Sverrir kartöflubóndi féllst á afl sviðsetja vélalausa niðursetningu. Svona vinna enn þeir sem rækta
kartöflur i smáum stil.
24- tbl. Vikan II